31.03.1954
Sameinað þing: 43. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í D-deild Alþingistíðinda. (3454)
161. mál, verndun hugverka o. fl.
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Fyrsta fyrirspurnin hljóðar svo: „Hve miklar gjaldeyristekjur hafa íslenzka þjóðarbúinu hlotnazt frá öðrum löndum fyrir þýðingarrétt íslenzkra bóka og flutningsrétt íslenzkra tónverka og leikrita, síðna Ísland gekk í Bernarsambandið?“
Þessu er þar til að svara: Þessi hluti fsp. hefur verið borinn undir gjaldeyriseftirlit bankanna, og hefur það svar borizt, að þær greiðslur, sem bönkunum hafa borizt síðan Ísland gekk í Bernarsambandið, hafi bæði verið svo fáar og óverulegar, að varla verði álitið, að um teljandi gjaldeyristekjur hafi verið að ræða. Greiðslurnar hafa ekki verið skrásettar sérstaklega, heldur taldar með ýmislegu í flokkun þeirri, er gerð hefur verið á gjaldeyriskaupum bankanna. Til viðbótar þessum upplýsingum frá gjaldeyriseftirliti bankanna er rétt að geta þess, að því er varðar tónlistarflutning, að STEF mun hafa haft samninga við hliðstæð félög í öðrum löndum um, að ekki þurfi að yfirfæra til erlendra manna gjöld fyrir flutning tónverka þeirra hér á landi, enda yfirfæra hin erlendu félög ekki heldur gjöld til Íslands fyrir flutning íslenzkrar tónlistar þar. Af þessu leiðir, að íslenzk tónskáld eiga að njóta þeirra tekna, sem STEF hefur fyrir flutning allrar tónlistar hér á landi.
Önnur fsp. er: „Hversu mikið fé hefur ríkisútvarpið greitt erlendum réttareigendum fyrir flutningsrétt erlendrar hljómlistar og erlendra leikrita og skáldsagna á sama tíma?“
Svarið við þessu er: Samkvæmt upplýsingum ríkisútvarpsins hafa verið greidd höfundarlaun vegna erlendra réttareigenda, frá því að Ísland gekk í Bernarsambandið, sem hér segir: Fyrir leikrit 6879.50 kr. og fyrir sögur 3297.70 kr., samtals 10177.20 kr. Greiðslur vegna flutnings tónlistar hafa farið fram í einu lagi til STEFS, bæði fyrir erlenda og íslenzka höfunda. Samtals hafa greiðslur þessar numið öll árin 859 þús. kr. Samkvæmt áliti STEFS mun flutningur erlendrar tónlistar hafa verið um 90% af tónlistarflutningi útvarpsins.
Þriðja fsp.: „Hversu mikið fé hefur þjóðleikhúsið greitt fyrir hið sama?“
Svarið við því er, að þjóðleikhúsið hefur látið í té þær upplýsingar, að greiðslur þess fyrir flutningsrétt á erlendum leikritum, óperum og óperettum hafi numið samtals 251749.60 kr.
Fjórða fsp. er: „Hversu mikinn erlendan gjaldeyri hafa gjaldeyrisyfirvöldin veitt bóka- og blaðaútgefendum á sama tíma sem greiðslur fyrir þýðingarrétt erlendra bóka og blaðagreina?“
Samkvæmt upplýsingum innflutningsskrifstofunnar hafa á tímabilinu 1. jan. 1948 til áramóta 1953 verið veitt gjaldeyrisleyfi til bóka- og blaðaútgefenda svo og leikfélaga til greiðslu á þýðingarrétti, ritlaunum og flutningsrétti sem hér segir: 1948 3150 kr., 1949 3755 kr., 1950 1350 kr., 1951 15179 kr., 1952 17103 kr., 1953 52661 kr., og fram til 10. marz 1954 8914 kr.
Í fimmta lagi: „Hversu mörgum beiðnum um sams konar gjaldeyrisleyfi hafa gjaldeyrisyfirvöldin synjað á sama tíma?“
Svarið við því er þetta: Árin 1952 og 1953 hefur samkvæmt upplýsingum innflutningsskrifstofunnar verið synjað 13 beiðnum um yfirfærslu höfundarlauna. Innflutningsskrifstofan hefur ekki leitað synjana nema frá árunum 1952 og 1953, þar sem mörgum skjölum þess efnis hefur verið komið fyrir utan skrifstofunnar í geymslu, en það mundi kosta mikla vinnu að taka þessi skjöl fram og leita í þeim.
Þetta eru þær upplýsingar, sem ég hef að gefa varðandi þessar fsp.