10.03.1954
Sameinað þing: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í D-deild Alþingistíðinda. (3466)

222. mál, greiðslugeta atvinnuveganna

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Á Alþ. 1952 fluttu sex hv. alþm. till. til þál. um að fela ríkisstj. að láta fara fram rannsókn á greiðslugetu aðalatvinnuvega þjóðarinnar með það fyrir augum að fá úr því skorið, hversu hár rekstrarkostnaður atvinnufyrirtækjanna megi vera, til þess að þeim verði haldið í gangi sem lengstan hluta hvers árs og þeir veiti sem varanlegasta atvinnu. Var svo fyrir mælt í till., að ríkisstj. skyldi leita aðstoðar og samvinnu við samtök launþega og atvinnurekenda um framkvæmd þessarar rannsóknar. Skyldi rannsókn þessari lokið fyrir 1. nóv. 1953. Í grg. þeirri, sem fylgdi till., komast fim. svo að orði með leyfi hæstv. forseta:

„Rannsókninni er ætlað að sýna, hvern rekstrarkostnað hinar ýmsu greinar atvinnulífsins geta borið. Ef niðurstöðurnar sýna, að rekstrarkostnaður í sumum atvinnugreinum sé svo hár, að taprekstur sé óhjákvæmilegur, er eðlilegt, að látin sé fara fram framhaldsrannsókn á því, með hverju móti taprekstri verði forðað, hvort unnt sé að lækka einhverja kostnaðarliði eða hverjar ráðstafanir aðrar séu tiltækilegar, til þess að tekjur hrökkvi fyrir útgjöldum. Ef rannsóknin á hinn bóginn sýnir, að um verulegan ágóða sé að ræða í atvinnugreininni, mundi eðlilegt, að hlutdeild vinnunnar í arði fyrirtækisins yrði aukin með kauphækkunum eða á annan hátt.“

Þáltill. þessi var samþ. í sameinuðu Alþingi 17. des. 1952.

Ég hygg, að engum muni blandast hugur um það, að rannsókn slík sem þessi, sé hún vel og ýtarlega af hendi leyst, geti reynzt mikilvæg undirstaða til að byggja á ýmsar gagnlegar aðgerðir í atvinnumálum þjóðarinnar. Það væri til að mynda ekki ófróðlegt, svo að eitt dæmi sé tekið, að sjá niðurstöður rækilegrar rannsóknar á rekstrarafkomu og greiðslugetu útgerðarfyrirtækja. Fullyrt er, og ég hygg, að það sé rétt, að fjölmörg útgerðarfyrirtæki, sem ekki hafa aðstöðu til að græða á fiskverkun og fisksölu, eigi við mikla erfiðleika að etja. Svo er um togaraútgerðina, og eru þó launakjör togarasjómanna nú svo léleg, að engu tali tekur, enda er stöðugur og sívaxandi skortur á sjómönnum, sem fást til að fara út á þessi góðu og aflasælu skip. Nú er hins vegar vitað, að fiskiskip okkar. togarar og vélbátar, flytja stórkostleg verðmæti að landi. Það er afli þeirra, sem útflutningur þjóðarinnar byggist að langmestu leyti á. Fyrir þau verðmæti, sem úr sjónum eru dregin, eru keyptar mestallar þær vörur, sem til landsins flytjast. Þó býr þessi atvinnuvegur við þau kjör, að útgerð togara og vélbáta er víða rekin með tapi, og sjómennirnir, alveg sérstaklega á togaraflotanum nú sem stendur, búa við allsendis óviðunandi launakjör. Mega ekki allir sjá, að hér er framið augljóst þjóðfélagslegt ranglæti, sem hlýtur að koma þjóðinni allri í koll, ef ekki verða fyrr en síðar ráðnar bætur á?

Það er margt, sem þessu veldur, og liggur sumt nokkurn veginn í augum uppi, svo sem gífurleg flutningsgjöld, okur á nauðsynjum útvegsins, rándýrt rekstrarfé og óeðlilegur gróði þeirra aðila, sem verka fiskinn og annast sölu á honum. En þó að allt þetta liggi nokkurn veginn ljóst fyrir í megindráttum, þá er mikils um það vert að fá ýtarlega rannsókn á rekstri útvegsins og ekki síður þá framhaldsrannsókn, sem flm. þáltill. þeirrar, sem ég hef rætt hér um, gera ráð fyrir að fram verði látin fara, þar sem um taprekstur er að ræða eða reksturinn er ekki um það fær að greiða þeim, sem við hann vinna, lífvænleg laun.

Þar sem nú er liðið nokkuð á fimmta mánuð síðna rannsókn þeirri á greiðslugetu íslenzkra atvinnuvega, er ríkisstj. var falið að láta framkvæma, átti að vera lokið, en ekkert hefur heyrzt um árangur þeirrar rannsóknar, hef ég leyft mér að bera fram eftirfarandi fyrirspurn:

„Hefur ríkisstj. látið framkvæma rannsókn þá á greiðslugetu og afkomu atvinnuvega þjóðarinnar, sem samþ. var í sameinuðu Alþingi 17. des. 1952 að fram skyldi fara og lokið fyrir 1. nóv. 1953? Sé rannsókn þessari lokið, hver varð í megindráttum niðurstaða hennar? Sé rannsókninni enn ekki lokið, hvenær má vænta þess, að henni ljúki og gerð verði grein fyrir niðurstöðu hennar?“

Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að svara þessari fyrirspurn.