24.03.1954
Sameinað þing: 41. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í D-deild Alþingistíðinda. (3473)
222. mál, greiðslugeta atvinnuveganna
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Út af ummælum hv. 8. þm. Reykv. (GilsG) minni ég enn á það, að varðandi sjávarútveginn er þegar mikil gagnasöfnun fyrir hendi. Þar er bæði að benda á reikningaskrifstofu sjávarútvegsins, sem hefur mikinn fróðleik að færa um afkomu bátaútgerðarinnar frá ári til árs, og svipað verður maður nú að telja að liggi nokkuð fyrir um afkomu landbúnaðarins, þó að það sé kannske ekki í sama mæli.
Ég veit ekki, hvað er óhætt að vera hreinskilinn, úr því að maður er kallaður stjórnmálamaður, en ég vil játa það, að ég hef heldur veigrað mér við að láta fara fram mjög nákvæmar rannsóknir á togaraútgerðinni, þó að togaraútgerðarmenn hafi oft beint þeim óskum til mín. Þetta er vegna þess, að ég hef talið, að bág afkoma mundi ýta undir óskir eða kröfur togaraútgerðarinnar á hendur ríkissjóði. Ég hef hins vegar haft ákaflega mikla tilhneigingu til þess að telja, að ef togararnir ætla að fara að leggjast upp á ríkið sem ómagar, að mig skorti þá getu til þess að benda á framfærslusveitina. Það getur verið, að þetta sé skakkt sjónarmið, en þetta er alveg ærlega talað. Ég býst má við, að málið standi þannig í dag, að það verði ekki hjá því komizt að hlusta meira á þessar raddir heldur en gert hefur verið. Ég trúi því sjálfur, nú orðið, að hagur togaraútgerðarinnar sé mjög örðugur, í bili a. m. k., og ég mun þess vegna geta sagt það um mig eins og um meðstjórnendur mína, að við munum vera reiðubúnir til þess að ræða þau mál við togaraútgerðarmennina og hlusta á þeirra till., um leið og ég skýri hér frá því. sem raunar mun hafa komið opinberlega fram, að ríkisstj. óskaði eftir ýtarlegri gögnum af hendi þeirra heldur en fyrir lágu í þeim viðræðum, sem forustumenn togaraútgerðarinnar áttu við ríkisstj.
Nú bendi ég alveg sérstaklega á það varðandi togaraútgerðina, að það er hægurinn hjá að fá óyggjandi upplýsingar um afkomu togaranna, og miklu fremur nú en var hér fyrr á árum, þegar togararnir voru nær allir í höndum fárra félaga, sem voru í eign fárra einstaklinga. Nú er mikill hluti af þessari útgerð rekinn af opinberum aðilum, þannig að það er hægt að fá þeirra reikningsskil, sem — hvað sem menn vilja segja um einstaklinginn — ættu þó ekki að vera vefengd. Við skulum nefna útgerðir eins og bæjarútgerð Reykjavíkur og bæjarútgerð Hafnarfjarðar; þessi bæði fyrirtæki eru stór útgerðarfyrirtæki, og ég geri ráð fyrir, að skýrslur frá þeim yrðu síður vefengdar, þó að ég telji þær kannske ekkert ábyggilegri en skýrslur frá einstaklingum eða einkafélögum. Ég geri ráð fyrir, að þeirra afkoma sé nokkuð táknræn fyrir afkomu togaranna yfirleitt.
Ég veit ekki hvað menn vilja ganga langt, hvort mönnum þykir ástæða til að setja á laggirnar sérstakar n., sem hafi um þetta frekari rannsóknir. Ef við höfum bátaútveginn eins og hann er, togaraútveginn, með þeim aðgangi, sem við höfum að honum gegnum þessar opinberu útgerðir, landbúnaðinn, með þeim rannsóknum, sem þar fara fram, og svo loks þá loftvog, að hver sá, sem tapar, kemur með klögumálin og beiðnir sínar á hendur því opinbera, þá álít ég, að þetta mundi nú í bili nægja. Ef menn vilja annað, þá er það ekki ríkisstjórnarinnar að neita þeim óskum og kröfum, sem um það verða samþ. af Alþ. En ég vil ekki neita því, að mér finnst þessu nokkuð borgið í því formi, sem er nú, og ekki miklu til kostandi að hafa í frammi meiri rannsóknir um það, en er að sjálfsögðu reiðubúinn til þess að hlusta á þann þingvilja, sem um það kynni að koma fram.