31.03.1954
Sameinað þing: 43. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í D-deild Alþingistíðinda. (3487)

180. mál, togaraútgerðin

Einar Olgeirsson:

Hæstv. forsrh. kvartaði yfir því, að það vantaði skýrslur.

Ég vil leyfa mér að spyrja hann: Er það ekki nokkurn veginn næg skýrsla viðvíkjandi afkomu togaraútgerðarinnar, að togari bæjarútgerðarinnar, Pétur Halldórsson, er búinn að liggja vikum saman í höfn, án þess að Reykjavíkurbær hafi getað séð sér fært að hagnýta þannig eitt bezta skip flotans?

Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forsrh., hvort fótatak þeirra íslenzku sjómanna, sem þramma núna í land af beztu togurum veraldarinnar, tali ekki hærra og skýrar en nokkur skýrsla frá nokkrum togaraútgerðarmönnum getur gert. Ég held við þurfum ekki að leita eftir skýrslum í þessum efnum. Við þurfum bara að gera það upp við okkur, hvort við þorum að leysa vandamál togaraútgerðarinnar eins og þau liggja fyrir núna.

Viðvíkjandi olíunni minntist hæstv. forsrh. á það, að útgerðarmennirnir gætu sjálfir séð um það, að olíuverðið væri lægra, þeir væru í Olíufélaginu og gætu stjórnað þar. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forsrh.: Hvað sagði hans eigin flokkur um þetta sama olíufélag fyrir kosningarnar, og hvernig getur hann búizt við því, að þetta olíufélag hafi batnað nokkurn skapaðan hlut síðan? Eru ekki enn þá fyrir hæstarétti málshöfðanir fyrir okur á hendur þessu sama olíufélagi, og hvernig dettur honum í hug að slengja því hér fram, að útgerðarmenn. sem við þetta okur búa, ættu sjálfir að geta lyft þessu af sér?

Við vitum ósköp vel, að gróði olíufélaganna á hverjum togara, olíuþörfum þeirra, er um 200 þús. kr., og það fer upp undir það að vera helmingurinn af meðaltapi togaranna á s. l. ári, býst ég við. Við vitum enn fremur, að það, sem togararnir greiða árlega í vexti til bankanna, er milli 3 og 4 hundruð þús. kr., og við vitum á sama tíma báðir, að gróði t. d. Landsbankans eins er milli 30 og 40 millj. kr. á ári. Þorum við að skera þennan gróða niður til þess að láta Landsbankann og aðra banka landsins og meira að segja önnur olíufélög og annað slíkt lifa áfram? Við vitum það ósköp vel, að þetta drepst allt saman, svo framarlega sem togaraútgerðin er látin stöðvast.

Það er ekki til neins að halda áfram á þennan hátt, að hlaða þessum þunga gróðans á togaraútgerðina, láta þessa aðila í landi, hvort það eru bankar, olíuhringar, söluhringar, vátryggingarfélög eða aðrir slíkir, taka af bönkunum á ári upp undir hálfa milljón í gróða, en skilja togarana sjálfa eftir með tapi. Þetta getur ekki haldið svona áfram.

Við gerum kröfu til þess, að það verði rætt hér í þinginu og rætt alvarlega um þessi vandamál togaraútgerðarinnar, öðruvísi en í fyrirspurnatímum með 5 mínútna ræðufresti. Og Sósfl. mun fyrir sitt leyti gera ráðstafanir til þess, að það sé hægt, að slíkar umræður fari fram, og ég vona, að hæstv. ríkisstj. bregðist þá þannig við, að hún láti í té sínar hugleiðingar í þessum efnum. Það er bókstaflega óviðkunnanlegt fyrir þingið að eiga að ræða svona mál í 5 mín. ræðutímum eins og hérna er gert. Og hæstv. forsrh., sem sjálfur hefur lagt fram sinn mikla skerf til þess, að Ísland gæti eignazt þann stóra og mikla togaraflota, sem við eigum, mun skoða það skyldu sína að leysa nú þegar í samvinnu við Alþingi þau vandamál, sem togaraútgerðin býr við. Það eru vandamál alls landsins. Reykjavík lifir ekki, ef togaraútgerðin verður drepin undir henni núna.