01.10.1953
Sameinað þing: 1. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (3503)
Varamenn taka þingsæti
Aldursforseti (JörB):
Það mun vanta nokkra
þingmenn, og mun nú vera von á þeim, sumum hverjum að minnsta kosti, mjög fljótlega. Þess vegna er ekki hægt að ljúka þessum fyrsta fundi nú í dag, en vera mætti, að það flýtti fyrir störfum, að þingið skipaði sér í kjördeildir. Því ber að skipa sér í þrjár kjördeildir, og verður útbýtt seðlum. Deildirnar geta svo starfað, og á morgun við framhald fundarins gera þær grein fyrir störfum sínum.
Þessu næst skiptust þm. í kjördeildir, og urðu í
1. kjördeild:
BergS, EOl, FRV, GíslG, HG, IngF, KJJ, LJóh, MJ, ÓTh, PZ, PÞ, PO, SÁ, SG, SÓÓ, StgrSt, VH.
2. kjördeild;
AE, BBen, EmJ, GíslJ, GÍG, GJóh, GÞG, HÁ, HV, HermJ, IngJ, KS, JK, JS, ÁS, SB, SkG.
3. kjördeild:
ÁB, BSt, BÓ, BrB, EggÞ, EI, EirÞ, EystJ, GilsG, GTh, HelgJ, JJós, JPálm, JR, JörB, KGuðj, KK.
Fyrir lá að rannsaka kjörbréf allra alþingismanna. Skiptu kjördeildir með sér kjörbréfum svo sem lög mæla fyrir, þannig að 1. kjördeild hlaut til rannsóknar kjörbréf þeirra þm., sem voru í 3. kjördeild, 2. kjördeild kjörbréf þm. í 1. deild og 3. kjördeild kjörbréf þm. í 2. deild.
Fundi frestað.
Föstudaginn 2. okt. var fundinum fram haldið. Ásgeir Bjarnason, þm. Dal., var nú til þings kominn og sat fundinn.
Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Einar Ingimundarson, þm. Siglf., og Skúla Guðmundsson, þm. V-Húnv.