05.10.1953
Neðri deild: 2. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (3529)

Kosning fastanefnda

Forseti (SB):

Þessum umr. utan dagskrár er lokið. En með því að engum hv. þingflokki er gert rangt til með því, þótt kosningin verði endurtekin, en hins vegar líklegt, að niðurstaða hennar í fyrra skiptið hafi verið afleiðing óvenjulegrar listamerkingar, þá fer kosningin nú fram að nýju, kosning í fjárhagsnefnd hv. þingdeildar.

Við endurtekna atkvgr. hlaut A-listi 26 atkv., B-listi 5 atkv., C-listi 3 atkv. Kosningu hlutu samkv. því:

Jón Pálmason,

Skúli Guðmundsson,

Gylfi Þ. Gíslason,

Jóhann Hafstein, Páll Þorsteinsson.

2. Samgöngumálanefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru SB, ÁB, MJ, EirÞ, EmJ; á B-lista var GJóh. — A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Sigurður Bjarnason,

Ásgeir Bjarnason,

Magnús Jónsson,

Eiríkur Þorsteinsson,

Emil Jónsson.

3. Landbúnaðarnefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru ÁB, JS, GíslG, JPálm, HV; á B-lista var SG. — A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en tveir seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Ásgeir Bjarnason,

Jón Sigurðsson,

Gísli Guðmundsson,

Jón Pálmason,

Hannibal Valdimarsson.

4. Sjávarútvegsnefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru PO, GíslG, SÁ, EirÞ, EggÞ; á B-lista var LJós. — A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Pétur Ottesen,

Gísli Guðmundsson,

Sigurður Ágústsson,

Eiríkur Þorsteinsson,

Eggert Þorsteinsson.

5. Iðnaðarnefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru GTh, SkG, EmJ, JörB, EI; á B-lista var SG. — A- listi fékk 26 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Gunnar Thoroddsen,

Skúli Guðmundsson,

Emil Jónsson,

Jörundur Brynjólfsson,

Einar Ingimundarson.

6. Heilbrigðis- og félagsmálanefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru HelgJ, KJJ, GÞG, PÞ, JR; á B-lista var KGuðj. — A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Helgi, Jónasson,

Kjartan J. Jóhannsson,

Gylfi Þ. Gíslason,

Páll Þorsteinsson,

Jónas Rafnar.

7. Menntamálanefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru GTh, PÞ, KJJ, HÁ, HV; á B-lista var KGuðj. - A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Gunnar Thoroddsen,

Páll Þorsteinsson,

Kjartan J. Jóhannsson,

Halldór Ásgrímsson,

Hannibal Valdimarsson.

8. Allsherjarnefnd.

Fram komu tveir listar. Á A-lista voru JörB, BÓ, EggÞ, EI, ÁB; á B-lista var GJóh. — A-listi fékk 27 atkv., B-listi 5 atkv., en 2 seðlar voru auðir. Kosningu hlutu því:

Jörundur Brynjólfsson,

Björn Ólafsson,

Eggert Þorsteinsson,

Einar Ingimundarson,

Ásgeir Bjarnason.