05.04.1954
Sameinað þing: 43. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1679 í B-deild Alþingistíðinda. (3544)

Varnarmálin, samningar um framkvæmd

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Það var út af fsp. hv. 4. þm. Reykv. Ég verð að geta þess, að ég heyrði mjög illa, hvað hann sagði; hann talaði svo lágt. En ég stóð hér upp áðan til þess að skýra hv. Alþingi frá því, að ég gæti ekki nú sem stendur skýrt efnislega frá samningnum, og þess vegna óska ég ekki eftir því, að umr. hefjist um hann nú efnislega. Hins vegar hef ég lofað — og mun standa við það að öllu forfallalausu — að gefa hv. Alþingi nákvæma skýrslu um málið, þegar það er búið og þegar ég kem heim úr utanför minni.

Ég álít, að það þurfi ekki að svara þessu fleiru núna. Ég vil ekki og get ekki rætt samninginn efnislega. Ég vil ekki, að honum sé á neinn hátt teflt í hættu með því að berist út um samningagerðina nú sem stendur.