13.04.1954
Sameinað þing: 51. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1690 í B-deild Alþingistíðinda. (3554)
Varnarmálin, samningar um framkvæmd
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér í þessar umr. að öðru leyti en vitna til þess, sem hér hefur verið sagt af þeim, sem svarað hafa hv. 3. landsk. þm. En ég vil vekja athygli á því, að ég sé hvergi hæstv. utanrrh. í salnum eða hér viðstaddan.
Já, ég vissi það með öryggi, að hann var hér þegar þessi skýrsla var gefin, og hv. þm. var þá viðstaddur, og af hverju var þá þessari athugasemd ekki hreyft um leið, úr því að hún átti að vera svo sterk, að hún átti að knýja hæstv. utanrrh. til þess að segja af sér? Ferst þeim að vera sem siðameistari gagnvart öðrum, sem bíður með slíka athugasemd, ef hann telur sjálfur, að hún sé á rökum reist, og er flutt af þeirri vandlætingu, sem hann lætur, — ferst honum þá að bíða þangað til hæstv. utanrrh. er vikinn af fundi langt eftir miðnætti? Var ekki nær að taka málið upp um leið og sjálft málið var rætt og láta hæstv. ráðh. eiga kost á því að standa fyrir sínu máli eða a. m. k. gera honum viðvart um, að það stæði til að gera á hann slíka árás. Ég hygg, að hún verði hv. þm. sízt til sæmdar.