27.10.1953
Neðri deild: 11. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (3567)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það lítur út fyrir, að hæstv. forsrh. gangi ekki út frá því, að hann eigi mikið heima á þinginu, fyrst hann líkir því við, að þeir séu eins og stóð í túni, þegar þeir séu hér, hæstvirtir ráðherrar, og þurfi að reka þá í burtu.

Viðvíkjandi því, að ég sé nú svo ógurlega mikið fyrir að skipta um efni, þegar ég sé að tala, er það náttúrlega alveg rétt, að maður verður stundum að skipta um hestana; þegar t. d. ráðherrarnir eru sex og maður þarf að skipta skömmunum á milli þeirra, þá tekur maður hvern fyrir á fætur öðrum.

Viðvíkjandi hinu aftur á móti, að ég sé svo sérstaklega langmáli, þá verð ég að segja það, að það er nú aðeins þegar syndarolla ríkisstj. er orðin svo löng, að það tekur mann kannske klukkutíma að telja þær nokkurn veginn upp, þá neyðist maður því miður til þess að skilja engan útundan. Það er aðeins eitt ráð við þessu hjá hæstv. ríkisstj., og það er að hafa hneykslin, sem hún gerir, bara heldur færri; þá tala ég líka minna.