05.03.1954
Neðri deild: 58. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (3574)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég skal ekki fara hér neinum orðum um það, hvort það sé viðeigandi eða ekki viðeigandi, að danskt blað skuli hefja þessar umræður nú. Það er bezt að hafa um það sem fæst orð, a. m. k. af minni hálfu. En ég vil leggja áherzlu á það, að hér er eingöngu um danskar till. að ræða og ekki haldið fram, að neitt annað hafi komið fram 1 málinu, og að ég hef fyrir því öruggar heimildir, að forsrh. danski og menntmrh. neituðu í gær að segja nokkuð um málið. Ég tel, að það hljóti að vera þeirra að skýra frá sínum till., en ekki mitt, ef þeir hafa borið fram till., meðan þeir bera ekki till. þannig fram, að ætlazt sé til, að frá þeim sé sagt. Það verður að vera þagnarrof af hálfu annarra en mín, sem á sér stað í málinu. Þetta vil ég leggja áherzlu á. Og það, að ég hefði átt að stöðva fregnina í íslenzka útvarpinu (Gripið fram í.) — ja, það var sagt, að það væri stofnun, sem heyrði undir mig og ég bæri þess vegna ábyrgð á, hvað þar væri sagt, — það er fráleitara en tali taki. Ég hef ekkert á móti því, að þetta mál sé rætt. Ég hef engu að leyna í því, sem ég hef gert, og það er annarra en mín að stöðva þær fregnir, sem koma af aðgerðum danskra stjórnvalda. Hins vegar vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að það verði haldinn lokaður fundur um málið nú þegar.