25.11.1953
Sameinað þing: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í B-deild Alþingistíðinda. (3577)

Verðgæsla, olíumál o. fl.

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Út af fsp. hv. þm. Borgf. vil ég taka eftirfarandi fram:

Ríkisstj. í heild og hv. Alþ. hafa enn ekki látið álit sitt í ljós um þáltill. hv. þm. Borgf. varðandi Grænland. Meðan vilji hv. Alþ. er ekki kunnur og það hefur ekki sagt skoðun sína á málinu, mun ég vissulega ekki gera neitt, sem talizt getur afsal meintra réttinda Íslendinga til Grænlands.