04.03.1954
Neðri deild: 57. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1716 í B-deild Alþingistíðinda. (3608)
Afgreiðsla mála úr nefndum
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að á þingfundi 27. okt. var vísað til hv. fjhn. þessarar d. frv., sem ég flyt um skattfríðindi til sjómanna á íslenzkum fiskiskipum. Frv. þetta hefur nú legið allan þennan tíma hjá nefndinni, og bólar ekkert á afgreiðslu. Ég vildi óska eftir því, að forseti vildi hlutast til um, að nefndin afgreiddi málið til þingsins, og ef hún ekki getur orðið við því, þá verði málið tekið hér á dagskrá til eðlilegrar afgreiðslu, þar sem það hefur legið jafnlengi í nefndinni og raun ber vitni um.