12.11.1953
Sameinað þing: 16. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (3630)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

forseti (JörB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Formaður þingflokks Framsfl. hefur í gær sent mér svo hljóðandi bréf:

„Með því að Helgi Jónasson, 2. þm. Rang., er veikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 3. mgr. 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að óska eftir því, að varamaður, Björn F. Björnsson, taki sæti á Alþ. í veikindaforföllum hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Halldór Ásgrímsson.

Til forseta sameinaðs þings.“

Ég vil mega biðja hv. kjörbréfanefnd að gera svo vel og taka nú þetta kjörbréf og kosningu varaþingmanns 2. þm. Rang. til athugunar og gef sjö mínútna fundarhlé. — [Fundarhlé.]