18.12.1953
Sameinað þing: 30. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (3667)
Þingfrestun og setning þings að nýju
Forseti (JörB):
Samkv. því, er nú hefur verið tilkynnt, verður þetta síðasti fundur sameinaðs Alþingis að þessu sinni, unz framhaldsfundir hefjast eftir nýárið.
Ég vil óska hv. þingmönnum gleðilegra jóla og gleðilegs og farsæls nýárs. Sömuleiðis vil ég óska öllu starfsfólki þingsins gleðilegra jóla og gleðilegs nýárs. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar ferðar heim og góðrar heimkomu. Megum allir heilir hittast, þá er þing hefur störf sín eftir áramótin.