03.03.1954
Sameinað þing: 37. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í D-deild Alþingistíðinda. (3696)

126. mál, höfundaréttarsamningur

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur athugað þessa þáltill. og leggur til, að hún sé samþ. Afstaða n. byggist á því, að eins og kunnugt er njóta verk höfunda í Bandaríkjunum fullrar verndar á Íslandi, ef þau eru aðeins gefin út fyrst í einhverju landi Bernarsambandsins, t. d. í Kanada, en þannig mun venjulega vera farið að. ef verkið þykir nokkurs virði. Njóta bæði skáldrit og önnur verk, tónverk og annað slíkt, þannig meiri og lengri verndar í löndum Bernarsambandsins en í sjálfum Bandaríkjunum, því að lög Bandaríkjanna veita þeirra eigin höfundum skemmri rétt en Bernarsambandið gerir.

Ég hygg, að það hafi hér áður fyrr verið mögulegt að fá íslenzk verk skráð í Bandaríkjunum og að þau nytu þar höfundaverndar, eða áður en Ísland varð sjálfstætt ríki, því að það mun hafa verið einhver samningur um það á milli Dana og Bandaríkjanna. En þetta er orðið breytt nú, og íslenzkir höfundar njóta ekki verndar í Bandaríkjunum, nema hún sé veitt þeim sérstaklega, en það mun yfirleitt ekki vera gert. Þannig hefur gjaldeyrir, sem hefði verið réttmætt að til landsins rynni, farið forgörðum. Ég veit ekki, hvað mikil sú upphæð er, en sennilega er hún töluvert há.

Nú var hér á Alþ. í haust samþ. þáltill., sem fjallaði um svipað efni, eða um það, að Ísland gerðist aðili að samningi, sem gerður var í Geneve milli ýmissa landa og þ. á m. Bandaríkjanna um höfundarétt, en sá samningur kemur þó ekki til framkvæmda fyrr en þing hvers lands hefur staðfest hann, og þykir ekki nægilegt til þess að ná því takmarki, sem að er stefnt, að íslenzkir höfundar njóti verndar í Bandaríkjunum. Þess vegna er sú till., sem hér liggur fyrir, fram borin. Eins og ég sagði í upphafi, telur allshn. þetta réttmætt og mælir með till., en um leið og ég lýsi því, þá vildi ég mega beina því til hæstv. ríkisstj., menntmrh. og sennilega utanríkisráðh. einnig, sem mundi gera samninginn, að það þyrfti að reyna að hafa samninginn þannig, að verk höfunda, sem gefin voru út, áður en Ísland varð sjálfstætt ríki, því að þau geta verið til enn og eru til, t. d. tónverk, nytu einnig verndar. Mér hafði komið til hugar að bera fram viðaukatill. við þessa till. um þetta, að ríkisstj. væri falið að reyna að ná samningi um það, en ég sá við nánari athugun, að það átti nú ekki beinlínis við. Þar sem till. er aðeins um það að fela ríkisstj. að gera gagnkvæman samning um vernd höfundaréttinda, þá átti ekki við að fara að beina til hennar í þeirri sömu till. sérstakri áskorun um að hafa samninginn svona, heldur leyfi ég mér að beina þessu til hæstv. ríkisstj. og vona, að það nægi.