11.12.1953
Neðri deild: 37. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (378)

7. mál, gjaldaviðauki

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það gildir sama um þetta eins og 8. málið, vörumagns- og verðtollinn, að það eru framlengingar á gjöldum, sem ríkisstj. að vísu hvað eftir annað hefur lofað, að hún mundi reyna að létta að einhverju leyti af almenningi. Það er hins vegar svo nú, að þó að loforðin um skattaléttun hafi verið ítrekuð meira en nokkru sinni áður, þá virðist það eiga að ganga þannig á þessu þingi, að fyrst verði allir skattarnir afgreiddir og allar álögur framlengdar, og svo koma menn til með að sjá eftir bæjarstjórnarkosningar, hvernig muni verða með skattana. Ég býst hins vegar ekki við, að það sé neitt við þessu að gera. Þessi mál ganga áfram með þeim meiri hl., sem ríkisstj. hér hefur. Sumt af þessum gjöldum er ekki nema eðlileg hækkun, en með sumum þeirra er líka farið alveg óþarflega langt. — Ég vildi aðeins láta þessi orð fylgja, um leið og þetta frv. nú færi til nefndar.