12.10.1953
Sameinað þing: 5. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (403)
1. mál, fjárlög 1954
Forseti (JörB):
Umræðum þessum verður hagað þannig, að hæstv. fjmrh. flytur fyrst sína ræðu. Þá fer fram umræða eða ræður af hálfu stjórnmálaflokkanna. Hefur hver flokkur hálftíma til umráða, og verður talað af hálfu flokkanna í þessari röð: 1) Þjóðvfl., 2) Alþfl., 3) Sjálfstfl. og 4) Sósfl. Hver flokkur hefur hálftíma. Að þeim umr. loknum hefur hæstv. fjmrh. stundarfjórðungs ræðutíma til andsvara. Hefst þá umræðan. Hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, tekur til máls.