12.10.1953
Sameinað þing: 5. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (404)
1. mál, fjárlög 1954
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Samkv. því, sem venja er til, mun ég byrja á því að gefa yfirlit um afkomu ríkissjóðs á árinu 1952. Nú hefur verið útbýtt til hv. alþm. aðalreikningum fyrir það ár ríkissjóðs, og sé ég því ekki ástæðu til að lesa rekstrarreikninginn eða yfirlitið um eignahreyfingarnar, en það eru þau reikningsyfirlit, sem hér áður fyrr var venja að lesa í sjálfri fjárlagaræðunni, en það á að mega spara sér, þegar það liggur fyrir hv. alþm.
Samkv. rekstrarreikningi hafa rekstrartekjur ársins 1952 orðið 420 millj., en voru áætlaðar 376 millj. í fjárl. Rekstrarútgjöldin urðu 357 millj., en voru áætluð 332 millj. Rekstrarafgangur hefur því orðið 62 millj. í stað 43 millj., eins og áætlað var, eða 181/2 millj. fram yfir það, sem gert var ráð fyrir. Á hinn bóginn hafa ýmsar greiðslur fallið á ríkissjóð, sem eru settar á eignahreyfingar, umfram það, sem fjárlög gerðu ráð fyrir, og hefur því greiðsluafgangur farið minna fram úr áætlun en rekstrarafgangurinn, eða orðið rúmar 7 millj., 7 millj. og 300 þús., en var áætlaður tæpar 3 millj., eða nánar til tekið 2 millj. og 660 þús. Kem ég að því síðar.
Umframgreiðslur gjaldamegin á rekstrarreikningi nema 25 millj. og 300 þús. Eru það tiltölulega lægstu umframgreiðslur síðustu áratugi, að undanskildu árinu 1950, en þá voru þær enn þá lægri. Sé tillit til þess tekið, að 3 millj. og 200 þús. af þessari fjárhæð eru útborgaðar samkv. sérstökum lögum og þingsályktunum frá Alþingi sjálfu, þá verða hinar rannverulegu umframgreiðslur um 6,6% af heildarfjárhæð fjárl. Flestar umframgreiðslurnar eru þannig vaxnar, að ekki er sérstök ástæða til að gera þær að umtalsefni, þar sem þær eru smávægilegar og stafa yfirleitt af því, að áætlunarfjárhæðir hafa farið nokkuð fram úr áætlun, en við slíku verður aldrei að fullu séð fyrir fram. Verðlagsvísitalan reyndist nokkru hærri en gert var ráð fyrir í fjárl., og veldur það dálitlum umframgreiðslum og á sinn þátt í þeim í heild.
Varðandi einstaka liði þykir mér ástæða til að taka þetta fram:
Kostnaður við dómgæzlu og lögreglustjórn hefur farið 11/2 millj. fram úr áætlun. Eru það aðallega saka- og lögreglumálakostnaður, kostnaður við embætti héraðsdómara, mest þó vegna hækkaðrar verðlagsuppbótar, og svo kostnaður hæstaréttar við útgáfu hæstaréttardóma, sem einnig hefur farið nokkuð fram úr áætlun.
11. gr., innheimta tolla og skatta, var 1 millj. og 400 þús. kr. hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Á árinu 1952 var loks gerð upp við Reykjavíkurbæ þátttaka bæjarsjóðsins í kostnaði við skattstofuna undanfarin ár, en það mál hefur legið óútkljáð lengi. Það hefur verið gert ráð fyrir, að bæjarsjóður greiddi 1/3 af kostnaðinum, en niðurstaðan varð sú, að bæjarsjóður greiddi nokkru minni hluta af skattstofukostnaðinum. Samkv. hinni nýju reglu, sem um samdist, átti bærinn því inni á þessum reikningi, sem upp hafði verið settur yfir skattstofukostnaðinn, væntanlega þátttöku bæjarins, um 770 þús. kr., og varð að færa þá fjárhæð til gjalda og bæta því við skattstofukostnaðinn árið 1952. Er þetta því aðalástæðan fyrir þessari tiltölulega háu umframgreiðslu á þessum lið.
Þá kem ég að 13. gr., samgöngumálum. Þar eru umframgreiðslur mestar. Umframgreiðslur á vegamálum eru alls 4 millj. og 700 þús. kr., vegna viðhalds 2 millj. kr. og brúargerða 2 millj. kr. Stafar þessi umframgreiðsla til brúargerða sumpart af því, að brýr eyðilögðust, sem ekki hafði verið gert ráð fyrir í fjárl. að endurbyggja, og varð ekki hjá því komizt að leggja til þeirra.
Rekstrarhalli strandferðanna varð tæpum 5 millj. kr. hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Er það langstærsti umframgreiðsluliðurinn á reikningnum, og kemur ýmislegt til, að hallinn hækkaði svo mjög frá því, sem fjárl. gerðu ráð fyrir. Fyrst er það, að hallinn var of lágt áætlaður í síðustu fjárl., þar sem ekki þótti, þegar til kom, fært að hækka flutningsgjöld með ströndum fram. Þá kemur hér hækkuð verðlagsuppbót til greina, og verkfallið í desember varð einnig að nokkru tjóni fyrir strandferðaútgerðina, en langmestu valda hér viðgerðir á skipum, sem ekki hafði verið gerð grein fyrir fyrir fram, og aðrar viðgerðir, sem urðu dýrari en gert var ráð fyrir.
Þá er að minnast 14. gr. B., kennslumála. Umframgreiðslur á þeim lið hafa orðið um 3 millj. kr., og er það að nokkru afleiðing hækkaðrar vísitölu. Enn fremur hefur kostnaður við nokkra skóla orðið meiri en gert var ráð fyrir. Er þetta ekki óalgengt og stafar af því, að því er kennslumrn. upplýsir, hve ört fjölgar nemendum í skólum landsins, og þarf því sífellt að fjölga kennaraliðinu og auka annan kostnað. Virðist þessi nemendafjölgun ætíð vera örari en þeir gera ráð fyrir, sem ganga frá áætlunum fyrir fram um kostnað við kennslumál, en eins og gefur að skilja, verður að greiða kostnaðinn við skólahaldið lögum samkvæmt, hvað sem áætlunum líður.
Greiðslur vegna dýrtíðarráðstafana á 19. gr. fóru rúml. 2 millj. kr. fram úr áætlun. Stafar þetta af því, að sala á þeim vörum, sem niðurborgaðar eru, hefur orðið meiri en fyrir fram var ráð fyrir gert. Verður þessi fjárlagaliður ætíð ágizkun nokkur og ekki hægt að stöðva greiðslur til niðurborgana, þótt í ljós komi, að sala niðurgreiddra vara verði meiri að magni en áætlað er fyrir fram.
Greiðslur samkv. heimildarlögum, sérstökum lögum og þáltill. námu samtals 6 millj. og 200 þús., og eru helztu greiðslur samkv. heimildarlögum þessar: Til brimbrjóts í Bolungavík var enn greitt vegna skemmda í des. 1950 660 þús., og hefur þá verið greitt talsvert á aðra milljón vegna þeirra skemmda. Til hafnarsjóðs Húsavíkur var greitt vegna gamals samnings við síldarverksmiðjur ríkisins 240 þús. kr. Til hafnargerðar á Dalvík vegna skemmda 1950 317 þús. kr.
Samkvæmt sérstökum lögum eru þessar greiðslur helztar: Varnir gegn gin- og klaufaveiki 119 þús. Vegna laga um vátryggingu fyrir fiskiskip, — það eru eins konar Ábyrgðargreiðslur, þ.e. greiðslur fyrir þau bátaábyrgðarfélög, sem hefur rekið upp á sker fjárhagslega, — 203 þús. Vegna varnarsamnings, aðallega kostnaður við landkaup vegna varnarráðstafana, 832 þús.
Samkvæmt væntanlegum fjáraukalögum voru greiddar um 2 millj., og stærstu liðirnir eru þessir: Til fiskiðjuvers í Ólafsfirði 150 þús. Vegna hafnargerðar á Þórshöfn, raunar samkv. sérstakri heimild, — svo að spurning er, hvort sá liður á nú þarna heima, en hann er nú færður þarna í reikningnum samt, — 420 þús. kr. Loks lögboðið framlag til Reykjavíkurbæjar vegna hluta hans af stofnkostnaði fæðingardeildar 1 millj. 235 þús. kr. Þetta er líka lögboðið framlag og vafasamt, að það eigi heima þarna undir væntanlegum fjáraukalögum, en það er nú sett þar samt í reikningnum. Reykjavíkurbær átti rétt á greiðslu þessari samkv. lögum um byggingu sjúkrahúsa, en fé hefur ekki verið áætlað til þess í fjárl., en það þótti ekki lengur hugsanlegt að draga að gera upp þessi viðskipti.
Ég kem þá að greiðsluniðurstöðu ársins 1952. Eins og ég sagði áðan, þá var rekstrarafgangur 62 millj. rúmar. Við bætast innborganir á fjárlagaliði 20. gr., 13 millj. og 700 þús. kr. samtals, en frá dragast, þegar íhuga þarf um rekstrarniðurstöðuna, útborganir á fjárlagaliðum af 20. gr., sem nema samtals 45 millj. og 800 þús., enn fremur greiðslur á 20. gr. utan fjárlaga: keyptar fasteignir 2 millj. og 600 þús., sem er sendiherrabústaðir og eignir til afnota fyrir sendiráðin erlendis; aukið rekstrarfé ríkisstofnana 2 millj. kr. og ýmsar lánveitingar af eigin fé ríkissjóðs, sem nema um 18 millj. kr. Verða þá samtals útborganir á 20. gr., sem koma til frádráttar, þegar finna þarf niðurstöðuna, greiðsluhalla eða afgang, 68 millj. og 700 þús. kr., og telst þá greiðsluafgangur vera, eins og ég sagði áðan, rúmar 7 millj., en var áætlaður í fjárl. tæpar 3 millj., eða um 2 millj. og 700 þús.
Af þessum 18 millj. kr., sem taldar eru til útlána af ríkisfé, eru 7 millj. kr. eftirstöðvar af andvirði 10 togara, sem ríkissjóður lét byggja í Bretlandi, og eru það síðustu lokaeftirstöðvarnar af andvirði þessara skipa, en vegna þess að ekki hefur fengizt lán í Bretlandi handa ríkinu til að greiða hluta af andvirði togaranna þrátt fyrir mjög miklar og ýtarlegar tilraunir, þá hefur orðið að leggja þetta fé út beinlínis hér heima og yfirfæra það. Þá er undir þessum lið einnig lán til atvinnuaukningar samkv. sérstakri þál. 41/2 millj., enn fremur lán til ríkisútvarpsins vegna fjárhagserfiðleika þess 1 millj. kr. og útlagt vegna vélakaupa í sambandi við lýsisherzluverksmiðju, sem einu sinni átti að reisa, en ekkert hefur orðið úr, um 600 þús. kr., auk þess ýmsar smærri fjárhæðir, sem ekki hefur orðið komizt hjá að festa. Fylgir nákvæm sundurliðun í þeim prentaða landsreikningi, sem ég vona að útbýtt verði til hv. alþm. ettir nokkra daga, og sé ég ekki ástæðu til að rekja það nánar hér.
Skuldir ríkissjóðs námu í árslok 1952 490 millj. kr., og á árinu 1952 tók ríkissjóður á hinn bóginn lán hjá Alþjóðabankanum og Marshallstofnuninni vegna áburðarverksmiðjunnar og enn fremur lán vegna skuldaskílasjóðs útvegsmanna. Námu þessi lán samtals 35 millj. kr., og eru þau talin með í þessari tölu, sem ég nefndi, um ríkisskuldirnar. Er ríkissjóði hins vegar ekki ætlað að standa undir þessum lánum. Enn fremur er talinn með í skuldunum sem geymslufé innheimtur stóreignaskattur. Er það gert vegna þess, að honum ber að verja í sérstöku augnamiði. Hefur bætzt við þann lið á árinu 21.6 millj. kr., nær allt í skuldabréfum. Þegar þessar fjárhæðir hafa verið teknar til greina, kemur fram, að aðrar skuldir nema 433 millj. og 600 þús. í árslokin, og verður þá ljóst, að skuldir þær, sem ríkissjóður stendur sjálfur straum af, hafa lækkað um 17 millj. og 300 þús. á árinu 1952. Svarar það hér um bil alveg til þeirra föstu umsömdu afborgana, sem eiga að vera á föstum lánum ríkisins samkv. reikningnum, og sést það á 20. gr.
Þessi afkoma má viðunandi teljast, og hefur rætzt allvel úr fyrir árið 1952, þótt að ýmsu leyti væri andstætt árferði. Einkum báru menn kvíðboga fyrir, hversu mundi fara, þegar ljóst varð, að síldveiðarnar höfðu algerlega brugðizt sumarið 1952.
Auðséð er á ríkisreikningnum fyrir árið 1952 og því, sem ég hér hef upplýst, og öðrum reikningsskilum ríkisins undanfarið, að búið er að vefja ríkissjóð slíkum skuldbindingum í ábyrgðum og alls konar afskiptum af atvinnurekstri, að á hverju ári þarf talsvert fé umfram það, sem hægt er að sjá fyrir, þegar fjárl eru afgr., til þess að mæta afleiðingum þessara skuldbindinga, sem koma fram með mörgu móti og úr öllum áttum svo að segja. Þetta sést á því, hvernig ríkissjóður hefur sífellt orðið að leggja aukið rekstrarfé til ýmissa starfsgreina sinna og leggja út fé með mörgu öðru móti vegna viðskipta, sem ríkið hefur haft afskipti af að tilhlutan Alþingis. Sérstaklega vil ég benda þeim, sem áhuga hafa á að athuga þessi aukaviðskipti ríkisins, ef svo mætti segja, á að athuga útgjöldin á 20. gr. undanfarin ár og þann lið, sem heitir „veitt lán“ og ég var að ræða um áðan, þar sem mjög stórar fúlgur koma oft, sem þarf að leggja út og ómögulegt er að sjá fyrir. Það er því augljóst, að séu fjárl. ekki sæmilega varlega afgr., má búast við greiðsluhalla af þessum ástæðum.
Um afkomu ríkissjóðs á yfirstandandi ári get ég ekkert fullyrt. Teflt var á tæpasta vað við afgreiðslu fjárl. fyrir þetta ár. Á ég þar einkum við hinar stóru fúlgur, sem ríkissjóður tók á sig í sambandi við lausn vinnudeilunnar í fyrravetur, en þær munn hafa numið samtals um 20 millj. kr., mest til þess að lækka verð á vörum í viðskiptum. Þótti þetta þó betra úrræði en að stórfellá almenn kauphækkun yrði, sem hefði hlotið að hafa í för með sér gengislækkun eftir stuttan tíma. Hins vegar ætti engum að hafa dulizt, í hverju lausnin var í raun og veru fólgin. Lækkun dýrtíðarinnar, sem þá var framkvæmd, var nálega ekki fólgin í öðru en því, að nokkuð af þeim fjármunum, sem innheimtir eru með tollum og sköttum, er borgað út aftur til þess að lækka verð á vörum. Ef ekki hefði þurft að grípa til þessa, hefði verið hægt að gera annaðhvort: lækka tolla og skatta sem svaraði þessum fjármunum, eða verja tilsvarandi fjárhæð á annan hátt mönnum að gagni, t.d. til lausnar húsnæðisvandamálinu, svo að dæmi sé tekið, en það mál er ekki sízt vandamál ungu kynslóðarinnar og raunar þjóðarinnar allrar, eins og menn þekkja allt of vel. En sama fé verður ekki notað í senn til þess að lækka vöruverð í búðunum og til þess að standa undir þýðingarmestu framkvæmdum, svo sem íbúðarhúsabyggingum eða öðrum slíkum.
Fjárlagafrv. það fyrir árið 1954, sem ég mun ræða hér á eftir, ber ljóslega með sér, að hin nýja stórfellda útgjaldaaukning ríkissjóðs vegna lausnar vinnudeilunnar í fyrravetur verður til þess, að ríkissjóður getur ekki á næstunni lagt fram aukið fjármagn að ráði til fjárfestingar, nema ráðizt verði í að auka enn tekjur ríkissjóðs með nýrri tekjuöflun, og heyrist mér það ekki þykja fýsilegt. Þetta benti ég rækilega á við afgreiðslu fjárl. á síðasta Alþingi, við 3. umr. sér í lagi, þegar hinir nýju atburðir höfðu gerzt, en á þetta er ekki síður þörf að minna nú, vegna þess að seint mun fjárhagsmálum haganlega skipað né hyggilega fyrir alþýðu hag, nema almennur skilningur sé ríkjandi á því, að eftir því sem meira af þjóðartekjunum er varið til neyzlu, eftir því verður minna fé handbært til framkvæmda. Á hinn bóginn verður þetta ár, sem er að líða, að mörgu leyti góðæri, tekjur óvenjumiklar hjá mörgum. Hér við bætist, að ríkissjóður fær óvenjulegar tolltekjur í ár af innflutningi véla til stóru framkvæmdanna þriggja. Vona ég því, að afkoma ríkissjóðs verði vel viðunandi á þessu ári. Mun ég gefa fjvn. og hv. Alþingi upplýsingar um horfur í þessum efnum, þegar betur sést, hvert stefnir. Þetta breytir á hinn bóginn því miður ekki því, að við munum fá okkur fullkeypta um það er lýkur við afgreiðslu greiðsluhallalausra fjárl. fyrir næsta ár. Valda því hinir miklu baggar, er bundnir hafa verið.
Margir bera mikinn kviðboga fyrir afkomu þjóðarinnar út á við vegna þess, hve hallinn á verzlunarskýrslunum er og hefur verið mikill. Árið 1952 voru hingað fluttar vörur fyrir 767 millj. kr. á fob.-verði, en útfluttar fyrir 640 millj. á fob.-verði. Vöruskiptahalli var því mikill. En hér kemur margt fleira til, svo sem kunnugt er, bæði til gjalda og tekna á greiðslureikningi út á við, þegar hann er gerður upp. Nokkuð af innflutningnum er vélar og efni, sem borgað er með fjárfestingarlánum, fengnum erlendis. Enn fremur hefur verið flutt inn í landið Marshallfé. Kemur það teknamegin á greiðslureikninginn, meðan þess nýtur við, þótt ekki sé hægt að gera ráð fyrir því til frambúðar, eins og ég kem að síðar. Þegar þetta er tekið með í reikninginn, mun láta nærri, að greiðslujöfnuður við útlönd hafi náðst á árinu 1952, gjaldeyrisinnstæður hafi staðið nokkurn veginn í stað.
Gert var ráð fyrir því, að árið 1951 yrðu notaðar um 100 millj. kr. af Marshallfé til venjulegra vörukaupa. Nú er álitið, að á árinu 1952 hafi verið notaðar um 45 millj. kr. af Marshallfé til venjulegra vörukaupa, eða rúmlega helmingi minna en árið áður. Á þessu ári er aftur á móti gert ráð fyrir, að notaðar verði til venjulegra vörukaupa um 69 millj. kr. af Marshallfé. Yrði það þá heldur meira en árið 1952, en mun minna en árið 1951. Ástæðan til þess, að heldur meira verður notað nú í ár en í fyrra í þessu skyni, er sú, að Bandaríkjamenn létu í té sérstaka efnahagsaðstoð á þessu ári til þess að ljúka stóru fyrirtækjunum þremur. Var ekki þörf á því fé til þess að kaupa vélar eða efni til þeirra fyrirtækja erlendis. Féð var lagt fram vegna innanlandskostnaðar við fyrirtækin, eða m. ö. o. til þess að mæta þeirri auknu eftir spurn eftir erlendum gjaldeyri, sem hlaut að koma fram við það, að stórum meira fé þurfti að taka og lána út til þessara fyrirtækja úr mótvirðissjóði á árinu en í hann hefði komið á árinu, ef þessi aukna aðstoð hefði ekki verið í té látin.
Nú hættir Marshallaðstoðin, og verða Íslendingar eins og aðrir að sjá málum sínum borgið án þess að fá slíkan beinan stuðning. Á það að vera vorkunnarlaust. Við munum finna minna til þeirra breytinga, sem þetta veldur í þjóðarbúskap okkar, vegna þess, að síðustu árin höfum við notað meginhlutann af Marshallfénu til fjárfestingar beint eða óbeint, einkum til að koma upp hinum þremur stóru fyrirtækjum: Sogsvirkjun, Laxárvirkjun og áburðarverksmiðju. Allt öðru máli hefði gegnt, ef áfram hefði verið haldið á þeirri braut, sem upphaflega var gengin, þegar meginhluta Marshallfjárins var varið til venjulegrar neyzlu eða eyðslu vegna þess stórfellda halla, sem var á ríkis- og þjóðarbúskapnum fyrir gengisbreytinguna og stefnubreytingu þá, sem varð í fjármálum árið 1950. Sú stefnubreyting í fjármálum, sem þá varð, hefur komið í veg fyrir, að Marshallféð allt sogaðist í hallahítina og yrði þannig að eyðslueyri.
Marshallaðstoð Bandaríkjanna er tvímælalaust ein merkasta framkvæmd, sem sögur fara af. Því átaki Bandaríkjaþjóðarinnar mun ekki verða gleymt í löndum þeim, sem hennar hafa notið, og það mun verða metið, meðan saga er sögð og skráð. Það þurfti meira en litla framsýni til þess að skilja nauðsyn þess að styrkja Evrópu með gífurlegum beinum styrkjum eða beinum fjárframlögum eftir styrjöldina. Það þurfti líka meira en að sjá þetta og skilja, til þess að Marshallhjálpin kæmist í framkvæmd. Ekkert var hægt að gera, nema Bandaríkjaþjóðin samþykkti að leggja á sjálfa sig skatta, til þess að hægt væri að gefa í önnur lönd hinar gífurlegu fjárhæðir, sem hér var þörf á, ef forða skyldi frá öngþveiti algeru í Evrópu. En þetta gerði Bandaríkjaþjóðin og sýndi með því meiri framsýni og þegnskap en áður hefur þekkzt í slíkum málum. Með framkvæmd Marshallaðstoðarinnar hefur verið komið í veg fyrir stórkostlega viðskiptakreppu og miklum mannfjölda forðað frá atvinnuleysi, örbirgð og hvers konar þjáningu.
Ég kem þá að fjárlagafrv., sem hér er nú til 1. umr.
Rekstrartekjur í þessu frv. eru áætlaðar 427 millj. kr., en 418 millj. á gildandi fjárlögum. Rekstrargjöld eru áætluð 389 millj., en 380 millj. á gildandi fjárl. Eru því rekstrargjöldin áætluð 9 millj. kr. hærri en í gildandi fjárl. Útborganir á 20. gr. eru aftur á móti áætlaðar 2 millj. kr. lægri í þessu frv. Heildargreiðslurnar eru því áætlaðar 7 millj. kr. hærri. Er það um 1.6% hækkun á gjöldunum. Má því segja, að gert sé ráð fyrir því sem næst sömu útgjöldum í þessu fjárlagafrv. og fjárl. þeim, er nú gilda fyrir árið 1953. Þessi heildarhækkun á frv. svarar a.m.k. ekki meira en til þeirrar hækkunar á fjárl., sem yfirleitt verður frá ári til árs að óbreyttri útgjaldalöggjöf og fjárveitingum til verklegra framkvæmda. Mikið af útgjaldalöggjöfinni er sem sé þannig vaxið, að með aukinni fólksfjölgun í landinn aukast útgjöld ríkisins af sjálfu sér ár frá ári.
Greiðsluafgangur á þessu fjárlagafrv. er ráðgerður 1 millj. 6f6 þús. kr., eða nærfellt sá sami og gert er ráð fyrir í gildandi fjárl.
Vegna þess, hve fjárlagafrv. þetta er líkt núgildandi fjárl., gerist ekki þörf að rekja mjög ýtarlega einstaka liði, en ég mun geta um nokkra, sem eru frábrugðnir.
Tekinn er nú upp áætlaður kostnaður við sendiráðið í Moskvu 1 millj. kr. Sovétríkin hafa ákveðið að eiga á ný viðskipti við Íslendinga, og hefur því náðst við þau allstór viðskiptasamningur. Er framkvæmd hans mjög þýðingarmikil, og hefur því leyfi þótt annað koma til mála en að skipa sendiherra búsettan í Moskvu til þess að fylgjast með og greiða fyrir öllum þeim málum af Íslands hendi. Verður það vafalaust mikið verk.
Löggæzlukostnaður á Keflavíkurvelli hefur aukizt nokkuð af skiljanlegum ástæðum. Kostnaður við innheimtu tolla og skatta er settur nokkru hærri í þetta frv. en í gildandi fjárl. Þar er í raun réttri um leiðréttingu að ræða, þar sem sá kostnaður hefur undanfarið jafnan verið of lágt áætlaður miðað við reynslu.
Kostnaður við heilbrigðismál á 12. gr. eykst um rúma 1 millj. kr. Fer kostnaður víð heilbrigðismál sífellt og ört hækkandi. Aukinn halli af sjúkrahúsum ríkisins er áætlaður 650 þús. kr. Koma hér m.a. til greina tvær nýjar stofnanir: fávitahælið í Kópavogi og blóðbankinn.
Rekstrarútgjöld sjúkrahúsanna aukast m.a. vegna lengingar á sumarleyfum, sem ákveðin voru á s.l. vetri. Þá aukast einnig greiðslur ríkisins vegna sjúkrahúsvistar sjúkra manna og örkumla. Fer þessi kostnaður síhækkandi frá ári til árs og veldur því, að ríkið greiðir yfirleitt legukostnað vegna langvarandi sjúkdóma, þegar menn fá sjúkrahúsvist, en annars ekki.
Þegar sjúkrahúsin eru stækkuð og nýjum heilbrigðisstofnunum komið á fót, aukast því útgjöld ríkissjóðs, bæði vegna rekstrarhalla, sem ætíð er á þessum stofnunum, og einnig af því, að þá koma nýir sjúklingar á ríkisframfæri, sem áður voru það ekki. Nemur þetta árlega talsverðum fjárhæðum, jafnótt og áleiðis gengur um aukningu sjúkrahúsanna. Má á það benda, að af 619 þús. kr., sem eru áætluð daggjöld í tekjum nýja fávitahælisins, greiðir ríkissjóður nær 500 þús. kr. Hið sama er að segja um tekjuaukningu Kleppsspítalans vegna nýju deildanna þar. Ríkissjóður greiðir yfirleitt 1/5 af þessum tekjuauka. Í áætlun blóðbankans er t.d. gert ráð fyrir 100 þús. kr. tekjum af blóðrannsóknum, en þetta fé er aftur tekið frá rannsóknarstofu háskólans, og eykst rekstrarhalli hennar sem þessum tekjum blóðbankans nemur.
Það skal tekið fram, að fyrir liggja beiðnir frá forstöðumönnum ýmissa ríkissjúkrahúsa um fjölgun á starfsfólki, en fæstar þeirra hafa menn séð sér fært að taka til greina í fjárlagafrv. Verður vafalaust að athuga í samráði við fjvn., hvort hægt er að standa á móti þessum óskum, eins og þó hefur verið gert fram að þessu. Dreg ég í efa, að það sé fært.
Nú eru í byggingu mörg stór sjúkrahús og mörg þeirra langt komin áleiðis. Mun rekstur þeirra valda ríkissjóði enn auknum útgjöldum til heilbrigðismála, og gildir það um þau öll, bæði þau, sem ríkið reisir sjálft, og eins þau, sem héruðin koma upp, eins og ég hef minnzt á hér að framan. Fram að þessu hefur ríkið styrkt sjúkrahús þau, sem héruðin reka, lítils háttar sum, en ekki verulega. En nú er svo komið um þau mál, að ríkisstj. leggur fyrir þetta þing stjfrv. um talsvert aukna rekstrarstyrki til sjúkrahúsa þeirra, sem héruðin reka. Mun það frv. auka útgjöld ríkisins um 1 millj. kr. á næsta ári og sennilega 11/2–2 millj. kr. árlega úr því fyrst um sinn, og svo vaxandi eftir því sem sjúkrahúsin stækka eða þeim fjölgar.
Það er augljóst af þessu öllu, að gera verður ráð fyrir mjög auknum kostnaði til heilbrigðismála á næstu árum, enda full þörf endurbóta í þeim málum. En menn verða bara að gera sér grein fyrir því, að endurbætur allar í þessum efnum kosta peninga.
Framlag til sýsluvega er í frv. hækkað um 550 þús. kr. í samræmi við lög frá síðasta Alþingi. Enn fremur hækka orlofsfjárgreiðslur vegna vegagerðarinnar um 225 þús. kr., sumpart vegna þess að orlofsfjárgreiðslur voru hækkaðar s.l. vetur.
Þá eru það strandferðirnar. Rekstrarhalli á strandferðum er áætlaður 61/2 millj. kr., og er það tæplega 11/2 millj. hærra en í fjárl. þessa árs, en þó sízt hærra en hallinn verður á þessu ári, en nokkru lægra en hallinn varð 1951. Verður ekki komizt hjá því að greiða þennan halla, nema menn vilji hækka öll flutningsgjöld með ströndum fram, og munu menn tregir til þess.
Framlög til menntamála eru í frv. nær 21/2 millj. hærri en í gildandi fjárl. Nokkuð af þessari hækkun stafar af því, að leiðrétt er skekkja fræðslumálaskrifstofunnar á útreikningi verðlagsuppbótar frá því áður. En annars hækkar kostnaður við menntamál ár frá ári, af því að nemendum fjölgar í skólum og þar af leiðandi eykst kostnaður við kennsluna, eins og ég gat um áðan í sambandi við ríkisreikninginn 1952. Þetta á bæði við um framhaldsskóla og barnaskóla. Þannig mun t.d. láta nærri, að liðurinn „barnakennaralaun“ hækki um 500 þús. kr. árlega.
Framlög til jarðræktarframkvæmda eru áætluð um 950 þús. kr. hærri en í fjárl. þessa árs, og er það miðað við reynsluna, því að jarðræktarframkvæmdir fara vaxandi ár frá ári.
Kostnaður vegna sauðfjársjúkdóma lækkar aftur á móti um 7 millj. og 400 þús. Eru það fjárskiptabætur, sem lækka mjög mikið frá því, sem áður hefur verið. Eins og menn vita, þá er nú þeirri stórkostlegu framkvæmd lokið, fjárskiptaframkvæmdinni, og sem betur fer eru allar horfur á því, að það hafi tekizt mjög giftusamlega að ráða fram úr því stórkostlega vandamáli, sem mæðiveikin var, með þessum merku og miklu framkvæmdum. Einhver kostnaður verður næstu ár áfram vegna þess arna, en þó lækkandi ár frá ári, og lækkar sem sagt um 7 millj. og 400 þús. kr. í þessu frv. frá því í gildandi fjárlögum.
Á 16. gr. B. er nýr liður til kaupa og uppsetningar á asdie-tæki í varðskipið Ægi, 800 þús. kr. Hefur lengi verið reynt að útvega slíkt tæki og tókst nú. Var það þá keypt án tafar og sett í Ægi, þótt ekki væri fjárveiting fyrir hendi. Þótti ekki til mála koma að draga deginum lengur að kaupa tækið og setja í skip, og er nú leitað fjárveitingar eftir á í fjárlagafrv.
Framlög til nýrra raforkuframkvæmda eru aukin í frv. um 7 millj. kr. í samræmi við málefnasamning núverandi ríkisstj. og settur inn nýr liður vegna virkjunarrannsókna í stórám landsins, 400 þús. kr.
Á 17. gr. hækkar framlag til jöfnunarsjóðs um 250 þús. kr. Er þetta áætluð fjárhæð, og sýnist þurfa að hækka hana um þetta, til þess að hægt sé að standast lögboðin framlög vegna fátækraframfæris sveitarfélaga, en ríkissjóður á að leggja þar nokkuð til eftir lögunum.
Þá kem ég loks að framlögum vegna dýrtíðarráðstafana. Fjárvelting í því skyni nemur í gildandi fjárl. 36 millj. og 800 þús., en er á þessu frv. 43 millj. og 500 þús. Þessi áætlun um niðurgreiðslur var byggð á því, að sömu reglum um niðurgreiðslur yrði fylgt á næsta ári og gert var í ár. Gert var sem sé ráð fyrir því, að 7 millj. kr. meira þyrfti á næsta ári til þess að greiða eftir sömu reglu og greitt var í ár heldur en á gildandi fjárl. stendur. Hér kemur þrennt til: Áætlun um kostnað við niðurgreiðslu á kartöflum reynist of lág á fjárl. þessa árs og líka dálítið of lág áætlun um niðurgreiðslu á mjólk. Og þetta á við um kartöflurnar jafnvel miðað við venjulega uppskeru. Gera má ráð fyrir aukinni nýmjólkursölu ár frá ári. Loks kemur til stóraukin kartöfluuppskera. Útlendar kartöflur munu ekki verða á markaðnum hér á næsta ári, og verður við það aukning á kostnaði við að greiða niður kartöflur.
Nú ber að geta þess, að síðan gengið var frá fjárlagafrv. hefur ríkisstj. ákveðið að greiða 10 aurum meira niður á hvern mjólkurlítra en áður var til þess að fyrirbyggja hækkun mjólkur í útsölu í haust. Veldur þetta sennilega 2 millj. og 400 þús. kr. útgjöldum umfram það, sem greinir í fjárlagafrv., og verður að hækka þennan lið sem því svarar við meðferð málsins. Verða þá dýrtíðargreiðslur komnar upp í 46 millj. kr. Til samanburðar má geta þess, að árið 1952 voru þessar greiðslur komnar niður í 27 millj. tæpar. M.ö.o.: þær ráðstafanir til aukinnar niðurgreiðslu, sem gerðar voru í fyrravetur og aftur nú í haust í framhaldi af því, munu kosta hátt í 20 millj.
Til þess að gefa mönnum ofur litla hugmynd um, hvaða áhrif þessi niðurgreiðslupólitík hefur á fjárhagsafkomu ríkisins, tekjuþarfir ríkissjóðs og möguleika hans til þess að sinna öðrum verkefnum, þykir mér rétt að upplýsa, að á þessu fjárlagafrv. eru fjárveitingar til allra nýrra verklegra framkvæmda, þar með taldar allar fjárveitingar til byggingarframkvæmda, jarðræktarstyrkurinn og allt það, sem með réttu móti er hægt að tína til, samtals 66 millj., en niðurgreiðslurnar eiga að verða 46 millj.
Þá er þess loks að geta varðandi einstaka liði fjárlagafrv., að fjárveitingar til nýrra vega og brúa, til nýrra hafnargerða, til nýrra skóla, til sjúkrahúsabygginga og annarra slíkra verklegra framkvæmda eru yfirleitt settar jafnháar í þetta fjárlagafrv. og þær voru í fjárlagafr. fyrrv. ríkisstj. fyrir yfirstandandi ár, sem lagt var fyrir Alþingi í fyrrahaust. Munu þessar fjárveitingar vera samtals rúml. 4 millj. kr. lægri en Alþ. gekk frá þeim í gildandi fjárlögum.
Heildarblærinn á fjárlagafrv. er því sá, að framlög til nýrra raforkuframkvæmda eru hækkuð um 7 millj. og 400 þús. Framlög til annarra verklegra framkvæmda munn vera rúmum 4 millj. lægri en í gildandi fjárl. Framlög til verklegra framkvæmda í þessu fjárlagafrv. eru því hærri en á gildandi fjárl. Framlög vegna sauðfjárveikivarna lækka um rúml. 7 millj., eins og ég gat um áður, en framlög vegna dýrtíðarráðstafana, þ.e.a.s. framlög til þess að borga niður verð á ýmsum vörum á innanlandsmarkaði, hækka um 6 millj. og 700 þús. frá gildandi fjárl., en verða að hækka enn til viðbótar um 2 millj. og 400 þús.
Hækkun sú, sem verður á heildarútgjöldum á fjárlagafrv., stafar sumpart af hækkuðum framlögum til verklegra framkvæmda, en sumpart af óhjákvæmilegum hækkunum lögboðinna útgjalda. Eftirtektarvert er, að hefði aukningin á dýrtíðargreiðslunum frá því, sem þær eru á gildandi fjárl., ekki komið til, þá hefði fjárlagafrv. ekki hækkað neitt frá gildandi fjárl. Og ef niðurgreiðslurnar hefðu ekki verið auknar í fyrravetur, þá hefði fjárlagafrv. nú í fyrsta sinn um langan tíma getað lækkað frá því, sem verið hefur.
Í þessu fjárlagafrv. er ekki sérstök fjárveiting eða heimild fyrir ríkisstj. til þess að verja fé vegna atvinnuaukningar, þar sem sérstaklega stendur á, en í gildandi fjárl. er heimild í þessu skyni. Þetta mál er í athugun hjá ríkisstj., og þótti því réttara að láta tillögur um þetta efni bíða af því tilefni. Munu till. ríkisstj. hér að lútandi koma fram síðar í sambandi við meðferð fjárl. á Alþingi.
Um tekjuáætlun fjárlagafrv. vil ég taka þetta fram: Tekjur af tollum og sköttum eru áætlaðar álíka háar og í gildandi fjárl., en þó ívið hærri. Reynsla þessa árs virðist benda til enn sem komið er, að þetta sé nærri lagi, þegar tekið er tillit til þess, að á yfirstandandi ári nýtur ríkissjóður sérstakra tekna af innflutningi til stóru fyrirtækjanna þriggja. Aftur á móti kemur það í ljós, að óhætt ætti að vera að hækka áætlaðan hagnað tóbakseinkasölunnar, og er áætlunin hækkuð um 4 millj. kr. Tekjur áfengisverzlunarinnar virðast ætla að fara talsvert fram úr áætlun á þessu ári og verða óvenjulega miklar, og þykir því óhætt að áætla rekstrarhagnað þess fyrirtækis óbreyttan á næsta ári frá því, sem hann nú er á fjárl., enda þótt búast megi við eitthvað lækkuðum tekjum fyrst í stað, a.m.k. vegna lokunar nokkurra áfengisútsala.
Þessa tekjuáætlun er sjálfsagt að endurskoða í samráði við hv. fjvn., þegar meira er vitað um tolltekjur í ár en enn þá liggur fyrir. Það sem af er þessu ári hafa tolltekjur ekki vaxið verulega frá því, sem þær voru áður, né innflutningurinn þrátt fyrir stóraukna kaupgetu frá því í fyrra. Stendur þetta vafalaust að einhverju leyti í sambandi við það, að vörubirgðir í landinu hafa verið að aukast undanfarið og innflutningur því verið meiri en neyzlan, a.m.k. áreiðanlega 1951, sennilega líka 1952. Áherzla hefur því líklegast verið lögð á það nú á þessu ári að reyna að minnka vörubirgðir og talsvert verið selt af áður innfluttum vörum.
Hér kemur einnig til greina, að nú hefur um nokkurra missira skeið verið allmikið úrval af vörum á boðstólum eftir hinn mikla vöruskort, sem áður átti sér stað, og hafa vörukaup manna því sennilega verið tiltölulega mikil og menn ef til vili gengið á lausafé sitt í fyrra t.d. og árið 2951, þar sem það var til, til þess að bæta úr brýnni nauðsyn og kaupa varning, sem áður var ófáanlegur. Aukast vörukaup og innflutningur því ekki í réttu hlutfalli við auknar tekjur, og kemur það þá einnig þannig fram, að sparnaður verður meiri en áður, menn leggja meira fyrir, enda augljóst á reikningsuppgjöri bankanna, að sparisjóðsinnlög aukast nú mun meira en áður hefur verið. Er rík ástæða til þess að gleðjast yfir þeirri þróun, og mundi það verða grundvöllur vaxandi velmegunar og framfara, ef framhald gæti orðið á því.
Ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar hafa ákveðið að beita sér fyrir samþykkt nýrra skatta- og útsvarslaga, m.a. með það fyrir augum að lækka beinn skattana, einkum til að bæta úr því ósamræmi, sem orðið hefur vegna verðþenslunnar undanfarin ár og breytinga á gildi peninganna. Skattstigarnir hafa staðið óbreyttir að öðru leyti en því, að skattur var lækkaður að tilhlutun fyrrv. ríkisstj. af lágum tekjum og tekjur einstaklinga að vissu marki hafa verið umreiknaðar, sem kallað er. Eru því beinir skattar orðnir í sjálfu sér hærri en löggjafinn hefur ætlazt til, þegar skattalögin voru sett. Þá er brýn nauðsyn að ívilna í sköttum til þess að auka sparnað, endurskoða ákvæðin um persónufrádrátt, skattgreiðslu hjóna, skattgreiðslu félaga og lagaákvæðin um útsvör, svo að dæmi séu nefnd um þau atriði, sem taka verður til meðferðar. Leyfi hefur enn þá verið gengið frá þessum málum og því ekki hægt að vita, hvaða áhrif hin nýja löggjöf hefur á tekjur ríkissjóðs af beinum sköttum. Þótti því ekki annað fært en að áætla þann lið jafnháan í þessu fjárlagafrv. og í gildandi fjárl. Kemur þá hér til greina sérstaklega, að tekjur hafa yfirleitt orðið mun meiri almennt á þessu ári, sem er að líða, en áður, og kemur því lækkun á beinum sköttum ekki á sama hátt fram sem rýrnun á þessum tekjulið fyrir ríkissjóð og verða mundi, ef tekjur almennt hefðu á yfirstandandi ári orðið ámóta og verið hefur eða rýrari.
Það er ekki óvenjulegt að heyra kröfur um, að ríkisútgjöldin verði lækkuð. Mun ég fara um það mál fáeinum orðum.
Í fjárlagaræðunni í okt. s.l. varpaði ég fram þessari spurningu: Er hægt að lækka ríkisútgjöldin? Spurningunni svaraði ég sjálfur með því að ræða um útgjöldin nokkuð, og um þetta ályktaði ég þá orðrétt þannig:
„Það er auðvitað hægt að lækka ríkisútgjöldin. Þau eru að vísu flest lögboðin beint eða óbeint eða afleiðing laga, sem Alþ. hefur samþ., en vitaskuld er hægt að breyta lögum, ef menn vilja og telja það réttmætt. Það er sem sagt hægt að lækka ríkisútgjöldin, en ekki svo um muni, nema með því að draga úr þeirri þjónustu eða þeim hlunnindum, sem ríkið veitir þegnunum.“
Í eldhúsumræðunum s.l. vetur tók ég þetta efni ýtarlega fyrir og benti á, að af 400 millj. kr. útgjöldum fjárlagafrv., sem þá lá fyrir, væru 375 millj. kr. eftirtaldir liðir: vextir, dómgæzla og lögreglustjórn, þar með landhelgisgæzla, læknaskipun og heilbrigðismál, samgöngumál, kirkjumál, til bókmennta, lista og rannsókna, til atvinnuveganna, til félagsmála, til eftirlauna, til afborgana af ríkislánum og vegna ríkisábyrgða og loks til nokkurra byggingarframkvæmda á 20. gr.
Síðan sagði ég orðrétt:
„Eftir eru þá ótaldar um 25 millj. kr., og er það kostnaður við ríkisstarfræksluna í þrengstu merkingu, utanríkisþjónustan, skatta- og tollinnheimta og sameiginlegur embættiskostnaður yfirleitt. Þessi kostnaður nemur um 61/2% af útgjöldunum.“
Enn fremur sagði ég um þetta:
„En til þess að fá mynd af málinu skulum við gera okkur í hugarlund, að einhver hinna miklu sparnaðarkappa kæmi til sögunnar og hann kæmi á 15%, — eða til þess að vera ekki of smátækir skulum við segja 20% lækkun á þessum heina starfrækslukostnaði. Slíkt átak mundi þýða 5 millj. kr. sparnað, eða 1.2% lækkun á ríkisútgjöldunum.“
Enn fremur sagði ég:
„Enn fremur er það alveg augljóst mál af þessum upplýsingum, að engir möguleikar eru til þess, hvorki fyrir þá stjórn, er nú situr, né aðrar stjórnir eða þingmeirihl, að færa niður ríkisútgjöldin þannig, að það hafi áhrif á dýrtíðina, nema með því að skera stórlega niður framlög til atvinnuveganna, til verklegra framkvæmda, til heilbrigðismála og allrar annarrar slíkrar þjónustu.“
Þessi ummæli mín um ríkisútgjöldin, sem eru sönn, sem enginn getur haft á móti með rökum, sem gefa alveg rétta mynd af ástandinu og þeim viðfangsefnum, sem við er að fást, þegar verið er að ræða um möguleika á lækkun ríkisútgjalda, hafa ekki aðeins verið hártoguð, heldur beinlínis fölsuð í blaðaummælum og öðrum pólitískum málflutningi og jafnvel í fundarsamþykktum og því haldið blákalt fram þvert ofan í staðreyndir, að ég hafi sagt á Alþingi, að ekki væri hægt að lækka ríkisútgjöldin. Síðan hafa viðeigandi útleggingar fylgt þessum rangfærslum. Þetta sýnir bara, að það fylgir því sérstök áhætta á Íslandi að tala blekkinga- og falslaust og án lýðskrums um fjárhagsmálin.
Sýni þjóðin það, að hún vilji láta blekkja sig og segja sér ósatt um þessi efni, en þoli ekki að heyra sannleikann, þá mun þess ekki langt að bíða, að hún fái þá stjórnmálaforustu, sem kinokar sér við að segja sannleikann um þessi mál, en teygir í stað þess lopa undanbragða, blekkinga og lýðskrums til þess að afla sér stundarvinsælda og tekur svo ákvarðanir í samræmi við þann málflutning, enda þótt stórslysum valdi og almannatjóni fyrr en varir.
Ég hef undanfarin ár, þann tíma, sem ég hef gegnt starfi fjármálaráðherra og haft með höndum að setja saman fjárlagafrv., óskað eftir því við meðráðherra mína, sem hafa með höndum framkvæmd á útgjaldaköflum fjárl., að þeir Heittu sér fyrir endurskoðun á starfrækslu þeirri, sem þeir hefðu yfirstjórn á, með það fyrir augum að gera till. um lækkun ríkisútgjalda. Mér dettur ekki í hug að álykta, að ástæðan til þess, að slíkar till. hafa ekki komið, sé sú, að ráðh. hafi ekki viljað koma á sparnaði og lækkun ríkisútgjalda.
Þegar til kom nú í september að ganga frá fjárlagafrv., var ekki um annað að ræða, ef takast ætti að leggja fjárlagafrv. fyrir Alþingi í tæka tíð, en að byggja yfirleitt á þeim tillögum, sem ráðh. í fyrrv. ríkisstj. höfðu lagt fyrir fjmrn. um starfræksluna. Var ríkisstj. sammála um, að þannig yrði að vinna að málinu, en jafnframt hef ég farið þess á leit við samstarfsmenn mína í núverandi ríkisstj., að þeir framkvæmi með sínu starfsliði og þeim trúnaðarmönnum, sem þeir kynnu að vilja kveðja til með sér, sem ýtarlegasta athugun á möguleikum til lækkunar á kostnaði við þá starfrækslu, sem fellur undir þeirra starfssvið, enn fremur athugun á þeirri útgjaldalöggjöf, sem rn. þeirra sjá um framkvæmd á, með það fyrir augum, hvort unnt væri að þeirra dómi að breyta löggjöfinni þannig, að leiddi til lækkunar lögboðinna útgjalda.
Ég kem þá nokkuð að fjárfestingarframkvæmdum og fjáröflun til þeirra.
Þegar ég í fyrrahaust lagði fram fjárlagafrv. fyrir yfirstandandi ár, gerði ég nokkra grein fyrir þeim framkvæmdum, sem fyrrv. ríkisstj. áleit að sitja yrðu fyrir öðru. Það var þá fyrst að ljúka hinum þrem stóru fyrirtækjum, Sogsvirkjuninni, Laxárvirkjuninni og áburðarverksmiðjunni. Benti ég þá á, að svo erfitt væri um fjáröflun til fjárfestingar innanlands, að leita mundi verða eftir erlendu fé til þess að ljúka fyrirtækjunum og mundi verða að reyna að fá til þeirra nýtt Marshallfé. Þá gerði ég grein fyrir því, að nauðsyn bæri til að dómi ríkisstj. að útvega nýtt lán handa stofnlánadeildum Búnaðarbankans til fjárfestingarlána vegna landbúnaðarins og að útvega fé til íbúðarhúsabygginga, mundu smáíbúðirnar sitja fyrir því lánsfé, sem til íbúðabygginga í kaupstöðum og kauptúnum yrði útvegað. Þá lýsti ég yfir því fyrir hönd ríkisstj. og þeirra flokka, sem að henni stóðu, þeirra sömu sem standa að núverandi ríkisstj., að fjáröflun til sementsverksmiðju sæti fyrir næst á eftir þeim verkefnum, sem ég nú hef rakið. Loks lýsti ég þeirri skoðun minni, að raforkuframkvæmdir úti um land yrðu að sitja fyrir fjármagni, þegar lokið væri Sogs- og Laxárvirkjun. Mér þykir rétt að minnast þess með fáeinum orðum, hvernig þessi mál standa.
Bandaríkjastjórn féllst á að leggja fram enn aukið framlag til fyrirtækjanna þriggja til þess að ljúka þeim framkvæmdum, og nam hið nýja framlag 4 millj. og 250 þús. dollurum, eða jafngildi 70 millj. ísl. kr. Hefur því ekki orðið endasleppur stuðningur Marshallstofnunarinnar eða Bandaríkjastjórnar við þessar þýðingarmiklu framkvæmdir.
Í þessu sambandi þykir mér rétt að sýna fram á, hvernig fé er fengið til þessara þriggja stóru fyrirtækja. Ég geri það m.a. vegna þess, að fjáröflun til þeirra sýnir ef til vill betur en flest annað, hvernig ástatt hefur verið um fjáröflunarmöguleika innanlands með frjálsu móti til stórframkvæmda nú undanfarið.
Talið er í síðustu gögnum, að stofnkostnaður Sogsvirkjunarinnar muni verða 195 millj. Af þessum 195 millj. kr. hefur ríkisstj. útvegað 177 millj. kr., og eru það erlend lán og Marshallfé. Mótvirðissjóðslán og Marshalllán nema samtals af þessu 144 millj., en rúmar 17 millj., eða um 9% af kostnaði við mannvirkið, eru eigin framlög þeirra, sem að því standa, ásamt því, sem þeim aðilum hefur reynzt unnt að afla innanlands með skuldabréfasölu. Var þó allmikið til þess gert að afla fjár með því móti.
Heildarkostnaður Laxárvirkjunarinnar er álitinn verða um 60 millj. eftir nýjustu gögnum. Af þessum 60 millj. eru rúmlega 55 millj. útvegaðar um hendur ríkisstj. með erlendum lántökum og af Marshallfé. Þar af eru Marshalllán og mótvirðissjóðslán 48 millj. og 400 þús., en tæpar 5 millj., eða um 3% af stofnkostnaðinum, er framlag frá þeim, sem að fyrirtækinu standa, og fé, sem þeim hefur tekizt að afla með skuldabréfasölu, og var einnig í því dæmi mikið gert til þess að selja slík skuldabréf.
Talið er, að áburðarverksmiðjan muni kosta rúmlega 118 millj. Af því fé eru 106 millj. útvegaðar um hendur ríkisstj. með láni erlendis og af Marshallfé, þar af Marshalllán og mótvirðissjóðsfé um 92 millj. En 12 millj., eða um 10%, er hlutafé og lán innanlands. Þar af eru 6 millj. kr., eða um helmingur, hlutafjárframlag ríkissjóðs.
Þessar upplýsingar segja sína sögu um fjáröflun til fjárfestingar undanfarið, og kem ég að því nokkuð hér á eftir.
Þjóðin mun fagna því, að nú er verið að ljúka þessum þremur miklu framkvæmdum, sem áreiðanlega verða allar styrkar stoðir í þjóðfélagsbyggingunni og bæta hag landsmanna. Í því sambandi mun Bandaríkjamönnum verða flutt viðeigandi þökk fyrir stuðning þeirra við þessar framkvæmdir.
Tekizt hefur að útvega nýtt lán frá Alþjóðabankanum til landbúnaðarframkvæmda, sem nemur jafnvirði 22 millj. ísl. kr. Var sá háttur á hafður, að Framkvæmdabankinn verður lántakandi. Er það von mín, að þetta lán ásamt því fé, sem stofnlánadeildir Búnaðarbankans eiga von á að fá frá Framkvæmdabankanum á þessu ári og næsta ári, muni nægja til þess, að byggingarsjóður og ræktunarsjóður geti fullnægt lánaeftirspurn bænda þetta ár og næsta ár, miðað við útlánareglurnar. Færi svo á næsta ári, að of lítið yrði eftir, til þess að féð hrökkvi, verður að fara í að útvega meira fé, því að þessar lánveitingar mega ekki stöðvast.
Fyrrv. ríkisstj. hafði ætlað sér, sem kunnugt er, að úfvega 16 millj. kr. til smáíbúðalána. Búið er að útvega og ég hygg að mestu leyti úthluta 10 millj. kr., og er verið að vinna að því að útvega þær 6 millj., sem á vantar. Standa vonir til, að það takist, og verður þeim þá úthlutað án tafar, því að þörf er ákaflega mikil fyrir þessi lán, og hrekkur þetta fjármagn alls ekki til þess að greiða fyrir öllum þeim, sem endilega þyrftu að geta komið til greina við úthlutun lánanna.
Fé það, sem útvegað hefur verið til smáíbúðalána, hefur verið fengið með samningi við Landsbanka Íslands, og er gert ráð fyrir, að það fé, sem bankinn nú lánar ríkissjóði í þessu skyni, verði endurgreitt af þeim hluta mótvirðissjóðs, sem ekki er bundinn í Framkvæmdabankanum með lögum um hann, og verður þetta gert svo fljótt sem unnt er að ráðstafa þessu fé úr mótvirðissjóði.
Undanfarið hefur stöðugt verið unnið að útvegun fjár til byggingar sementsverksmiðju. Undirbúningsvinna mikil hefur verið framkvæmd í sambandi við þetta mannvirki, og er nú augljóst orðið af reynslu, að mjög hentugt er að afla hráefnis þess úr botni Faxaflóa, sem frá öndverðu hefur verið gert ráð fyrir í þessari áætlun. Tel ég góðar horfur á því, að lán fáist hjá Alþjóðabankanum til þess að mæta erlenda kostnaðinum við verkið. Þótt erlent fé fáist til þessara framkvæmda, þá þarf meira til. Það þarf að útvega milli 40 og 50 millj. kr. innanlands í byggingarkostnað verksmiðjunnar. Það þarf að leita ýmissa úrræða, og mun verða leitað sérstaklega til Framkvæmdabankans í því sambandi. Gert er ráð fyrir, að sementsverksmiðjan verði þrjú ár í byggingu, og gerir það nokkru léttara en ella hefði verið að útvega þetta mikla fjármagn.
Hef ég þá gert grein fyrir fjáröflun til hinna stóru fjárfestingarframkvæmda, sem á síðasta Alþingi var ráðgert að sætu fyrir um fjármagnið. Kem ég þá að því, sem nú er fram undan í þessum efnum.
Flokkar þeir, sem styðja ríkisstj., hafa gert með sér málefnasamning, og fjallar hann mjög um nýjar framkvæmdir. Er það sett á oddinn að gera stórt átak í rafmagnsmálum þeirra byggðarlaga, sem annaðhvort hafa nú engan aðgang að raforku eða búa við ófullnægjandi raforkuskilyrði. Er ákveðið í málefnasamningi ríkisstj., að fyrir öllu öðru sitji að tryggja 100 millj. kr. lánsfé til þessara framkvæmda. Auk þess er svo ákveðið, og það hef ég þegar rakið, að auka verulega framlag til raforkumála af ríkisfé. Er nú verið að undirbúa till. um öflun lánsfjár í þessu skyni.
Þá er í stjórnarsamningnum ákvæði um, að ríkisstj. og flokkar þeir, sem að henni standa, vinni að aukinni fjáröflun til lánveitinga vegna íbúðarhúsabygginga, en allir vita, að brýn og aðkallandi nauðsyn er á því að afla meira fjár til lánveitinga út á nýjar íbúðir en enn þá hefur verið gert og reynzt mögulegt. Vinnur stjórnin að þessu máli. Er hér um eitt hið mesta vandamál þjóðarinnar að ræða.
Þá er vitað, þótt ekki séu um það ákvæði í stjórnarsamningnum, að óleyst er það verkefni að útvega Iðnaðarbankanum lánsfé, sem Alþingi hefur heimilað ríkisstj. að afla honum til handa; enn fremur, að veðdeild Búnaðarbankans skortir mjög fé til bráðnauðsynlegra lána, að meira fjármagn þarf til lána handa frumbýlingum í sveitum landsins en nú er fyrir hendi, og einnig mun fiskveiðasjóð og aðrar stofnlánadeildir sjávarútvegsins skorta fé á næstunni. Auk þessa bíða í öllum áttum óframkvæmdar fjárfestingaráætlanir, og í öllum greinum er krafizt meiri framkvæmda.
Þegar menn nú líta yfir þessi mál, þessar fyrirætlanir og það, sem er að gerast, er von, að margur spyrji: Hvar á að taka fé til allra þessara framkvæmda, sem eru bráðnauðsynlegar? Það er sízt að ófyrirsynju að koma enn á ný inn á það efni, svo sem nú horfir um fyrirætlanir ríkisstj. og Alþingis og óskir þeirra og annarra, að ekki sé talað um kröfur.
Fjárlagafrv., sem hér er nú lagt fram, ber það með sér, að þess er ekki að vænta, því miður, að ríkissjóður geti lagt fram að óbreyttri tekjuöflun svo að nokkru nemi af nýju fé til fjárfestinga eða framkvæmda yfirleitt frá því, sem hann gerir nú, þegar tekin hefur verið upp stóraukin fjárveiting til raforkumála, eins og búið er að gera á fjárlagafrv., sem liggur fyrir. Það er nú búið að festa svo mikið af fjármagni ríkissjóðs á nýjan leik í niðurgreiðslur, að ríkissjóður getur ekki að óbreyttum tekjum lagt neitt verulega af mörkum umfram það, sem áformað er í fjárlagafrv., til þeirra stórkostlegu fjárfestingaráforma, sem ríkisstj. og Alþingi og landsmenn yfirleitt hafa á prjónunum. Mér skilst, að það mundi ekki vekja hrifningu, ef nú ætti að fara á stúfana með nýja stórfellda tekjuöflun til ríkissjóðs, jafnvel þótt það væri til þess að standa undir alveg óhjákvæmilegum nauðsynjaframkvæmdum eins og rafmagnsframkvæmdum og íbúðarhúsabyggingum, svo að dæmi séu nefnd. Það breytir víst ekki þessu, að skattar og tollar hafa ekki verið hækkaðir síðan 1949, og svo löng hvíld í þeim efnum er næsta óvenjuleg.
En hvað skal þá til bragðs taka, þegar ríkissjóður getur ekki lagt fram aukið fjármagn, sem nokkuð dregur, til fjárfestingarmála nema með nýjum álögum, sem menn vilja ekki á sig taka fyrr en í fulla hnefana? Þá er ekki nema um tvær leiðir að ræða til fjáröflunar til framkvæmdanna. Önnur leiðin er sú að fá erlent fé, og tel ég sjálfsagt að fara þá leið svo sem unnt er. En það er mjög takmarkað, sem hægt er að fá af lánsfé erlendis, og þess verður að gæta, að erlendu lánsfé sé skynsamlega varið, svo að þjóðina reki ekki upp á sker fjárhagslega. Jafnframt er rétt að gera sér grein fyrir því, að nú er mjög erfitt eða jafnvel ókleift að fá lán erlendis nema fyrir erlendum stofnkostnaði hinna beztu fyrirtækja, sbr. það, sem ég upplýsti áðan um fyrirhugaða lántöku til sementsverksmiðjunnar. Hversu mjög sem menn leggja sig fram um að fá lán erlendis, þá er það ljóst, að ekki er hægt að gera ráð fyrir því, að meginhluti þess fjár, sem við þurfum til þeirra fjárfestingaráforma, sem ég nefndi áðan, komi erlendis frá. Meginhluti þess fjár, sem til þeirra verkefna þarf, verður að fást eftir hinni leiðinni, sem til greina kemur, eða frá landsmönnum sjálfum, og verður sem sé að takast af þjóðartekjunum.
Sé ekki um að ræða framlög ríkissjóðs af skatta- og tollafé, þá kemur ekki annað innlent fé til ráðstöfunar sem lánsfé til fjárfestingar, hvort sem það er til raforkuframkvæmda, íbúðarhúsabygginga eða annarra mannvirkja, en það fjármagn, sem landsmenn sjálfir eða fyrirtæki þeirra leggja upp eða leggja til hliðar. Það fé, sem þannig er til hliðar lagt, skapar möguleika til aukinna fjárfestingarlána úr bönkum landsins og möguleika fyrir landsmenn til þess að kaupa beint skuldabréf þau, sem út eru gefin til fjáröflunar í þær framkvæmdir, sem þýðingarmestar eru.
Sparnaður er að vísu nokkur og vaxandi, eins og ég gat um áðan. En augljóst er, að aukist sparnaður ekki verulega, þá verður ekki unnt að afla nægilega mikils fjár innanlands til þeirra framkvæmda, svo sem raforkuframkvæmdanna, sem nú er ætlunin að ráðast í, og hafa á sama tíma viðunandi fjárráð til íbúðarhúsabygginga, sem er ein hin fjárfrekasta framkvæmdagrein, en um leið slíkt nauðsynjamál, að það verður að gera þar meiri átök en enn þá hefur reynzt fært.
Vandamálið er sem sé þetta, að allt of miklu af þjóðartekjunum er eytt, en of litið lagt til hliðar. Af því stafa erfiðleikarnir við fjárútvegun til framkvæmdanna, og niðurgreiðslustefnan, hvað sem menn vilja um hana segja að öðru leyti, hefur a. m. k. ekki greitt úr þessum vanda, heldur aukið hann, eins og hver maður, sem hefur opin augun, getur séð. Það verður sem sé að finna ráð til þess, að þjóðin eyði minnu og leggi meira til hliðar. Og það verður að reyna að koma þessu til leiðar án þess að taka af mönnum nýtt fé með valdboði. Það verður að leita nýrra ráða til þess að reyna að minnka eyðsluna og auka sparnaðinn. Það verður að reyna að fá menn til að auka sparnaðinn með því að gera ábatavænlegra að eignast sparifé en verið hefur. Þess háttar ráðstafanir mundu ekki aðeins verða gerðar í þeirra þágu, sem hefðu einhverja möguleika til að leggja fyrir fé. Þær mundu reynast engu síður í þágu þeirra mörgu, sem þurfa á lánsfé að halda. Það verður að gera ráðstafanir nú á þessu Alþingi í þessa átt, og koma þær einkum til greina í sambandi við setningu nýrrar skatta- og útsvarslöggjafar.
Þá verður einnig að gera ráðstafanir til þess, að hæfilegur hluti af því fé, sem þjóðin sparar, renni sem lánsfé til þeirra framkvæmda, sem mestu máli þykja skipta, og nefni ég þá enn í því sambandi raforkumálin og íbúðarhúsabyggingar, þótt fleira komi til, eins og ég drap einnig á áðan. Það verður að finna leiðir til þess að tryggja þetta, og er það mikilvægt verkefni ríkisstj. og Alþingis og peningastofnana landsins.
Það, sem ég hef nú sagt um fjárfestingu og fjáröflun til hennar, hef ég miðað við þau verkefni, sem allra næst liggja, en ekki við stórvirki, svo sem stórfellda virkjun fallvatna og iðnað í því sambandi, og má þó ekki úr hömlu dragast að sinna þeim málum. Þar koma á hinn bóginn fleiri sjónarmið til greina en hér verða rakin.
Á árinu 1950 varð alger stefnubreyting í fjármálum. Árin á undan hafði verið stórfelldur greiðsluhalli á rekstri ríkisins og framleiðslan barðist í bökkum. Afleiðingin varð m.a. sívaxandi verðbólga og öngþveiti í gjaldeyrismálum, vaxandi vöruskortur, höft og ný rekstrartöp. Á árinn 1950 voru margvislegar ráðstafanir gerðar í fjármálum landsins, sem urðu til þess, að ríkisbúskapurinn varð greiðsluhallalaus á því ári og hefur verið það síðan. Þessi breyting á fjármálastefnunni varð til þess, að á árinu 1951 var hægt að slaka á viðskiptahöftunum. Greiðsluhallalaus ríkisbúskapur ársins 1950 og afgreiðsla greiðsluhallalausra fjárlaga fyrir árið 1951 varð til þess, að mögulegt reyndist að fá Greiðslubandalag Evrópu til að leggja fram verulega fúlgu í erlendum gjaldeyri, sem höfð var að bakhjarli, þegar slakað var á verzlunarhöftunum. Hefði fjármálastefnunni ekki verið breytt, gengislækkunin ekki framkvæmd og ekki tekinn upp greiðsluhallalaus ríkisbúskapur, eða hefði afgreiðsla fjárl. mistekizt og ríkisbúskapurinn ekki orðið greiðsluhallalaus í framkvæmd, þá hefði aldrei getað komið til mála, að Greiðslubandalag Evrópu hefði látið nokkurt framlag til þess að létta undir við tilslökun á verzlunarhöftum á Íslandi, og þá ekki heldur komið til greina aukið verzlunarfrelsi.
Greiðsluhalli og jafnvægisleysi í fjármálum landsins hlýtur að hafa í för með sér gjaldeyrisskort og neyðir til verzlunarhafta. Greiðsluhallalans ríkisbúskapur og jafnvægi í fjármálum innanlands eru frumskilyrði þess, að frjáls verzlun geti komið til mála. Aukið frelsi í viðskiptum er beinlínis afleiðing þess, að breytt var um stefnu í fjárhags- og framleiðslumálum.
Gengislækkunin og stefnubreytingin í fjármálum, sem hvort tveggja var framkvæmt á árinu 1950, miðuðu að því að stöðva verðbólguþróunina og koma á jafnvægi í verðlagsmálum.
Augljóst var, að vegna gengislækkunarinnar hlaut að verða stórfelld verðhækkun til að byrja með, en hugsunin var sú, að þegar verðhækkunaráhrif gengislækkunarinnar væru komin fram, mætti vænta þess, að meira jafnvægi næðist í verðlagsmálum, svo framarlega sem ekki mistækist um framkvæmd fjármálastefnunnar eða knúðar væru fram ráðstafanir utan þinghúss og stjórnarráðs, sem sneru verðhækkunarhjólinu áfram. Það var í engu sparað að gera hróp að verðhækkunaráhrifum gengislækkunarinnar, sem voru auðvitað óhjákvæmileg, en um hitt hefur verið minna talað af sömu mönnum, að nú undanfarið hafa komið glöggt í ljós áhrif hinnar breyttu stefnu í fjárhagsmálum á verðlagsþróun í landinu. Vísitala framfærslukostnaðar í marz 1952 var 156 stig, og vísitalan núna 1. okt. var 157 stig. Þannig hefur framfærslukostnaður staðið svo að segja óbreyttur í 19 mánuði. Þessi þróun verðlagsmálanna hefur haft í för með sér heilbrigðara ástand í öllum framleiðslu- og viðskiptamálum landsins. Ein afleiðingin er vafalaust aukinn sparnaðarvilji og trú á framtíðina, og er það ekki þýðingarminnst, eins og ég hef þegar nokkuð rætt.
Hin nýja fjármálastefna, sem tekin var upp 1950, hefur orðið grundvöllur að stóraukinni framleiðslu í öllum greinum, auknu frelsi í atvinnu- og viðskiptamálum og óvenjumiklum framkvæmdum. Fullyrða má, að fjáröflun til þessara miklu framkvæmda hefði verið alveg óframkvæmanleg án þessarar stefnubreytingar.
Fjármálastefna þeirrar ríkisstj., sem nú hefur tekið við, er hin sama og þeirrar, er frá fór. Kjarni hennar er hallalaus ríkisbúskapur og jafnvægi í fjárhagsmálum, sem verði grundvöllur að sem frjálsustu viðskipta- og atvinnulífi. Þessi fjármálastefna krefst þess manndóms af þeim þingmeirihluta, sem að henni stendur, að innheimta fé til þess að standa undir þeim gjöldum, sem Alþingi ákveður; enn fremur þess, að fé til fjárfestingarinnar og framkvæmdanna sé fengið með heilbrigðu móti, en ekki með aðferðum, sem hrinda öllu fjárhagskerfinu úr skorðum og reynast skammgóður vermir. Ég vona, að þingmeirihlutanum takist vel að standa saman á Alþingi um. afgreiðslu mála í samræmi við fjármálastefnu þá, sem mörkuð er í málefnasamningi stjórnarflokkanna.