12.10.1953
Sameinað þing: 5. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (410)
1. mál, fjárlög 1954
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég get ekki stillt mig um í byrjun máls míns að votta hv. síðasta ræðumanni samúð vegna þess ótta, sem hann virtist bera í brjósti við núverandi ríkisstj., og ég geri einnig ráð fyrir, að þess muni ekki vanþörf, því að vafalaust mun halda svo áfram þróuninni með hans flokk eins og verið hefur nú að undanförnu.
Hæstv. fjmrh. hefur svo ýtarlega gert grein fyrir einstökum atriðum í sambandi við fjárlfrv. og fjárhag ríkisins, að ég mun stikla á stóru í minni ræðu og reyna að bregða upp heildarmynd af efnahagsástandinu og fjármálaþróuninni síðustu árin.
Blómlegir atvinnuvegir og næg atvinna handa öllum starfandi höndum er undirstaða góðrar afkomu, bæði einstaklinganna í þjóðfélaginu og þjóðarbúsins. Hins verður svo auðvitað um leið að gæta, að útgjöldum ríkissjóðs sé jafnan haldið innan þeirra takmarka, að hvorki þurfi að binda þjóðfélagsborgurunum of þunga bagga í sköttum og öðrum álögum né heldur að afgreiða fjárl. með greiðsluhalla.
Ýmsir munu ef til vill segja, að óþarft sé að benda á svo augljósar staðreyndir. En því miður virðast þær þó harla oft gleymast. Þeim skoðunum heyrist jafnvel varpað fram í fullri alvöru, að ekkert sé athugavert við það, þótt atvinnuvegirnir séu á ríkisframfæri, og það ber einnig æði oft á því, að gerðar séu till. um stórfelld útgjöld úr ríkissjóði án þess, að menn vilji taka á sig það óvinsæla verk að benda á tekjustofna á móti. Ef menn ekki vilja gera sér ljósa þá staðreynd, að ríkissjóður er engin gullkista, sem hægt sé þrotlaust að ausa úr, en þurfi litið eða ekkert að láta í staðinn, þá er ekki von, að vel fari.
Árið 1939 urðu rekstrarútgjöld ríkissjóðs rúmar 19 millj. kr., en í fjárl. ársins 1954 eru rekstrarútgjöldin áætluð um 390 millj. kr., og hafa þau þannig á þessu tímabili meira en tvítugfaldazt. Orsakir þessarar miklu hækkunar eru tvær: annars vegar vaxandi dýrtíð og þar af leiðandi rýrnandi verðgildi krónunnar; hins vegar mjög auknar kröfur á hendur ríkissjóði og margvísleg löggjöf, sem hefur haft í för með sér mjög aukin útgjöld ríkissjóðs.
En þrátt fyrir hina geysilegu hækkun útgjalda ríkissjóðs á þessum síðasta tæpum hálfum öðrum áratug er samt afkoma ríkisins betri nú en hún var þá. Árið 1939 hækkuðu lausaskuldir ríkissjóðs um rúmar 2.2 millj. kr., en í fjárlfrv. fyrir árið 1954 er gert ráð fyrir rúmum 1.6 millj. kr. greiðsluafgangi.
Ástæðan er vitanlega sú, að þótt útgjöld ríkisins hafi tvítugfaldazt, þá hafa tekjurnar meira en tvítugfaldazt á þessu tímabili. Kemur þar einkum þrennt til: dýrtíðin og þar af leiðandi stórauknar tekjur manna að krónutölu, aukin framleiðsla og þar af leiðandi auknar raunverulegar tekjur og loks auknar álögur á þjóðfélagsborgarana. Ef gengið er út frá því, að þjóðfélagsborgararnir greiði eðlilegan skerf af tekjum sínum til opinberra þarfa, þá er efling atvinnuveganna, aukin framleiðsla og þar af leiðandi auknar raunverulegar þjóðartekjur frumskilyrði þess, að hægt sé að leggja auknar kvaðir á ríkissjóð.
Á stríðsárunum hafði þjóðin meira fé handa á milli en nokkru sinni hefur áður þekkzt hér á landi. Þótt mörg krónan færi forgörðum, þá tókst öllum almenningi þó að bæta mjög lífsafkomu sína og búa í haginn fyrir framtíðina. Á þessum árum eignaðist þjóðin einnig stóra gjaldeyrisvarasjóði og fékk þannig aðstöðu til þess að bæta mjög afkomu þjóðfélagsins í heild og leggja grundvöll að þeirri eflingu atvinnuveganna, sem nauðsynleg væri til þess, að þjóðin gæti áfram búið við góða afkomu og auðið yrði að standa undir ýmiss konar umbótalöggjöf í félagsmálum og menningarmálum, sem þjóðin vildi innleiða. Þetta sjónarmið mótaði stefnu ríkisstjórnar Ólafs Thors árið 1944, og þeirri stefnu hefur í meginatriðum verið fylgt af öllum síðari ríkisstjórnum. Með nýsköpunarstefnunni var grundvöllur lagður að þeirri miklu eflingu atvinnuveganna, sem hefur gert auðið að viðhalda sæmilegri afkomu þjóðfélagsborgaranna þrátt fyrir ýmis áföll og mundi geta fært þjóðinni geysímiklar tekjur, þegar vel árar. Á fáum árum hefur þjóðin eflt svo atvinnuvegi sína að nýjum framleiðslutækjum og fullkominni tækni, að undravert má teljast hjá svo fámennri þjóð. Þá alvarlegu erfiðleika hefur hins vegar verið við að stríða, að aðalútflutningsatvinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegurinn, hefur vegna mikils aflabrests ekki skilað því framleiðsluverðmæti, sem vonir stóðu til, og hinn mjög mikli útgerðarkostnaður hefur jafnframt valdið því, að þessi atvinnuvegur hefur ekki getað þróazt á eðlilegan hátt.
Þótt íslenzkir sjómenn séu afkastameiri en sjómenn annarra þjóða, þá er tilkostnaður útgerðarinnar hér þeim mun meiri en hjá aðalkeppinautum vorum, að samkeppnin um markaðina reynist oss mjög örðug, ef gera á kröfu til þess verðs, sem nauðsynlegt er fyrir framleiðsluna.
Þótt á stríðsárunum tækist að mestu leyti að greiða upp skuldir ríkissjóðs og fjárhagur ríkissjóðs væri mjög góður, þá leiddi samt hinn aukni hallarekstur atvinnuveganna í lok stríðsins til þess, að mjög tók að halla undan fæti fyrir ríkissjóði. Sumir hafa reynt að kenna þáverandi fjármálaráðherrum Sjálfstfl. um þá þróun, en það er vitanlega hin mesta fjarstæða. Þeir vöruðu hvað eftir annað við hinum alvarlegu afleiðingum af hallarekstri atvinnuveganna, en Sjálfstfl. hafði ekki bolmagn til þess að marka einn fjármálastefnuna, og ekki tókst að ná samkomulagi um viðreisnartill., sem að gagni mættu koma. Það var fyrst árið 1949, sem nægilegur skilningur fékkst fyrir því, að nauðsynlegt væri að hverfa inn á nýjar brautir. Féll það í hlut minnihlutastjórnar Sjálfstfl., sem við völdum tók að afloknum kosningum 1949, að leggja fram heildartill. um gerbreytta stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þá fékkst loks í verki viðurkenning á þeim staðreyndum, sem ég vék að í upphafi máls míns, að atvinnuvegirnir yrðu að geta starfað hallalaust eða a.m.k. án beinna styrkja úr ríkissjóði, athafnafrelsi, en ekki síaukin höft, væri leiðin til betri afkomu einstaklinganna og þjóðarbúsins og fjárl. yrðu ætíð að vera greiðsluhallalaus.
Eftir þessari stefnu starfaði fyrrv. ríkisstj., og það er meginstefna núverandi ríkisstj. að halda áfram á sömu braut. Stjórnarflokkunum kom auðvitað aldrei til hugar, að þessi stefna ein út af fyrir sig gæti leyst öll vandamál þjóðarinnar, því að það er jafnan við ýmsa erfiðleika að etja, sem ekki er hægt að sjá fyrir fram. Þróunin síðustu árin sannar þó ótvírætt, að rétt var stefnt, enda hefur þjóðin sjálf í frjálsum kosningum kveðið upp þann úrskurð, að hún vilji láta stefna áfram í sömu átt til aukins frelsis fyrir þjóðfélagsborgarana, en hin sósíalistíska haftastefna hefur hins vegar beðið svo ótvírætt skipbrot, að allar árásir stjórnarandstöðunnar hafa verið máttlaust fálm, fyrst og fremst vegna þess, að þeir þora ekki að halda fram sinni eigin stefnu í efnahagsmálunum af ótta við almenningsálitið. Hefur svo rammt að þessu kveðið, að meira að segja kommúnistarnir hafa í blöðum sínum einna helzt gert aðsúg að ríkisstj. fyrir það að ganga ekki nógu langt í því að auka frjálsræði borgaranna og afnema ríkisafskipti.
En hver hafa þá í meginatriðum verið áhrif þessarar stefnu?
Í fyrsta lagi hefur verið létt af ríkissjóði útflutningsuppbótum á sjávarafurðir, sem á árinn 1949 urðu um 36 millj. kr. og hefðu nú í ár áreiðanlega orðið á þriðja hundrað millj. kr., ef áfram hefði verið haldið á sömu braut. Því miður hefur þó ekki enn tekizt að létta af ríkissjóði greiðslum til lækkunar á vöruverði, sem eru nokkrum millj. kr. hærri nú en síðasta árið fyrir gengisbreytinguna.
Í öðru lagi hefur hin nýja stefna í efnahagsmálunum gert auðið að auka innflutning stórum, þannig að tekizt hefur að útrýma svartamarkaði þeim og braski, sem fylgdi í kjölfar vöruskortsins, og jafnframt hefur hinn stóraukni innflutningur haft í för með sér mjög mikla tekjuaukningu fyrir ríkissjóð.
Í þriðja lagi hefur vegna þessa reynzt auðið að framkvæma það meginstefnumál ríkisstj., að fjárlög yrðu afgr. greiðsluhallalaus og ríkisbúskapurinn í heild rekinn hallalaust, og varð meira að segja á árinu 1951 mikill greiðsluafgangur, sem hægt var að verja til ýmissa mikilvægra framkvæmda til hagsbóta fyrir almenning í landinn. Þótt Sjálfstfl. hafi ekki haft fjmrh. nú síðustu árin, þá hefur flokkurinn verið fullkomlega trúr þeirri stefnu sinni, sem hann hefur alltaf haft, að afgreiða fjárl. án greiðsluhalla, og mun vitanlega einnig fylgja þeirri stefnu við afgreiðslu þeirra fjárl., sem nú liggja fyrir.
Í fjórða lagi hefur hin breytta stefna í efnahagsmálunum beinlínis valdið því, að tekizt hefur að fá erlend lán til mikilvægra framkvæmda í landinu, en mjög sennilegt er eða fullvíst, að þau lán hefðu alls ekki fengizt, ef áfram hefði verið haldið á þeirri braut, sem farin var fyrir 1950.
Í fimmta lagi hefur reynzt auðið að mæta þeim erfiðleikum, sem ýmis byggðarlög í landinu hafa átt við að stríða vegna slæms árferðís. Hefur ríkissjóður varið verulegum fjárhæðum til atvinnubóta og atvinnuaukningar á mörgum stöðum á landinu.
Í sjötta lagi er þessi stefna í fjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar frumskilyrði þess, að auðið verði að létta skatta á almenningi og atvinnurekstri og stuðla þannig beinlínis að bættum kjörum almennings og óbeinlínis með því að bæta aðstöðu atvinnufyrirtækja til aukinnar starfsemi og útþenslu.
Ég mun nú víkja að nokkrum meginatriðum málsins eins og þau horfa við samkvæmt þeim samningi, sem gerður var milli stjórnarflokkanna, þegar núverandi ríkisstj. var mynduð á þessu sumri. Ber í því sambandi að hafa það í huga, eins og hæstv. fjmrh. hefur bent á, að fjárlfrv. var að miklu leyti samið, áður en þeim samningum lauk, og er því ekki nema að nokkru leyti í samræmi við þá.
Í stjórnarsamningnum eru þrjú atriði, sem beinlínis snerta fjárhag ríkissjóðs: í fyrsta lagi mjög aukin framlög til raforkumála, í öðru lagi lækkun skatta og í þriðja lagi aukið athafnafrelsi með afnámi fjárhagsráðs.
Það þarf ekki mörgum orðum að því að eyða, að raforkumálin eru mesta hagsmunamál þess fólks, sem ekki nýtur þegar hinna miklu lífsþæginda raforkunnar, og einnig fyrir alla þjóðarheildina skiptir það miklu máli, að hugsjón þeirra Jóns Þorlákssonar og Jóns Sigurðssonar um að leiða raforku inn á hvert byggt ból á landinu verði sem fyrst að veruleika. Fátt eða ekkert er hættulegra fyrir jafnvægi í byggð landsins en of hægar framkvæmdir í raforkumálum. Sjái fólk ekki í náinni framtíð hilla undir það, að það fái notið þæginda raforkunnar, þá er beinlínis hætt við því, að það flytji til þeirra staða, þar sem raforkan er þegar fyrir. Hin miklu orkuver við Sog og Laxá eru mikið átak. En það væri beinlínis hættulegt, ef slakað yrði á sókninni í raforkumálunum, þótt þessi miklu orkuver séu nú fullgerð, því að enn er eftir að leiða orkuna út frá þeim, og heilir landshlutar bíða auk þess algerlega eftir raforku. Það er því engum efa bundið, að þjóðin muni almennt fagna því, að ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hafa ákveðið að halda áfram með fullum hraða að lokatakmarkinu.
Þær raddir hafa orðið sífellt fleiri og háværari á seinni árum, að skattaálögur á þjóðina væru orðnar óbærilegar. Meðan á ríkissjóði hvíldu þungar og sáhækkandi kvaðir vegna dýrtíðargreiðslna og útflutningsuppbóta, var enginn grundvöllur fyrir lækkun skatta, enda þótt menn horfðu mjög uggandi á það, að hinir þungu skattar stóðu beinlínis ýmiss konar atvinnurekstri í landinn fyrir þrifum. Það var von manna, að með gengislögunum tækist smám saman að skapa það jafnvægi í þjóðfélaginu, að dýrtíðarskrúfan stöðvaðist, og hægt yrði raunverulega að bæta kjör almennings með lækkuðum álögum. Því miður hefur dýrtíðin hækkað meira en gert var ráð fyrir, en engu að síður má þó, ef skynsamlega er á málum haldið, framkvæma allverulega skattalækkun, enda er svo ráð fyrir gert í stjórnarsamningnum, að ríkisstj. láti nú á þessu Alþ. afgreiða ný skattalög, þar sem að því sé stefnt að leiðrétta það misræmi, sem orðið hefur á skattgreiðslum vegna verðlagsbreytinga.
Svo sem hv. þingmenn og þjóðin öll man, þá var á næstsíðasta Alþ. samþykkt till. frá tveim þm. Sjálfstfl. um heildarendurskoðun á skattalögunum og tekjuskiptingu ríkis og bæjarfélaga. því miður hefur sú endurskoðun tekið lengri tíma en vonir stóðu til. Var gert ráð fyrir, að endurskoðuninni væri lokið fyrir síðasta þing. En þegar sýnt þótti, að ekkert frv. yrði lagt fyrir það þing af hálfu ríkisstj., varð það að ráði í Sjálfstfl., að tveir af þm. flokksins legðu fram sérstakt frv. um skattgreiðslu einstaklinga. Voru skattalækkanir frv. við það miðaðar, að hægt væri að samþ. það án þess að tefla í hættu afgreiðslu fjárl. Verkfallið gerði hins vegar þessar vonir að engu, því að þær álögur, sem þá voru lagðar á ríkissjóðinn, námu hærri upphæðum en skattalækkanir þær, sem fólust í frv. okkar. Ég mun ekki hér ræða um verkfall þetta og afleiðingar þess, sem því miður hafa á ýmsan hátt orðið óheillavæulegar, en aðeins vekja athygli á því, að verkfallið er ljós sönnun þess, hversu miklum erfiðleikum það er bundið að fá samtök um að halda útgjöldum ríkissjóðs svo í skefjum, að auðið verði að framkvæma þær skattalækkanir, sem allir í raun og veru virðast sammála um.
Ég skal hér engum getum að því leiða, hverjar verða beztu niðurstöður þess frv., sem lagt verður fyrir þetta þing í skattamálum, en aðeins leggja áherzlu á þá skoðun Sjálfstfl., að ekki verði lengur hjá því komizt að gera allverulegar breytingar á skattalögunum í lækkunarátt, því að núgildandi skatta- og útsvarslög eru orðin hemill á eðlilega þróun ýmiss konar atvinnurekstrar í landinu og leiða þannig beinlínis til verri afkomu fyrir ríkissjóð og þjóðarheildina. Með skynsamlegri skattalöggjöf má stuðla mjög að heilbrigðri þróun í efnahags- og fjármálalífi þjóðarinnar, en því miður verður þess lítt vart, að núgildandi skattalög mótist af viðleitni í þá átt. Skattalög eiga að örva þjóðfélagsborgarana til sparnaðar og skynsamlegrar meðferðar á fé sinn, en eins og málum er nú háttað, verða þeir verst úti, sem spara og reyna að eignast eitthvað. Má segja, að skattamálin öll séu í hinu mesta ófremdarástandi. Á hverju ári er mikill meiri hluti þjóðarinnar látinn óvirða drengskaparheit sitt með því að gefa ranga skattskýrslu, og skattyfirvöld virðast jafnvel ganga út frá því, að menn svíki almennt undan skatti. Má í því sambandi nefna veltuútsvarið, sem einkum virðist byggjast á því, að atvinnurekendur sviki almennt undan skatti, því að ef svo væri ekki, mundi fjölda atvinnufyrirtækja gersamlega um megn að risa undir því. Þegar öll kurl eru til grafar komin, álít ég það mjög mikið vafamál að ríkið mundi missa miklar tekjur, þótt allveruleg lækkun yrði gerð á sköttum, ef farið er eftir þeim meginsjónarmiðum, sem ég hef hér drepið á.
Engu að síður er þó ljóst, að verulegar skattalækkanir krefjast aukins sparnaðar í rekstri ríkisbúsins, ef hægt á að vera að tryggja sæmilega afkomu þess. Þótt tekjur ríkissjóðs séu í þessu fjárlfrv. áætlaðar rúmar 28 millj. kr. hærri en í fjárlfrv. fyrir yfirstandandi ár, er þó ekki gert ráð fyrir nema 1.6 millj. kr. greiðsluafgangi. Er þó vafalaust eftir að taka milljónaútgjöld inn í frv. Að vísu munu skattskyldar tekjur þjóðarinnar án efa verða miklu hærri í ár en í fyrra, en án einhverra lækkana á útgjöldum ríkissjóðs er þó hætt við að miklar skattalækkanir mundu tefla afkomu hans í hættu. Það er a. m. k. augljóst, að taka verður til rækilegrar athugunar fyrir næsta þing, hvar helzt verði við komið sparnaði í ríkisrekstrinum. En þótt raddirnar um skattalækkanir séu háværar, þá er því miður sú skoðun ekki jafnrík hjá almenningi, að nauðsynlegt sé um leið að draga úr kröfum á ríkissjóðinn. Á hverju ári bætast við nýjar óskir og kröfur um stóraukin framlög til ýmissa framkvæmda, nýja útgjaldaliði og styrki. Það má ef til vill saka þingmenn um undanlátssemi, en þeir hafa á sér þungann af margvíslegum óskum umbjóðenda sinna um auknar framkvæmdir á mörgum sviðum, sem erfitt er að standa í gegn, þegar framfaravilji er fyrir hendi og augun opin fyrir margvíslegum þörfum fólksins í landinu. Fram hjá þeirri staðreynd verður þó aldrei komizt, að saman geta ekki farið kröfur um stóraukin útgjöld og miklar skattalækkanir, þegar enginn teljandi greiðsluafgangur er hjá ríkissjóði. Málsvarar þeirra tveggja stjórnarandstöðuflokka, sem nú hafa talað, hafa að vísu hneykslazt mjög á háum fjárl., og má þá væntanlega gera ráð fyrir lækkunartillögum frá þeim.
Stefna ríkisstj. í efnahags- og fjármálum hefur einnig haft þær afleiðingar, sem þjóðin mun hvað mest fagna, að auðið hefur reynzt að draga úr ríkisafskiptum og létta höftum af athöfnum borgaranna á mörgum sviðum. Og núverandi ríkisstj. hefur ákveðið að stiga það mikilvæga spor á þessu þingi að leggja niður fjárbagsráð, sem er orðið almenningi í landinu svo mikill þyrnir í augum, að sjálfir haftapostularnir í stjórnarandstöðuflokkunum hafa talið það vænlegast til áheyrnar hjá þjóðinni að snúast öndverðir gegn þeim ríkisafskiptum, sem einmitt eru kjarni stjórnmálastefnu þeirra. Ég tel ekki ástæðu til að ætla annað en að þeir menn, sem í fjárhagsráði hafa setíð, hafi haft fullan vilja á að leysa sitt vandasama og vanþakkláta hlutverk sómasamlega af hendi, en hitt er engu að síður staðreynd, að svo víðtæk ríkisafskipti hljóta að leiða af sér margvíslegt misrétti og slík höft á athafnafrelsi borgaranna hljóta ætið að verða neyðarúrræði, sem ekki má beita lengur en brýnasta nauðsyn krefur. Jafnvægisleysi það, sem ríkti í efnahagsmálum þjóðarinnar síðustu árin fyrir gengisbreytinguna neyddi þáverandi ríkisstjórn landsins til þess að grípa til margvíslegra ríkisafskipta, sem voru orðin það viðtæk, að þjóðin hafði fyllilega fengið forsmekk af því, hvernig sósíalisminn mundi reynast í framkvæmd. Afleiðingin hefur líka orðið sú, að þeir munu næsta fáir, ef þá nokkrir, sem hverfa vilja aftur til þess vandræðaástands, sem hér ríkti síðustu árin fyrir gengisbreytinguna.
Stjórnarandstæðingar reyna stundum að henda gaman að því, þegar stjórnarflokkarnir tala um jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hér er þó einmitt um að ræða frumskilyrði þess, að verzlunarfrelsi og athafnafrelsi geti ríkt í þjóðfélaginn. Ef hægt á að vera að hafa innflutning og fjárfestingu frjálsa að öllu leyti, þá verður að vera samræmi milli gjaldeyrisöflunar þjóðarinnar annars vegar og kaupgetunnar innanlands hins vegar. Sé kaupgetan miklum mun meiri en gjaldeyrisöflunin, þá hlýtur brátt að verða vöruskortur og vandræði, ef ekki eru hömlur á innflutningi og fjárfestingu. Þarna rekum við okkur aftur á þá staðreynd, sem ómögulegt er að umflýja, að aukin framleiðsla er eina leiðin til raunverulegra kjarabóta. Það er því fölsk kaupgeta, þegar fólk hefur meira fé handa á milli en samsvarar verðgildi framleiðslunnar, og af slíku ástandi leiðir það jafnvægisleysi, sem allir þeir ættu að vera samhuga um að forðast, sem af einlægni vilja stuðla að bættum hag þjóðarinnar. Íslenzka þjóðin þarf svo mikið á sig að leggja til þess að halda hér uppi menningarþjóðfélagi og almennri velmegun, að hún má ekki við því, að heilbrigt framtak atorkusamra einstaklinga og félagssamtaka sé hneppt í fjötra lamandi ríkisafskipta og nefndavalds. Athafnafrelsi er aflgjafi framfara og blómlegs atvinnulífs, og það er því mikilsvert fyrir þjóðarbúskapinn í heild, að það geti verið sem mest. Þetta er sú staðreynd, sem stjórnarflokkarnir gera sér ljósa, og því vinna þeir örugglega að auknu athafnafrelsi og telja nú orðið tímabært, að fjárhagsráð verði lagt niður, þótt enn um skeið muni reynast nauðsynlegt að hafa eitthvert eftirlit með nokkrum atriðum í sambandi við innflutningsverzlunina.
Ég vil ekki láta hjá líða að minnast á hinar mikilvægu aðgerðir núverandi og fyrrverandi ríkisstjórna til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Þótt viðskipta- og fjárfestingarhöftin hafi verið öllum landslýð erfið, þá voru þau þó því fólki þungbærust, sem bjó fjarri höfuðstaðnum, því að þangað þurfti að leita eftir leyfum til flestra athafna. Allur þessi mikli samruni valdsins í höfuðborginni hlaut að stuðla að jafnvægisleysi í byggð landsins og hætta að verða á því, að atvinnurekstur í hinum fjarlægari héruðum landsins blátt áfram legðist niður. Hið aukna athafnafrelsi hefur því stuðlað að jafnvægi í byggð landsins, sem er hin mesta þjóðfélagsnauðsyn. En hér kemur þó fleira til. Aflabrestur hefur skapað mikla atvinnuörðugleika í mörgum kaupstöðum og kauptúnum úti um land. Hætt var því við, að fólkið streymdi burt úr þessum byggðarlögum, ef ekkert yrði aðhafzt. Þess vegna var gripið til þess ráðs að veita lán úr ríkissjóði til kaupa á framleiðslutækjum og annarrar atvinnuaukningar á þeim stöðum, þar sem erfiðleikar voru mestir, og hefur á þennan hátt tekizt að töluverðu leyti að leysa úr alvarlegum vandræðum. Núverandi ríkisstjórn og stjórnarflokkar hafa ákveðið að halda áfram á sömu braut, og svo sem fjmrh. hefur frá skýrt, er gert ráð fyrir, að varið verði úr ríkissjóði í þessu skyni 5 millj. kr. á næsta ári.
Þótt það snerti ekki beinlínis fjárl., þá langar mig til að drepa lítillega á eitt mikilvægt atriði í málefnasamningi ríkisstj., en það eru húsnæðismálin. Svo mikið vandræðaástand hefur ríkt varðandi lán til íbúðabygginga, að fátt var nauðsynlegra en að reyna að finna leiðir til þess að leysa það vandamál til frambúðar. Myndarleg átök hafa að vísu verið gerð með fjáröfluninni til smáíbúða, en bæði eru þau lán ófullnægjandi og vandamálið miklum mun víðtækara, svo að brýna nauðsyn ber til, að heildarlausn verði fundin á málinu, og er ekki að efa, að ríkisstj. muni leggja allt kapp á, að sú lausn finnist sem fyrst.
Að undanförnu hefur vel tekizt til um fjáröflun til stofnlánadeildar Búnaðarbankans, þótt enn vanti tilfinnanlega lánsfé til bústofns- og jarðakaupa. En alvarlega horfir um stofnlánadeildir sjávarútvegsins, og verður ekki hjá því komizt að gera ráðstafanir til þess að leysa brýna fjárþörf þeirra. Verkefnin eru þannig mörg, sem kalla að, en þótt fullur vilji sé á að leysa þau öll sem skjótast, þá verður þjóðin þó að gera sér grein fyrir því, að fjárhagsgetan er takmörkuð, svo að öll vandkvæði verða ekki leyst í einu.
Á síðasta áratug hefur verið unnið mikið uppbyggingarstarf í þessu landi, og framfarir hafa orðið geysimiklar á sviði atvinnumála í hinum viðasta skilningi þess orðs og almennra félagsmála. Framleiðslutækin í sjávarútvegi og iðnaði hafa margfaldazt. Nýjar iðngreinar hafa risið upp, og bylting hefur orðið í landbúnaði. Sett hefur verið fullkomin tryggingalöggjöf, sem kostar ríkissjóð nú árlega yfir 40 millj. kr. Ný skólalöggjöf hefur verið sett og framlög til menntamála stóraukin, svo að þau eru nú nærri 60 millj. kr. Almenn raforkulög hafa verið sett, og á síðustu tveim árum hefur veríð unnið að því að koma upp orkuverum, sem kosta á þriðja hundrað millj. kr. Raforkan hefur síðan skapað skilyrði fyrir margvislegan stóriðnað. Áburðarverksmiðja hefur verið reist, sem kosta mun allmikið á annað hundrað millj. kr., og sementsverksmiðja er í undirbúningi.
Þennan síðasta áratug hefur þannig stöðugt verið unnið að eflingu atvinnuveganna, félagslegum framförum og auknu öryggi þjóðarinnar, og af hálfu núverandi ríkisstj. mun markvíst verða haldið áfram á sömu braut, svo sem stjórnarsáttmálinn ótvírætt ber með sér. Enn eigum vér margvíslegar auðlindir óhagnýttar, bæði orkuna í fallvötnum landsins og jarðhita, en hvorar tveggja þessar auðlindir skapa skilyrði fyrir enn fjölþættara atvinnulífi, sem verði þess um komið að taka við vaxandi fólksfjölgun og búa þjóðinni góð lífsskilyrði í framtiðinni. Það er hins vegar augljóst og reynslan hefur þegar sannað það, að af eigin fé hefur oss gersamlega verið um megn að nýta þessar auðlindir til fulls, þótt aðstaða hafi að vísu batnað verulega vegna efnahagsaðstoðar Bandaríkjanna og myndunar mótvirðissjóðs. Hér verður því erlent fjármagn að koma til. En ef það á að fást, er nauðsynlegt, að skynsamleg fjármálastjórn sé í landinu og þjóðin sýni það í verki, að hún hafi bæði vit og vilja til þess að stjórna málum sínum og nýta auðlindir landsins á skynsamlegan hátt.
Auðvitað verður að forðast það að gera þjóðina efnahagslega háða öðrum þjóðum og binda henni skuldabagga, sem hún geti ekki undir rísið. En það er engin hætta að taka erlent lánsfé til arðbærra framkvæmda, sem annaðhvort spara þjóðinni erlendan gjaldeyri eða auka gjaldeyristekjurnar. Það gildir hið sama um þjóðir og einstaklinga, sem í stórvirki ráðast, að þær verða oft að taka verulegan hluta af stofnkostnaði fyrirtækja sinna að láni. meginatriði málsins er svo það, að fyrirtækin og þjóðarbúskapurinn sé síðan rekinn af þeirri skynsemi og fyrirhyggju, að framkvæmdirnar gefi þann arð, sem til var ætlazt.
Íslenzka þjóðin verður jafnan að minnast þess, að atvinnuvegirnir eru hið fjárhagslega fjöregg hennar, og um þetta fjöregg má ekki verða sú togstreita milli stétta og einstaklinga, að það brotni, því að þá er úti um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Öll vor afkoma byggist á því, að þjóðin sé samtaka að efla atvinnuvegina, skapa þeim starfsskilyrði og vinna af atorku að því að nýta auðlindir landsins og búa þannig í haginn fyrir komandi kynslóðir. Þótt þjóðin sé fámenn og landið harðbýlt, þá er þó íslenzk náttúra lands og sjávar svo gjöful á marga hluti, að með iðni, ástundun og samheldni getur íslenzka þjóðin áreiðanlega lifað góðu lífi í framtíðinni. Vér verðum að gæta þess að láta ekki erjur og togstreitu um dægurmál leiða til þess, að þjóðin geti ekki sameinuð beitt kröftum sínum að höfuðframfaramálum sínum, sem eru hyrningarsteinar sjálfstæðis hennar og þjóðmenningar. Meginstefnan í efnahagsmálunum verður ætíð að vera: blómlegir atvinnuvegir, er veitt geti atvinnu hverri starfhæfri hendi.