08.12.1953
Sameinað þing: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

1. mál, fjárlög 1954

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég ætla í stuttu máli að gera grein fyrir fáeinum smátill., sem ég er með.

Ég verð nú að taka undir það, sem hv. 9. landsk. sagði, að það er einkennileg till. hjá hv. fjvn. að binda þennan upphitunarstyrk við kvennaskóla og húsmæðraskóla og aðeins í sveitum, en það megi ekki ná til sjávarplássa. Ég verð að játa það, að ég hef nú satt að segja ekki tekið eftir þessari spaugilegu till. eða því spaugilega við hana, fyrr en hv. 9. landsk. minntist á það, en það er vissulega þörf á að létta undir hitakostnaðinum á öðrum skólum en bara húsmæðraskólum og kvennaskólum. Ég sé ekki annað en það sé full sanngirni í því, ef það þykir þörf á að létta undir þessum hitakostnaði, sem ég vil engan veginn vefengja, að það nái þá, eins og hv. þm. Lýsti, til allra ríkisskóla, sem ekki búa við jarðhita, og ég mun fyrir mitt leyti eftir megni styðja framgang þeirrar till.

Ég hef leyft mér á þskj. 280 að bera fram brtt. undir lið I., ofur litla, varðandi löggæzluna í Vestmannaeyjum á vetrarvertíðinni. Það búa einstöku veiðistöðvar við það að fá styrk til löggæzlu, t.d. Siglufjörður og fleiri staðir. en málaleitunum mínum — og ekki reyndar mínum eingöngu, heldur bæjarfógetans í Vestmannaeyjum og hæstv. dómsmrh., sem segist hafa stutt að því eða mælt með, að Vestmannaeyjar nytu einhvers í þessu skyni — hefur enn ekki verið sinnt, en það er, held ég, alveg misskilningur, að ríkið taki ekki neinn þátt þar í slíkum kostnaði. Þessi löggæzlukostnaður þess opinbera er vitanlega miðaður við það, að þau pláss, sem hans njóta, fá á stuttum tíma eða yfir vissan tíma ársins óvenjumikið aðstreymi af aðkomufólki, þannig að öll venjuleg löggæzla, sem varðar heimafólk, fer úr skorðum við þann mikla aðflutning, og þar sem aðflutningurinn stendur allajafna í sambandi við atvinnuleit fólksins, þá þykir ekki nema sanngjarnt, að hið opinbera taki að sér að einhverju leyti að standa straum af löggæzlunni á þessu tímabili.

Í Vestmannaeyjum er það svo, að þangað leita á hverri vertíð um 2000 aðkomumenn. Fólkið, sem fyrir er, er í kringum 4000 manns, þar með talin börn og gamalmenni, þannig að þessi 2000, sem við bætast af sjómönnum og verkamönnum, þurfa vitaskuld tiltölulega meiri löggæzlu heldur en a.m.k. gamalmenni og börn, sem heima fyrir eru að jafnaði. Það eru sex lögregluþjónar á föstum launum bæjarins á þessum stað, og það er ekki nema sanngjörn krafa, að eyjarnar fái til löggæzlu einhvern hluta eins og önnur pláss og gjaldi þess ekki, þó að það sé stór veiðistöð og þangað sæki margir að. En mér hefur heyrzt í viðtali við suma í hv. fjvn., að þetta mætti helzt ekki renna til nema hinna óbjörgulegri eða vesælli staða. Það tel ég ómaklegt. Það kostar um 5000 kr. á mánuði fyrir hvern einstakan lögreglumann, og aðkomulögreglumenn eru taldir eiga rétt á að fá frítt uppihald fyrir tveggja eða þriggja mánaða dvöl, og þessar 30 þús. kr., sem ég fer fram á að löggæzlan sé hækkuð um, eiga að standa undir kaupi tveggja lögreglumanna, sem maður hugsar sér að kæmu annars staðar frá á vetrarvertiðinni. Ég er eiginlega leiður yfir því að þurfa að vera að bera fram í sameinuðu Alþ. brtt. út af svona vesælli upphæð, þegar það eru fordæmi — og fleiri en eitt — fyrir því í fjárl., að atvinnupláss svipuð og Vestmannaeyjar, þó ekki kannske í eins stórum stíl, hafa fengið þetta nú þegar.

Svo hafði ég hér erindi frá bæjarstjórn Vestmannaeyja, sem hefur verið talsvert um rætt milli stjórnarvalda. Það er um það að koma upp heilsuverndarstöð í bænum í sambandi við sjúkrahúsið. Húsnæði sjúkrahússins er hvergi nærri fullnægjandi til sjúkrahúsrekstrarins eins samans, og þess vegna er ekki hægt að reka þar það, sem kallað er heilsuvernd. En svo vill til, að stórhýsi nokkurt stendur ekki alllangt frá sjúkrahúsinu og er að beztu manna yfirsýn vel til þess fallið að hafa þar heilsuverndarstöð. Eftir að bæjarstjórn hafði ákveðið að kaupa þetta hús sem heilsuverndarstöð, með því skilyrði, að ríkissjóður legði fram tilskilinn hluta, sem er álitinn vera 2/5 af andvirðinu, þá var þetta borið undir og leitað til hæstv. fyrrv. heilbrmrh., sem gaf út bréf um það, að hans ráðuneyti lofaði, að fyrir þessu skyldi verða greitt á réttan hátt samkv. lögum, þannig að bærinn gæti komið þarna upp þessari heilsuverndarstöð á grundvelli laga um sjúkrahús, en loforð hæstv. ráðh. var að vísu bundið því skilyrði, að fjárveitingavaldið legði fé til þess, sem hér um ræðir.

Nú tók ég eftir því í ræðu hv. frsm. meiri hl. fjvn., að hann gat um það, að þetta erindi hefði til þeirra komið, og vænti ég þá þess, að á það hafi verið litið með vinsemd, þótt hv. n. hafi ekki beinlínis flutt um það till. En til þess að lyfta undir málið hef ég leyft mér að flytja brtt. við þann lið, 12. gr. IX., um læknisbústaði og sjúkrahús, að aftan við liðinn bætist athugasemd, eins og þar segir, að þessi upphæð, sem er um 150 þús. kr. eða 2/5 af kaupverði eignarinnar, verði goldin af því fé, sem lagt er til sjúkrahúsa.

Um leið vil ég styðja mál hv. þm. A-Húnv. um það, að aukin sé upphæð sú, sem ætluð er til byggingar sjúkrahúsa og var ákaflega litil í frv., eins og það var upphaflega. Hv. fjvn. hefur að vísu gert þar á nokkra bragarbót, en ég held, að hv. þm. A-Húnv. hafi farið þar með fyllilega rétt mál, þar sem hann segir, að þessi upphæð nægi alls ekki til þess að fleyta fram þeim sjúkrahúsbyggingum og öðru fleiru, sem hann taldi upp og er á döfinni, og það beri nauðsyn til þess að hækka hana nokkuð.

Hv. 9. landsk. minntist á tillag til leikfélags Vestmannaeyja. Ég er fyllilega samþykkur honum í því, og ég var raunar búinn að fara fram á það við hv. fjvn., að hún líti í þá áttina. Þar er nú um svo litlar upphæðir að ræða, að það er varla sanngjarnt að drepa því á dreif sem gert er úti um landið, hvort heldur það er í sveitum eða í kaupstöðum, til þess að halda uppi hollri leiklist. Ég hef oft fyrr talað um þau mál og borið fram tillögu um að styðja að slíkum skemmtunum alls staðar á landinu, þó að árangur hafi nú orðið lítill. Ég vil því mæla með þeirri till., sem hv. þm. var í því efni að lýsa.

Þá hef ég á sama þskj., sem ég minntist á, 280, undir V, farið fram á það, að tónlistarskóli Vestmannaeyja fengi aukið framlag um 5000 kr. Honum eru ætlaðar 10 þús. kr. í fjárlfrv., en bæjarsjóður leggur honum til 15 þús. kr., og mér finnst ekki sanngjarnt að neita um að leggja helming á móti bænum til slíkrar —listaeflingar sem tónlistin er. Yfir höfuð um það, sem verða má fólkinu til uppbyggingar og menntunar, eins og tónlist og leiklist og því um líki, á hv. Alþ. ekki að nema framlög of mjög við neglur sér, en það er því miður landlægt hér á Alþ. að gera það, nema þegar um höfuðstaðinn er að ræða. Þá má taka hvaða skuldabagga sem er á ríkið og landsfólkið til þess. En fólkið úti um kaupstaðina og úti um sveitirnar þarf líka að halda uppí sinni mennt, og það er nóg af óheillaöflum og nóg af snörum og nóg af gildrum — við heyrum það bara í útvarpinu hvern dag — af skemmtanagildrum, sem eru lagðar fyrir fólkið víðs vegar um land, þó að við sýnum viðleitni í því að verðlauna svo eða styrkja hollar iðkanir skemmtana og lista, að þeir, sem fórna sér til að halda þeim uppi í hvaða byggðarlagi sem er, endist til þess. Í þessum efnum finnst mér að oft hafi ríkt hér og ríki enn helzt til mikil skammsýni, um leið og ríkið gerir sér margs konar skemmtanir, sem ekki eru eins hollar fólkinu og að horfa á leik eða hlusta á tónlist, svo að segja að tekjulind, a.m.k. gerir útvarpið það með þeim söng, sem þar gengur alltaf um slíkar skemmtanir víðs vegar á landi hér.

Ég skal svo ekki þreyta menn á lengri ræðu um þessi mál. Það er satt, sem hv. 9. landsk. sagði, þegar hann minntist á hafnarmál Vestmannaeyinga, að það er ósanngjarnt, — þó að ég hafi orðið að þola það langan tíma, — hvað lítið er lagt fram til hafnarinnar í Vestmannaeyjum. Og þó að mér sé sagt og ég viti það, að hv. fjvn. hafi nú við afgreiðslu þessa frv., eins og raunar hv. fyrrverandi fjvn. gerði í fyrra, gert fyrir mín tilmæli lítils háttar bragarbót á tillögum hv. vitamálastjóra hvað Vestmannaeyjar áhrærir, þá er það sannarlega of mjög numið við neglur sér að ætla í þennan stað, þar sem allir vélbátar landsmanna virðast nú vilja vera, ef pláss væri til, einar 250 þús. kr. til hafnarinnar. Ég fór fram á við hv. fjvn. mjög hóflega upphæð. Það var sama upphæð og bæjarstjórn Vestmannaeyja hafði nefnt við mig, 300 þús. kr., og það fékk ekki byr þar í bili. Ég vildi ekki við þessa umr. vera að bera fram till.. fyrr en þrautreynt væri, hvað hægt væri að fá með samningum við hv. n. Nú hefur hv. 9. landsk. borið fram brtt., sem er stórtækari, og ef með sanngirni væri litið á þessi mál og eitthvað miðað við það, hvað afköstin eru og hvað framleitt er á hverjum stað, þá er fjarri því, að slík till. sé úr lausu lofti gripin.

Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta. Ég ætla að reyna að treysta á hurðir Flosa milli umr. um þau mál, sem ég er ekki ánægður með, og mun að öðru leyti greiða atkv. með þeim brtt., sem snerta þetta frv., eftir því sem mér finnst sanngjarnt og rétt í hverju tilfelli.