08.12.1953
Sameinað þing: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (440)

1. mál, fjárlög 1954

Forseti (JörB):

Það er einn hv. þm. á mælendaskrá, en hann mun ekki vera hér nærstaddur, og gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að hafa tal af honum, en það hefur ekki heppnazt. Ég get þess vegna ekki beðið með fundarhald, þó að svona standi á, og þar sem enginn af öðrum hv. þm. hefur kvatt sér hljóðs, segi ég umr. lokið, en atkvgr. um málið verður frestað.