14.12.1953
Sameinað þing: 25. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

1. mál, fjárlög 1954

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Hv. landsk. þm., Hannibal Valdimarsson, sagði hér m.a., að það hefðu verið lækkaðar fjárveitingar til verklegra framkvæmda á fjárlfrv. Þetta er algerlega rangt. Þær voru nokkru hærri á fjárlfrv., þegar það var lagt fyrir nú, en á síðustu fjárl. Þá sagði þessi hv. þm. meðal annars, að það hefði verið tekinn upp sá siður að borga þm. fyrir að koma á flokksfundi í Reykjavík. Þm. fengu þingfararkaup, þegar þeir voru hér í sumar að vinna að stjórnarmyndunarmálinu. Þar var ekki tekinn upp neinn nýr siður, heldur var stuðzt við fyrri fordæmi í því efni, því að það hefur ætíð verið siður, ef þm. hafa komið saman til stjórnarmyndunar.

Hv. landsk. þm., Bergur Sigurbjörnsson, sagði, að það væri til marks um óskammfeilni okkar, mína og hæstv. forsrh., að við hefðum flutt till. um það, að sá eini ráðherra, sem ekki er þm., fengi þingfararkaup. Ja, sér er nú hver óskammfeilnin, þegar þess er gætt, að þessum ráðh. er skylt að sitja á þingi eins og alþm. Hvaða réttlæti er þá í því, að hann sé eini maðurinn á þinginu, sem enga greiðslu fær fyrir að sitja þar, sem honum er þó skylt að gera? Svona er málflutningur þessa hv. þm. — Þá var hann að sýna fram á, að þessi ráðh. væri ríkinu nokkuð dýr, því að hann hefði líka frítt húsnæði. Utanrrn. á að fylgja ókeypis ráðherrabústaður, og það er ekkert annað, sem gerist, en að utanrrh. fær fritt húsnæði eins og hann á að fá að réttum reglum.

Þá sagði hv. þm. Bergur Sigurbjörnsson, að það væri til marks um ráðdeildina og sparnaðinn, að ég hefði ráðið tvo menn í ríkisþjónustu, sem forstöðumenn vissu ekki, hvað þeir ættu að gera við. Þetta þykja mér tíðindi og á heldur erfitt með að trúa þessu á sjálfan mig. En vildi nú ekki Bergur Sigurbjörnsson segja mönnum, hvað hann á við, svo að þessu sé hægt að hnekkja skilmerkilega eins og öðru samkynja úr þeirri átt? Þess vildi ég óska.

Ég mun svo ekki víkja hér að einstökum atriðum frekar en verður í því meginmáli, sem ég flyt, til svars, en athuga ofur lítið nánar annað kvöld sumt í ræðum hv. stjórnarandstæðinga.

Eftir kosningarnar í vor kom ekki til mála, að mynduð yrði meirihlutastj. nema með tvennu móti, annaðhvort samstjórn Framsfl., Alþfl. og Sjálfstfl. eða samsteypustj. Framsfl. og Sjálfstfl. Engum datt í hug að hafa samstarf við kommúnista. Þeir eru nú svo einangraðir orðnir, að slíkt kemur hvergi til álita nema í Þjóðvfl. Þannig var ástatt í herbúðum Alþfl. og Sjálfstfl., að stjórnarmyndun þeirra tveggja kom sýnilega ekki til greina.

Framsfl. áleit hyggilegast að mynda þriggja flokka stj. og gerði till. um það. Sjálfstfl. reis á móti þeirri hugmynd, og var hún þegar af þeirri ástæðu dauðadæmd. Það er ekki hægt að mynda þriggja flokka stj. nema þrír flokkar vilji. Vegna þess, hvernig Sjálfstfl. tók í málið, reyndi aldrei á það, hvort Alþfl. hefði viljað slíka stjórnarmyndun. Tvennt vakti aðallega fyrir framsóknarmönnum með þessari till.: að reyna að fá með þessu móti sem víðtækust samtök um að leita lausnar á stjórnarskrármálinu og fá jafnframt aukinn stuðning stjórnarstefnunni. Þegar þetta tókst ekki, var tvennt til: myndun meirihlutastj. Framsfl. og Sjálfstfl. eða einhvers konar minnihlutastjórn, sem hlaut að þýða lítt eða ekki starfhæft Alþ. Þótti framsóknarmönnum fyrri kosturinn hyggilegri.

Mikið djúp er staðfest milli Framsfl. og Sjálfstfl. og víðtækur ágreiningur um mörg mál. Kemur þetta ekki sízt fram, þegar flokkarnir hafa unnið saman lengi. Í samningum um stjórnarmyndun lagði Framsfl. að sjálfsögðu áherzlu á þau af baráttumálum sínum, sem hugsanlegt var að semja um við Sjálfstfl. og Framsfl. hafði lagt mikla áherzlu á í kosningabaráttunni. Má þar til nefna raforkumálin, íbúðamálin, ný skattalög, aukið rekstrarfé til atvinnuveganna, áframhaldandi jafnvægi í þjóðarbúskapnum og þar með aukið frelsi í atvinnu- og viðskiptamálum. En þau mál, sem með engu móti er hægt að semja um við Sjálfstfl., verða að bíða betri tíma.

Höfuðstefna stj. er sú að auka með öllu móti framleiðsluna, halda jafnvægi í þjóðarbúskapnum með síaukinni framleiðslu og afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög. Á þennan hátt gera menn sér vonir um að geta fremur aukið en minnkað frelsið í viðskiptum og framkvæmdum, og hefur verið ákveðið að beita sér fyrir stórfelldum framkvæmdum úti um land í raforkumálum.

Ákveðið er að beita sér fyrir aukinni fjárútvegun til íbúðarhúsabygginga og vinna að úrlausn á þeim málum, sem að haldi mætti koma til frambúðar. Er hér um eitthvert mest aðkallandi vandamál að ræða.

Þá eru ákvæði í stjórnarsamningnum um að koma því til leiðar, að framleiðendur sauðfjárafurða eigi kost á rekstrarlánum út á afurðir sínar eftir hliðstæðum reglum og lánað er út á sjávarafurðir. Enn fremur, að endurskoðuð verði framkvæmd rekstrarlána til iðnaðarins með það fyrir augum að koma fastari skipun á þau mál. Ákveðið er að halda áfram að stuðla að öflun atvinnutækja til þeirra byggðarlaga, sem við atvinnuörðugleika eiga að stríða, til þess að fullnægja atvinnuþörf íbúanna og stuðla að jafnvægi í byggð landsins.

Um varnarmálin er það ákvæði í samningnum, að sérstök deild í utanrrn. fari með framkvæmd þeirra, og í framhaldi af því er nú hafið markvisst starf til þess að koma í framkvæmd nauðsynlegum breytingum í þeim málum. Kem ég að þeim nánar hér á eftir.

Í stjórnarsamningnum er ákveðið, að lokið verði á Alþ. því, sem nú stendur yfir, endurskoðun skatta- og útsvarslaga með það fyrir augum að lækka beina skatta og draga með því úr misræmi, sem orðið hefur vegna verðlagsbreyt., og stuðla að aukningu sparifjár.

Í stjórnarsáttmálanum er þess vegna mörkuð djarfleg framfarastefna. Það er mikið verkefni að framkvæma þennan stjórnarsamning og margt, sem vinna verður á því Alþ., sem nú stendur yfir.

Stjórnarmyndun lauk ekki fyrr en í september. Unnið hefur verið ósleitilega síðan í ríkisstj., þingflokkum, nefndum og af einstaklingum að undirbúningi þeirra stórmála, sem samið hefur verið um að hrinda í framkvæmd. En þessum undirbúningi er þó hvergi nærri lokið enn þá. Alþ. verður því að koma saman á ný eftir áramótin og taka þá til meðferðar stórmál, sem ekki hafa enn þá verið fyrir það lögð. Ekki er hægt að segja nú um það með vissu, hvaða frv. verða þá lögð fyrir. Það er t.d. ekki fullljóst enn þá, hvort nýrrar löggjafar er þörf í sambandi við rekstrarlánamálin. Það skýrist næstu vikur. Hitt er aftur á móti augljóst, að leggja verður fram eftir þinghléið og afgreiða frv. til nýrra raforkulaga eða viðauka við raforkulögin, fyrst og fremst til þess að tryggja fjáröflun þá, sem ákveðin er í stjórnarsáttmálanum. Enn fremur, að á framhaldsþinginu verður að gera ráðstafanir til fjáröflunar vegna íbúðarlána. Í fjárlagaræðunni í haust ræddi ég nokkuð um leiðir til fjáröflunar, ráðstafana til þess að auka sparifjársöfnunina og fleira í því sambandi, og fer ég ekki út í það mál hér, enda þau mál enn þá í deiglunni.

Þá er það hin nýja skatta- og útsvarslöggjöf, sem setja á. Það er sannast mála, að á undanförnum árum hafa skattalögin skekkzt, ef svo mætti að orði kveða, mjög verulega vegna verðbólgunnar. Reynt hefur verið að lappa í skattalögin með bráðabirgðaákvæðum til þess að draga úr þessu, en þau ákvæði hafa ekki getað komið í veg fyrir, að stórfellt misræmi hefur skapazt.

Allsherjarendurskoðun skattalaganna hlaut að leiða til lækkunar á beinum sköttum. Á hinn bóginn hafa menn átt í erfiðleikum miklum í sambandi við afgreiðslu greiðsluhallalausra fjárlaga og átt svo mikið undir því, að hún ekki mistækist, að í allsherjarendurskoðun og lækkun hefur ekki verið lagt. Hins vegar hefur skattur á lágtekjum verið lækkaður með sérstakri löggjöf. En nú fer tvennt saman: Mönnum er ljóst, að ekki má lengur draga endurskoðun þessa, þar sem ástand skattamálanna er vafalaust farið að hafa óheppileg áhrif á framleiðslu, tekjuöflun og sparnað, og að afkoma ríkissjóðs hefur verið sæmileg undanfarin ár. Verður því nú látið til skarar skríða.

Ákveðið er að afgreiða fjárlög fyrir áramót, en frv. að nýju skattalögunum er ekki enn komið fram og hefur ekki enn þá verið samið til fulls í mþn., og því spyrja menn eflaust: Hvernig á að afgreiða fjárlög án þess að vita, hverjir skattarnir eiga að vera? En svarið er þetta: Í sambandi við afgreiðslu fjárl. hafa stjórnarflokkarnir nú gert um það viðbótarsamning sín á milli, að hin nýju skattalög skuli við það miðuð, að þau gefi í heild 20% lægri skatttekjur en gildandi skattalög hefðu gert við sömu ástæður, m.ö.o., að lækkun á beinum sköttum til ríkissjóðs á að nema sem svarar 20% af heildarupphæð skattanna. Á hinn bóginn mega menn ekki draga þær ályktanir, að skattur hvers einstaklings hljóti að lækka um 20%, þótt heildarskattinum sé ætlað að lækka um þessa hundraðstölu. Lækkun í sumum dæmum getur orðið meiri, en í öðrum minni. Þetta stafar af því, að hér kemur ótalmargt til greina, þegar ákveða skal, hvar skattalækkunin á að koma fram, t.d. fyrst skattstiginn sjálfur, þá hækkun persónufrádráttar, hvernig hjón eru skattlögð, skattfrelsi sparifjár eða skatthlunnindi vegna sparnaðar o.s.frv., o.s.frv.

Þá vil ég minnast á það í sambandi við verkefni þingsins, að sérstök n., skipuð af fjmrh., hefur starfað að athugun á því, hvernig, hægt væri að færa til tollabyrðina til nokkurra hagsbóta fyrir iðnaðinn. Vona ég, að það mál komi til meðferðar á þessu þingi.

Af því, sem nú hefur verið sagt, sjá menn, að mikið verkefni bíður Alþ., þegar það kemur saman aftur, þótt fjárl. verði afgreidd nú fyrir áramótin.

Ég mun þá þessu næst víkja nokkuð að stjórnarandstæðingum og fjárhagsmálunum sérstaklega, en síðar að varnarmálunum, en ádeilur hv. stjórnarandstæðinga á þessu þingi hafa einkum beinzt að þessum málum.

Ég held, að óspilltum mönnum hljóti að blöskra málflutningur stjórnarandstæðinga í fjárhagsmálum og framkoma þeirra öll í þeim efnum. Þeir bera það blákalt fram, þvert ofan í allar staðreyndir, að núverandi og fyrrverandi stjórn hafi hækkað skattana og aukið stórkostlega alla eyðslu í ríkisrekstrinum. Enn fremur halda þeir því fram, að hægt væri að koma á stórfelldri lækkun á ríkisútgjöldum með aukinni ráðdeild einni saman, án þess að nokkur missti nokkurs í. Það er t.d. stagazt á því dag eftir dag, ár eftir ár, að fyrir 1950 hafi söluskatturinn runnið í útflutningsuppbætur. Þó hefur þetta jafnoft verið leiðrétt og bent á þá staðreynd, að söluskatturinn rann áður ekki siður til almennra útgjalda. Fyrir Alþ. 1950 lá fjárlfrv., þar sem aðeins stóðust á tekjur og gjöld á pappírnum, og var þá gert ráð fyrir söluskattinum öllum eins og hann lagði sig teknamegin, en engum útflutningsuppbótum gjaldamegin. Er hægt að fá gleggri sönnun en þetta fyrir því, að fyrir gengislækkunina þurfti á öllum söluskattinum að halda til þess að standa undir greiðslum ríkissjóðs, þótt engar útflutningsuppbætur væru taldar?

Síðan gengislækkunin var framkvæmd, hafa skattar og tollar verið lækkaðir, en ekki hækkaðir. Eitt einasta ákvæði hefur verið sett til hækkunar, og það var þegar söluskattur af innflutningi var færður úr 6% í 7%. En á móti koma þessar lækkanir: Verðtollsviðauki var lækkaður úr 65% í 45%, ný löggjöf um sérstaka lækkun á tekjuskatti af lágtekjum var sett, og tollar á kaffi og sykri voru afnumdir í fyrravetur, og nú á að bæta við 20% lækkun á beinum sköttum til ríkissjóðs. Það hefur því orðið veruleg lækkun á sköttum og tollum síðan 1950.

Tekjur ríkissjóðs hafa á hinn bóginn hækkað í krónutölu vegna aukinnar framleiðslu, hækkaðra þjóðartekna og vegna hækkaðs verðlags. Útgjöld ríkissjóðs hafa einnig óhjákvæmilega hækkað að krónutali vegna verðhækkunarinnar. Það sýnir fálm og ráðleysi stjórnarandstæðinga, að reynt er að halda því fram, að þessar hækkanir ríkistekna í krónutölu séu aukin skattabyrði á þjóðinni. Verðmæti þessarar röksemdar sést bezt á því, að eftir sama hugsanagangi ætti það að sýna léttari skattabyrði, ef ríkistekjurnar drægjust saman vegna kreppu og minnkandi framleiðslu. Ætli stjórnarandstæðingar vildu ganga inn á að kalla slíkt skatta- og tollalækkanir? Sannleikurinn er sá, að árangur þeirra ráðstafana, sem gerðar hafa verið til eflingar og aukningar framleiðslunni, speglast þannig í hinum sameiginlega búskap landsmanna, ríkisbúskapnum, að þau skatta- og tollalög, sem áður ekki dugðu til þess að forða frá stórfelldum hallarekstri með því öngþveiti, sem honum fylgdi, hafa nú á síðari árum þrátt fyrir verulegar tilslakanir á tollum og sköttum dugað til þess að halda ríkisbúskapnum greiðsluhallalausum. Hafa þó verið aukin verulega framlög til verklegra framkvæmda og ný stórfelld framlög ákveðin til þess að borga niður söluverð, en hér hefur þá líka komið til aukið aðhald í ríkisbúskapnum.

Um hækkun ríkisútgjaldanna er það fyrst og fremst að segja, að þau hlutu að hækka með hækkandi verðlagi og kaupgjaldi, eins og greiðslur allra annarra stofnana og einstaklinga í landinu. Sé litið á þróun þessara mála, þá kemur í ljós, að ríkisútgjöldin hafa sízt hækkað meira en hækkanir hafa orðið á greiðslum yfirleitt, heldur þvert á móti minna, enda fullyrði ég, eins og ég sagði áðan, að meira hefur verið gert til þess að sporna við hækkuðum ríkisútgjöldum en áður tíðkaðist.

Heildarsvipurinn á þessum málum er þá einnig sá, að hefði ekki nú fallið á ríkissjóð stórkostleg útgjaldaaukning til trygginga og dýrtíðarráðstafana vegna lausnar verkfallsins á s.l. vetri, þá hefðu fjárl. getað lækkað núna, og hefði það sannarlega orðið nýstárlegur atburður í sögu Alþingis.

Auðvitað verður ætið að gera sem öflugastar ráðstafanir til þess að standa á móti óeðlilegum útgjöldum og endurskoða alltaf af og til starfshættina til þess að reyna að finna leiðir til sparnaðar í beinum rekstri þjóðarbúsins. Það er á hinn bóginn bein blekking, að með þess háttar ráðstöfunum einum verði nokkurn tíma hægt að lækka fjárl., svo að verulegu muni. Yfir 90% af útgjöldum ríkisins eru lögboðnar greiðslur og framlög til alls konar þjónustu, sem menn heimta úr öllum áttum að sé aukin, en ekki dregið úr. Það mundi því þurfa gagngerða stefnubreytingu og stórlækkuð framlög til dýrtiðarmála og tryggingarmála, heilbrigðismála, menntamála, dóms- og lögreglumála, utanríkismála og verklegra framkvæmda o.s.frv., ef verulega ætti að draga til lækkunar á ríkisútgjöldum. Það er öllum til tjóns að leyna þessum staðreyndum.

Nú horfir þannig um ríkisútgjöld og ríkistekjur og afgreiðslu fjárl. yfirleitt, að fjárl. standast ekki á næsta ári, nema góðærið haldist og ekkert beri út af. Ber því brýna nauðsyn til, að allsherjarafhugun fari fram á öllum ríkisútgjöldum, lögboðnum ekki síður en ólögboðnum, en ég vara enn við þeirri blekkingu, að slík endurskoðun leiði til lækkunar ríkisútgjalda, svo að nokkru nemi, nema breytt verði útgjaldalöggjöfinni, eða að hægt sé að framkvæma slíka lækkun á ríksútgjöldum, nema menn missi stórkostlega í um margs konar framlög, sem menn gjarnan vildu halda.

Tekjuáætlun fjárl., eins og þau liggja nú fyrir við 3. umr., er orðin nærri því jafnhá og tekjurnar verða í ár, þegar búið er að draga frá óvenjulegar tekjur vegna stóru framkvæmdanna, og er þá nærri því ekkert fyrir alveg óhjákvæmilegum umframgreiðslum, sem alltaf hljóta að verða.

Ef málflutningur stjórnarandstöðunnar ætti að verða að nokkru gagni, þá þyrftu stjórnarandstæðingar að sýna það, hvernig þeir vildu afgreiða fjárhagsmálin, ef þeir mættu ráða. Allt þetta gaspur þeirra t.d. um sparnað er algerlega þýðingarlaust og verra en það, ef þeir ekki segja, hvað það er, sem á að spara. Ef nokkurt mark væri takandi á tali stjórnarandstæðinga um eyðsluna og sukkið, þá ætti ekki að vera vandi fyrir þá að gera sig vinsæla með flutningi till. um að fella þetta sukk niður. En það undarlega skeður, að þótt þeir séu særðir ár eftir ár til þess að sýna það í till., hvað eigi að spara, þá fást þeir ekki með nokkru móti til þess. — 8. þm. Reykv., Gils Guðmundsson, ræddi þetta nokkuð við 2. umr. fjárl. og sagði, að koma þyrfti á stórfelldum sparnaði og lækkun ríkisútgjalda. Síðan tók hann það fram, að til þess þyrfti breytingu á lögum, en af því leiddi aftur, að ríkisstj. yrði að hafa forgöngu. Þar með þóttist hann laus. Hugsanagangurinn er vist þessi: Þingmönnum er rétt að flytja frv. um aukin ríkisútgjöld, svo að tugum milljóna og hundruðum milljóna skiptir, það er vandalaust og sjálfsagt, en að þeir eigi að nota þingmannsrétt sinn til þess að flytja frv. um lækkun á ríkisútgjöldum, það var nú annað mál. Þegar kemur að því, þá á lýðskrumið eitt að duga. Er hægt að auglýsa umkomuleysi sitt átakanlegar en með þessu?

Þá kemur að hv. 3. landsk. þm., Hannibal Valdimarssyni. Hann segir í nál. sínu um fjárlögin:

„Það er síður en svo, að þess hafi orðið vart í sambandi við samningu þessa fjárlfrv. eða meðferð þess, að nokkur ný stefna væri upp tekin í sparnaðarskyni.“ — Og nú skulu menn taka eftir; nú kemur framhaldið. — „Þess vegna hef ég ekki flutt till. í þetta sinn um neina meiri háttar endurskoðun á gjaldabálknum.“

Einmitt það. Þess vegna hefur hann ekki flutt meiri háttar till. Menn skyldu nú halda, að það væri meiri, en ekki minni ástæða fyrir þingmanninn að flytja lækkunartill. um þær útgjaldagreinar, sem hann sér óþarfastar, þegar stjórnin lætur það undir höfuð leggjast, eftir því sem hann segir. Þegar skynsamir menn láta svona fjarstæður frá sér fara, þá er eitthvað orðið bogið við málstaðinn.

Ég hef kynnt mér till. stjórnarandstæðinga um afgreiðslu fjárhagsmála á þessu þingi, bæði íill. þeirra við fjárl., afstöðu þeirra til tekjustofna og frv. þau, sem þeir hafa flutt. Ég hef fengið færustu menn til þess að gera með mér áætlun um áhrif þeirra á afkomu ríkissjóðs. Og hver er svo niðurstaðan?

Tökum fyrst Alþfl. Þeir eru á móti framlengingu söluskattsins. Þeir eru á móti verðtollsviðaukanum. Hér má taka það fram í leiðinni, að þeir voru auðvitað með framlengingu hvors tveggja, þegar þeir áttu þátt í ríkisstjórn. Þeir vilja þarna fella niður 130 millj. af tekjum ríkissjóðs. Útgjaldafrv. þeirra og till. til útgjalda í sambandi við fjárl. mundu auka útgjöldin um a.m.k. 50 millj. Samkv. þessu yrði 180 millj. kr. greiðsluhalli, ef þeir kæmu fram vilja sínum.

Kommúnistar eru á móti framlengingu söluskattsins og framlengingu allra tekjuviðauka yfirleitt. Þeir vilja sem sé lækka tekjur ríkisins um a.m.k. 150 millj., og útgjaldafrv. þeirra og útgjaldatill. við fjárl. mundu kosta ríkissjóðinn nær 210 millj. Greiðsluhallinn yrði því a.m.k. 300 millj., ef þeir kæmu fram vilja sínum, eða m.ö.o.: yfirboð þeirra eru helmingi meiri en yfirboð Alþfl., og er það í réttu hlutfalli við það, sem venjulega er.

Þjóðvarnarmenn dansa svo með í þessu og beita sér á móti tekjum, en láta rigna útgjaldatillögum.

Mér sýnist þurfa harðan haus til þess að standa hér dag eftir dag á Alþingi, deila á ríkisstj. og stjórnarflokkana fyrir há ríkisútgjöld, en moka svo inn í þingið till. um að fella niður tekjustofna ríkisins og stórauka útgjöldin. Og þeir menn eru ekki vandir að virðingu sinni, sem leika svona skrípaleik ár eftir ár. Það er ekki hægt að sjá annað en að stjórnarandstæðingar allir í hóp hafi tekið sér kjörorðið: Niður með tekjurnar, upp með gjöldin. — Þessi loddaraleikur allur saman minnir mig á gamla sögu um hefðarmey og afgreiðslumann í skóbúð. Stúlkan spurði eftir skóm. Afgreiðslumaðurinn var á þönum um allar hillur, reif fram alla skó, sem fyrirtækið hafði á boðstólum, en ekkert hentaði stúlkunni. Þegar þar var komið, sagði búðarmaðurinn: Nú sé ég, að hverju þér leitið. Þér leitið eftir skóm, sem eru stórir að innan, en litlir að utan, en þannig skó höfum við ekki. — Stjórnarandstaðan virðist ætla að telja þjóðinni trú um, að þeir hafi slíkan skófatnað á boðstólum.

Ég mun nú þessu næst víkja nokkuð að hinum síamísku tvíburum í íslenzkri pólitík, kommúnistum og þjóðvarnarmönnum, áhrifum þeirra á stjórnmálalífið og sérstaklega afstöðu þeirra í utanríkismálum, því að á þessu Alþingi hefur ekki linnt ádeilum á ríkisstj. og raunar lýðræðisflokkana þrjá fyrir afstöðu þeirra í utanríkismálum og varnarmálum sérstaklega.

Forustulið kommúnista sveitist hér blóðinu við að koma á þjóðskipulagi kommúnismans, einræðisríki og lögregluríki á miðaldavísu. Þetta eru hrein pólitísk nátttröll, hreinir afturhaldsmenn, sem boða afsal flestra mann- og þjóðfélagsréttinda, sem beztu menn mannkynsins hafa fórnað lífi sínu til þess að fá viðurkennd. Forustulið kommúnista er fimmta herdeild kommúnismans á Íslandi og vinnur í þágu heimsyfirráðastefnu kommúnismans. Höfuðverkefni þessa liðs í öllum löndum er að sundra samtökum um varnir landanna gegn yfirgangi kommúnismans, fá smáþjóðirnar til þess að kúra sig aðgerðarlausar niður, hverja í sínu horni, eins og gert var þegar nazisminn ógnaði, allt til þess, að þær geti orðið innlimaðar í kommúnismann þegjandi og hljóðalaust, eins og Laxness sagði um Pólverja, til þess að þjóðirnar geti orðið sem fyrirhafnarminnst færðar undir ógnarstjórn kommúnista.

Kommúnistar vita vel, að það er þýðingarmest í þessari baráttu að rógbera Bandaríkin. Nógu náin samvinna frjálsra þjóða í Evrópu við þau er sem sé hið eina, sem getur komið í veg fyrir, að Vestur-Evrópa verði kommúnistum að bráð. Auðvitað er kommúnistum ljóst, hvílík fásinna hlutleysistalið er. Hvað ætli þeir gerðu við þá menn í Póllandi og Tékkóslóvakíu, sem færu að prédika hlutleysisstefnu? Með falsi, fagurgala og blygðunarlausum yfirboðum hefur afturhaldsliði kommúnista hér á landi tekizt að fá verulegt kosningafylgi. Það fólk, sem hefur kosið þá, á þó vel flest enga samleið með þeim.

Hefur þetta komið glöggt í ljós, þegar línur urðu skýrari eftir styrjöldina. Fylgið hrynur af kommúnistum alls staðar, þar sem menn eru frjálsir gerða sinna, og svo mun einnig fara hér. Kommúnistar eru gersamlega einangraðir. Enginn getur unnið með þeim, og þeir eru áhrifalausir með öllu, þ.e.a.s., þeir koma engu fram. Áhrif þeirra eru nú eingöngu í því fólgin, að enn þá tekst þeim að fá allstóran hóp til kosningafylgis við sig, sem á enga samleið með þeim. Þessu fólki halda þeir á pólitískri eyðimerkurgöngu, sem til einskis annars leiðir en að styrkja þau öfl í landinu, sem lengst eru til hægri.

En þegar neyðin er stærst, þá er hjálpin næst, mætti kannske segja, fljótt á litið, þegar þess er minnzt, sem skeði á þessu ári í sambandi við kommúnista og hlutverk þeirra hér. Þegar opinberir talsmenn alþjóðakommúnismans hér á landi voru að missa tökin, voru að verða áhrifalausir, gáfu sig fram aðrir menn, flestir raunar úr röðum kommúnista, en aðrir úr hópi nytsamra sakleysingja og pólitískra sérvitringa, til þess að reyna að taka slakann af þræðinum. Þeir stofnuðu sérstök pólitísk samtök til þess að vinna að því eina máli, sem kommúnistar hafa áhuga fyrir, og því eina máli, sem nokkru máli skiptir að dómi kommúnista, eins og nú standa sakir. Þeir stofnuðu flokk, sem á að hafa það hlutverk eitt að koma því til vegar, að Ísland verði varnarlaust land í heimi, sem er grár fyrir járnum, að Ísland segi sig úr samtökum frjálsra þjóða á vesturhelmingi jarðar, samtökum nágranna sinna, og taki upp stefnu, sem ekkert ríki jarðarinnar fylgir, óvopnað og óvarið hlutleysi.

Þjóðvfl. hefur svarið þess dýran eið, að afstaða hans velti öll á þessu eina máli, enda ekki út af öðru settur upp. Hann á ekki samstöðu með neinum flokki í þessu eina höfuðmáli sínu nema kommúnistum. Þessi flokkur getur því aldrei orðið annað en karfa á hjóli kommúnismans, hann er hlekkjaður við kommúnista, eins og vanskilamenn voru fyrr á öldum hlekkjaðir við lánardrottna sína.

Kommúnistar eru í pólitískri útlegð í öllum lýðræðislöndum, og Þjóðvfl. hefur sjálfur dæmt sig í sams konar útlegð. Þeir, sem styðja Þjóðvfl. og ekki eru kommúnistar að skoðun, heldur umbótamenn, en óánægðir með ástand varnarmálanna, gera sig verra en áhrifalausa. Þeir styðja hægri öfl landsins hreinlega með því að dreifa liði umbótamanna.

Málflutningurinn á höfuðbóli kommúnista hér er kunnugur orðinn í máli málanna, varnarleysi Íslands, en hvernig tala þeir í hjáleigunni? Mjög á sömu lund, en þó frábrugðið í einu atriði, þeir segjast sem sé ekki vinna fyrir austrið. Málflutningurinn er þessi, þegar orðskrúðið er rifið utan af: Í fyrsta lagi: Tvö stórveldi keppa um heimsyfirráð. Hjá þeim átökum eiga smáþjóðir að sneiða. Í öðru lagi: Atlantshafið ver Ísland, eins og það hefur áður gert. Varnir eru því óþarfar. Í þriðja lagi: Allar varnir auka árásarhættuna og líkur fyrir því, að Ísland verði vettvangur styrjaldar.

Ekkert af þessu fær staðizt. Hin gífurlegu átök í heiminum eru ekki á milli tveggja stórvelda, sem keppa um heimsyfirráð. Það er hrein fölsun að halda slíku fram. Annars vegar er að vísu hið mikla ríki kommúnismans með hjálöndum sínum, sem mundi svíkja heilögustu heit trúarbragða sinna, et það keppti ekki að heimsyfirráðum kommúnismans. Þess vegna hófu Rússar hinn ægilega vígbúnað eftir stríðið, meðan hinir afvopnuðust og bjuggu sig undir frið. Hins vegar eru lýðræðisríki Vestur-Evrópu, öll nema tvö, Svíþjóð og Sviss, sem vegna reynslunnar ala enn þá von, að þau geti fengið að sitja hjá í styrjöld, en eru þó grá fyrir járnum. Og með lýðræðisríkjum Vestur-Evrópu standa Bandaríkin. Ef hin miklu ósannindi um ríkin tvö, sem keppa um heimsyfirráð, væru eitthvað annað en hrein fölsun, þá mundu afskipti Bandaríkjanna af varnarmálum Vestur-Evrópu að sjálfsögðu vera helzta áhyggjuefni manna þar. En hvað segja staðreyndirnar? Höfuðáhyggjuefni frelsisunnandi manna í Vestur-Evrópu er einmitt hitt, að einangrunarsinnar í Bandaríkjunum verði svo sterkir, að Bandaríkjamenn minnki afskipti sín af málefnum Evrópu, bæði efnahags- og varnarmálum. Lýðræðisríkjum Vestur-Evrópu er það ljóst, ekki síður smáþjóðunum en hinum, að frelsi þeirra, tilvera þeirra sem sérstakra þjóða veltur blátt áfram á því, að Bandaríkin fáist til þess að leggja nógu mikið fram til varnar Vestur-Evrópu. Svo á að byggja hér heilan þjóðmálaflokk á þeirri staðhæfingu, að varnarsamtök lýðræðisríkjanna séu ekki til, það séu bara tvö stórveldi, sem berjist. „Þeir einir munu vera, að ég hirði aldrei, þó að drepist,“ sagði Mörður Valgarðsson forðum. Þessi orð rógberans mikla, þrungin mannvonzku, siðleysi og því fyllsta ábyrgðarleysi, sem hafa verið íslenzku þjóðinni hneykslunarhella og aðvörunarmerki um margar aldir, eru gerð að eins konar einkunnarorðum nýrra þjóðmálasamtaka. Höfuðtilgangurinn er að rótfesta þá skoðun á Íslandi, að varnarsamtök frændþjóða okkar og nágranna, sem þeir byggja allar frelsisvonir sínar á nú, fyrirfinnist ekki, séu dulbúnar árásarfyrirætlanir stórveldis. Íslendingar skulu því aldrei hirða, hvorir drepast. Hér er ekki aðeins staðreyndum snúið við. Það bætist ofan á, að þetta er gert í því skyni, bæði hér og annars staðar, að kæfa þann neista samábyrgrar hugsunar, sem kviknað hefur á hættutímum, sundra þeim samhug manna af mörgum þjóðum, sem einn er þess megnugur að tryggja varanlegan frið. Hér er þess í stað slegið á lægstu strengi sérhyggju og sundrungar.

Kem ég þá að öðru atriðinu. Atlantshafið ver Ísland eins og það hefur áður gert, segja þeir. Atlantshafið hefur ekki nú í margar aldir verið Íslandi vörn, þó að svo væri á dögum Haralds hárfagra og Ólafs helga. Ef ofbeldis- og yfirgangsmenn eins og þeir, sem nú ráða í Austur-Evrópu, hefðu ráðið á Atlantshafinu síðustu aldirnar, væru Íslendingar fyrir löngu hnepptir í þrældómsfjötra þeirra og sætu í þeim enn í dag.

Íslendingar hafa ekki lifað hér í skjóli Atlantshafsins, heldur búið við óbeina vernd brezka flotans, sem hefur ráðið á Atlantshafinu. Þetta var einhlítt talið fram að síðustu styrjöld, og á því var þá öll afstaða Íslendinga út á við byggð.

Ef hægt væri að treysta þessu áfram, þyrftum við engar áhyggjur að hafa af varnarmálum sjálfra okkar vegna, en eftir væri þó tillitið til annarra. En hver þorir að halda því fram í fullri alvöru, að þetta sé óbreytt? Flotastyrkur landanna hefur gerbreytzt. Aðferðir í sjóhernaði hafa gerbreytzt og lofthernaður orðinn höfuðgrein hernaðar. Reynsla síðustu styrjaldar sýnir, að afstaða eylanda í styrjöld er allt önnur en hún áður var.

Allt bendir til þess, að í upphafi næstu styrjaldar verði kapphlaup um að ná eylöndum þeim í Atlantshafinu, sem mesta hernaðarþýðingu hafa. Eitt þeirra er Ísland. Hafið er engin vörn. Það er hægt að sigla yfir hafið. Loftið er heldur engin vörn. Það er hægt að fljúga umhverfis jörðina. Allt er því gerbreytt frá því, sem áður var.

Þá kem ég að síðasta atriðinu: Varnir auka árásarhættuna. Eftir þessari kenningu lifðu smáþjóðir Vestur-Evrópu allt fram að síðustu styrjöld. Afleiðingin varð heimsstyrjöldin sjálf og allar hennar hörmungar. Hvað segja Danir, Norðmenn, Belgir, Hollendingar og Luxemborgarmenn um þessa kenningu? Þeir hafa fengið nóg af henni. Allar þessar þjóðir sveitast blóðinu, sumar þeirra bókstaflega við nefið á Rússum, til þess að styrkja og efla varnir sínar. Allar eru þessar þjóðir ásamt Íslandi í Atlantshafsbandalaginu.

En þá segir einhver: Það er öðru máli að gegna um Ísland. — En hví skyldi svo vera? Hver er afstaða Íslands? Mundi Ísland ekkert keppikefli vera ófriðaraðilum, ef allar hafnir á Íslandi væru eyðilagðar, allir flugvellir sömuleiðis, eins og sumir virðast láta sér detta í hug? Hernaðarþýðing Íslands er slík orðin, að jafnvel þótt eyðilögð væru öll þess háttar mannvirki á Íslandi nú þegar og menn skriðu í hóla, þá hefði landið eftir sem áður ómetanlega þýðingu í hernaðarátökum og mundi verða um það keppt. Hér við bætist, að flugvellir okkar verða aldrei þeirrar náttúru, til hverra ráða sem við gripum, að á þeim geti ekki aðrar flugvélar lent en þær, sem flytja óvopnað fólk og friðarvarning, og hafnir okkar heldur ekki þannig gerðar, að þær loki sér sjálfkrafa eða hverfi sem dögg fyrir sólu, ef óvinir nálgast. Það er því staðreynd, að Ísland hefur stórfellda hernaðarþýðingu með friðarmannvirkjum einum á landi.

Árásarhættan er því fyrir hendi, sem nú er komið, engu síður þótt menn tækju þann kost, einir allra þjóða, að grafa höfuðið í sandinn. Það gildir því sama um okkur og allar hinar þjóðirnar: Varnarráðstafanir draga úr árásarhættu. Sameiginlegar varnarráðstafanir allra lýðræðisríkjanna draga úr ófriðarhættu. En fríður er eina örugga vörnin. Þjóðir Vestur-Evrópu hafa ekki nú eftir stríðið aðhyllzt þá kenningu, að hver ætti að bæla sig niður í sínu horni og krjúpa fyrir ofbeldinu, aðallega í þeirri von, að það yrði ráðizt á hina. Ef Bandaríkjamönnum hefði verið bægt burt úr Evrópu til þess að þóknast kommúnistum og fylgifiskum þeirra, þá væri öll Vestur-Evrópa nú undir járnhæl kommúnismans. Á þessu getur enginn vafi leikið. Ísland væri þá eins komið og hin löndin í Evrópu, nema Bandaríkjamenn hefðu komið í veg fyrir það. En þá væri líka Ísland orðið í fremstu víglínu gegn kommúnistískri Evrópu. Mundi þá mörgum þykja þröngt fyrir sínum dyrum. En svo illa er ekki komið. Og það er því að þakka, að þjóðir Evrópu hafa með stuðningi Bandaríkjamanna gert samtök til varnar frelsinu og haft þá að engu, sem reyna að hræða fólk til þess að gefa upp frelsið varnarlaust. Þannig fellur blekkingarvefur kommúnista og þjóðvarnarmanna, þegar við hann er komið, eins og vefur köngulóarinnar. Kenningar þeirra standast ekki rökræður eða gagnrýni. Því meira sem málið verður rætt, því betur skýrist þetta fyrir mönnum.

Höfuðúrræði þjóðvarnarmanna og kommúnista verður þá að gera þessi mál að tilfinninga- og æsingamálum og þyrla upp sem mestu moldviðri. En þeim mun ekki takast að æra Íslendinga. Þjóðvarnarmenn eru t.d. sjálfir farnir að finna tómahljóðið í sínum kenningum, farnir að þreytast á endurtekningunum og grípa þá til þess að gorta af þeim áhrifum, sem þeir þegar hafi haft, og það hafa þeir gert á þinginu nú upp á síðkastið. Snemma komast þeir á raupsaldurinn, og ætla þeir að eldast illa, enda ekki á öðru von. Er það nú orðið eitt höfuðatriðið í málflutningi þeirra, að till. þær um breytt fyrirkomulag í varnarmálum, sem framsóknarmenn hafa gert og verið er að vinna að, séu fram komnar fyrir þeirra baráttu. Tæplega hefur heyrzt hlálegri fjarstæða en þetta gort þjóðvarnarmanna. Endurbótastefnan í varnarmálunum var mótuð á síðasta flokksþingi framsóknarmanna. Það var gert áður en Þjóðvfl. varð til. Það má þá líka nærri geta, hvort það er ráðið til þess að hafa heppileg og skynsamleg áhrif á gang þessara mála að einangra sig í samtökum, sem hafa það markmið eitt að berjast fyrir stefnu kommúnista í utanríkismálum, stefnu, sem enginn flokkur í lýðfrjálsum löndum Evrópu aðhyllist nema kommúnistaflokkarnir og þau furðulegu samtök, sem kalla sig Þjóðvarnarflokk Íslands.

Eins og nú er ástatt, er Íslendingum nauðsyn að hafa hervarnir sjálfra sín vegna og vegna samtakanna, sem miðast við að koma í veg fyrir stríð. Við vonum, að það verði sem skemmst. Það er miklum erfiðleikum bundið að hafa erlendan her í landinu. Það þekkjum við vel. Við verðum að læra af reynslunni, og það er eðlilegt, að svo verði gert. Sú leið er nú farin að gera sér glögga grein fyrir því, í hverju vandkvæðin liggja, og beita sér fyrir þeim breytingum á hervarnarmálunum, sem óhjákvæmilegar eru, til þess að Íslendingar geti haft hér varnir, á meðan þess er þörf að eigin dómi. Þetta er sú stefna í varnarmálunum, sem þjóðhollir menn munu sameinast um. Hún hefur verið skýrt mótuð í einstökum atriðum og að framkvæmd hennar er nú unnið. — Góða nótt.