15.12.1953
Sameinað þing: 26. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (464)
1. mál, fjárlög 1954
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Það var mikil og óvænt æra, að hæstv. forsrh., Ólafur Thors, skyldi sýna það lítillæti í gærkvöld að heiðra Alþingi Íslendinga með návist sinni. Þetta er fremur sjaldgæfur viðburður nú í seinni tíð, og í þau fáu skipti, sem hann hefur rekið höfuðið hingað inn fyrir dyrastaf þingsalar, hefur hann oftast lýst því yfir, að hann hafi nú öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa en að gegna þingskyldu sinni. Trúlega vinnur hann baki brotnu við að finna leiðir til að bæta hag sjómanna og smáútvegsmanna og koma í veg fyrir það, að óviðkomandi náungar, eins og Marabotti og Pipinelli og aðrir slíkir, stórgræði á íslenzkum fiski. Hann er vís til þess að hafa fundið djúphugsuð ráð til að fyrirbyggja verzlunarokur og afnema allan óhóflegan milliliðagróða. Kannske hefur hann líka á takteinum ákveðnar tillögur um að brjóta á bak aftur einokunina í fiskútflutningnum. Það hlýtur næstum því að vera; hann fór í gærkvöld svo mörgum og fjálglegum orðum um viðskiptafrelsi og hinn gífurlega áhuga hæstv. ríkisstj. á því að auka það sem allra mest.
Já, það var vissulega gaman, að hæstv. forsrh. skyldi gefa sér tíma til þess að skjótast hingað upp í ræðustólinn til að flytja landslýðnum fagnaðarboðskap sinn. Hann er oftast hressilegur í máli, hæstv. ráðh., og á það til að slá um sig með gamanyrðum úr þeim verðflokki, sem kallaðir voru fimm aura brandarar hér fyrr á árum, en mundu nú vegna smæðar íslenzku krónunnar mega teljast fimmtíu aura virði. Annars var ræða hæstv. forsrh. í gærkvöld óvenjuþunn, þegar grobbinu um fyrirhuguð afrek sjálfs hans og hæstv. ríkisstj. sleppti. Datt mér í hug undir ræðu hans sagan af prestinum, sem þótti nokkuð mistækur prédikari, en hafði þann sið að spyrja greindan bónda að lokinni messu, hvernig honum hefði þótt ræðan hjá sér. Einu sinni svaraði bóndi: „Ja, þunnt var það nú hjá yður í dag, prestur minn.“ „O, það var ekki við öðru að búast,“ svaraði prestur, „guðspjallið var svo vesalt.“ Svipað mætti hæstv. forsrh. segja eftir að hafa flutt heldur þunna ræðu, þar sem hann lagði út af afrekum og ágæti hæstv. núverandi ríkisstj. Það guðspjall er sannarlega nokkuð vesalt.
Hæstv. forsrh. minntist lítils háttar á ræðu mína í gærkvöld um kjör hlutarsjómanna, þar sem ég sýndi fram á það með sterkum og óhrekjandi rökum, hvernig þeir eru féflettir af hraðfrystihúsum og öðrum fiskseljendum, ríki og óteljandi milliliðum. Það var eins og ræða mín hefði komið dálítið óþægilega við hæstv. ráðh., og var auðheyrt, að hann kveinkaði sér svolítið undan. Varnir hafði hann engar fram að færa, nema stóryrði og máttlaus hróp um það, að ég hefði snúið við staðreyndum. Ekki treysti hann sér tif í einn einasta atriði að hætta sér út í rökræður um vandamál úfvegsins og sjómanna né hið dæmalausa framferði stjórnarvalda gagnvart þessum mikilvæga atvinnuvegi. Þar hafði hann ekkert fram að flytja nema upphrópanir eins og „þvaður“, „ósannindi“ og „öfundsýki“. Er það öfundsýki hjá hlutarsjómönnum, herra Ólafur Thors, að krefjast þess að fá að lifa eins og menn? Veit hæstv. forsrh. það, að fiskverðið, sem sjómönnum er skammtað, hefur verið svo lágt að undanförnu, að fjölmargir bátar hafa ekki fiskað fyrir umsaminni hlutatryggingu? Í hverju slíku tilfelli — og þau eru mörg — verður sjómaðurinn að láta sér nægja trygginguna eina. Og hvað er það þá, sem hann fær fyrir að erfiða 15 –18 stunda vinnudag? Hann fær á vetrarvertíð, þegar tryggingin er hæst, 2950 kr. á mánuði. Af þeirri upphæð verður hann að borga fæði sitt um borð, sem er lágt reiknað 750 kr. á mánuði. Hann fer með í hlífðarföt og vettlinga ekki minna en 300 kr. á mánuði. Skattar eru a.m.k. 300 kr. á mánuði. Þá verða eftir til lífsnauðsynja heimilisins 1600 kr. Treystir hæstv. forsrh. sér til að lifa af þeim launum? Ef hann heldur, að ég fari með rangt mál, þá vil ég ráðleggja honum að láta aka sér í bílnum sínum hérna niður að höfninni og spyrja hlutarsjómennina, hvort ég hafi sagt ósatt.
Hæstv. ráðh. fullyrti, að ég hefði ekki bent á neinar leiðir til að bæta hag hlutarsjómanna. Þetta er rangt. Ég benti einmitt á leiðirnar, en þær voru í sem stytztu máli þessar: Afnám fisksölueinokunarinnar; að sjómenn fái fulla hlutdeild í bátagjaldeyrisálaginu, meðan það er ekki afnumið; að létt verði skattabyrði sjómanna; að sköttum og tollum verði létt af útveginum; og að útvegsmönnum verði kleift að flytja inn nauðsynjar til útvegsins, svo sem olíur og veiðarfæri, án milliliðakostnaðar. Ég spurði einnig hæstv. ríkisstj. í gærkvöld, hvort hún ætlaði ekkert að gera til að rétta hlut sjómanna og smáútvegsmanna, hvort hún ætlaði að láta reka á reiðanum og eiga það á hættu, að ekki verði gert út á komandi vetrarvertíð. Ég lagði áherzlu á þetta, þar eð hér er um að ræða stórmál, sem krefst skjótrar og gagngerðrar úrlausnar. Hæstv. forsrh. skaut sér alveg undan því að gefa nokkurt svar við þessari spurningu. Ég skora enn á hæstv. ráðherra eða einhvern þeirra ráðh., sem tala hér á eftir mér í kvöld, að gefa ótvíræð svör við því, hvað ríkisstj. ætlar að gera til að koma bátunum á flot nú um áramótin. Ætlar hún að senda Alþ. heim í frí fram í febrúar án þess að minnast á þetta stórkostlega vandamál einu orði? Hér er svo mikið í húfi, ekki aðeins fyrir sjómenn, heldur fyrir þjóðina alla, að krefjast verður skýrra svara.
Eitt var dálítið skemmtilegt við ræðu hæstv. forsrh. í gærkvöld, og ég get ekki stillt mig um að minna á það. Eftir að hann hafði ausið úr sér hálfgerðum illhryssingi, um mig og hv. 3. landsk. þm., Hannibal Valdimarsson, minntist hann örfáum orðum á þriðja ræðumanninn, gamlan samráðherra sinn og vin, Brynjólf Bjarnason. Og þá skipti ráðh. nú heldur um tón. Blíðubros færðist yfir andlitið, röddin mildaðist, og því var líkast sem mjúk móðurhönd stryki um kinn á barni. Þetta er þingmönnum engin nýjung. Þeir hafa oft brosað að því, þegar hæstv. forsrh., Ólafur Thors, og kommúnistar ræðast við hérna í þingsölunum, því að þá er ævinlega því líkast að hittist fornir heillavinir, sem grimm og þeim alveg óviðráðanleg örlög hafa lengi meinað að njótast. Hæstv. forsrh. hefur líka margsinnis hælt sér af því að hafa setið í stjórn með kommúnistum og hvað eftir annað vitnað til þeirra sæludaga sem stoltasta tímabils ævi sinnar. Það er því í sannleika dálítið hlálegt, þegar íhaldið er að bregða okkur þjóðvarnarmönnum um fylgispekt við kommúnista. Við höfum aldrei setið með þeim í ríkisstj. Jafnframt vil ég skjóta því hérna inn, svona eins og milli sviga, að það er heldur hlálegt líka að heyra kommúnistana Brynjólf Bjarnason og Karl Guðjónsson tala um íhaldshækjur. Sjálfur er flokkur þeirra gömul íhaldshækja, að vísu í dálitlum lamasessi nú eins og stendur, en kannske tekst þeim Ólafi Thors og Brynjólfi að gera í sameiningu við þessa hækju.
Hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, talaði hér í gærkvöld mestmegnis um Þjóðvfl. og utanríkismál, minntist aðeins lítillega á fjárhagsmálefni, rétt til málamynda. Ræða hans öll var talandi tákn um sálarástand foringja Framsfl., þeirra manna, sem brugðizt hafa herfilegast þeirri vinstri stefnu, sem þeir þóttust eitt sinn fylgja, og finna nú átakanlega, að fylgið hrynur af þeim. Þeir mega hvergi niður stíga, hvarvetna brennur jörðin undir fótum þeim. Þessi hæstv. ráðh. var að tala um, að Þjóðvfl. sundraði umbótaöflum landsins. Mér fannst það nú satt að segja dálítið óviðfelldið að heyra orð eins og framfara- og umbótaöfl koma af munni ráðamanna Framsfl., þeirra manna, sem hafa snúið við kjörorði Tryggva heitins Þórhallssonar: „allt er betra en íhaldið“ — og lifa nú eftir kenningunni: ekkert er jafngott og íhaldið. — Hvert mannsbarn í landinu veit, hver verið hefur nú um langt skeið stjórnmálastefna hæstv. fjmrh., Eysteins Jónssonar. Hans pólitísku hertygi eru íhalds-strigabuxurnar, sem hann hefur nú ekki farið úr, hvorki nótt né nýtan dag, s.l. 10 ár.
Ég nefndi herklæði, og það var vegna þess, að hæstv. fjmrh. sannaði það eftirminnilega í umræðunum í gærkvöld, að hann er stórum verri hernaðarfræðingur en nokkurn tíma fjármálaspekingur, og munu þá ýmsir segja, að nokkuð langt sé til jafnað. Ráðherrann bar enn einu sinni á borð fyrir landslýð þær staðhæfingar foringja hernámsflokkanna, að íslenzku þjóðinni sé mikil vörn í hernaðarbrölti Bandaríkjamanna hér á landi. Þessi rökleysa hefur svo oft verið tætt í sundur, að ég nenni varla að eyða að henni mörgum orðum. Menn hljóta að geta gert sér það ljóst, að hervirkjagerð hér á friðartímum og aðild að hernaðarbandalagi er ekkert annað en fyrir fram pöntuð þátttaka í hugsanlegri komandi styrjöld.
Ráðherrann söng þann hjákátlega söng, að vegna þess að aðrar þjóðir, sem hafa allt aðra aðstöðu en við Íslendingar og allt aðra reynslu en við í sambandi við hernaðarátök meginlandsvelda Evrópu, hefðu ástæðu til að halda uppi hervörnum, þá sé það og þar af leiðandi sjálfsagt, að við gerum það einnig. Það er bíræfni að halda því fram, að allar þjóðir hljóti að taka sömu afstöðu til vandamála, þó að lega landa og öll söguleg rök séu gerólík. Það getur verið eðlilegt og er mjög skiljanlegt, að þjóðir, sem hafa orðið fyrir árásum af meginlandsveldum Evrópu og eru á valdasvæði þeirra, reyni að styrkja vígstöðu sína með hernaðarbandalagi og efla eigin her í þeirri von, að það geti ef til vill eitthvað stoðað, ef illa skyldi fara. Í hópi slíkra ríkja eru Danir og Norðmenn. Þrátt fyrir það hafa báðar þessar þjóðir nettað að hleypa inn í land sitt amerískum her og vitna þar m.a. til biturrar reynslu Íslendinga. Þær smáþjóðir á meginlandi Evrópu, sem sloppið hafa við árásir meginlandsvelda, svo sem Svíar og Svisslendingar, hafna þátttöku í hernaðarbandalögum og halda fast við hlutleysisstefnu sína. Alveg sérstaklega stendur þó á um þær eyþjóðir álfunnar, sem eru algerlega á valdasvæði þeirra þjóða, sem ráða lögum og lofum á heimshöfunum, svo sem Íra og Íslendinga.
Hæstv. fjmrh. sleppti því alveg að minnast á afstöðu Íra, þegar hann var að tala um smáþjóðir Evrópu í gærkvöld, og það var von; það passaði ekki. Írar halda fast við hlutleysi sitt og standa utan allra hernaðarsamtaka. Það veit ráðherrann. Þess vegna þagði hann.
Fjmrh. bar það á borð fyrir landsmenn, að okkur Íslendingum sé engin vörn í Atlantshafinu lengur. Sé miðað við innrás af hálfu meginlandsveldis, sem ræður yfir takmörkuðum flota, er þetta vitanlega alrangt. Yfir 90% af gervöllum herskipa- og kaupskipaflota heimsins er í höndum vesturveldanna. Aðeins vegna þess er það eins og hver önnur fjarstæða að hugsa sér, að Rússar legða í það vonlausa ævintýri að ætla sér að taka landið með innrás, þar eð þeir hefðu enga möguleika til að geta flutt hingað vistir og hergögn handa liði sínu og slík tilraun væri því fyrir fram dæmd til að misheppnast. Hitt er svo annað mál, að í styrjöld væru hernaðaraðilar visir til að varpa hér niður sprengjum og gera stórkostlegan usla, ef hér hefði hreiðrað um sig höfuðandstæðingurinn og hefði hér stórkostlegar bækistöðvar til árása á fjandmennina.
Fjmrh. lagði á það mikla áherzlu, að í baráttu lýðræðisþjóða gegn einræðinu mættum við Íslendingar nú ekki skerast úr leik. Ég vil af því tilefni spyrja Eystein Jónsson: Veit hann, hverjir berjast í hugsanlegri komandi styrjöld og fyrir hverju og um hvað verður barizt? Ég þori að fullyrða, að hann veit það ekki. Það veit enginn. Á skammri stund skipast veður í lofti í afstöðu þjóða. Fyrir rúmlega hálfri öld sagði Salisbury lávarður, forsætisráðherra Breta, að eitt væri a.m.k. víst: Englendingar og Frakkar yrðu aldrei samherjar í styrjöld. Þessa fullyrðingu hefur reynslan gert að engu. Og þó að Eysteinn Jónsson sé greindur maður, þá efast ég um, að hann sé framsýnni og vitrari en Salisbury lávarður.
Þá talaði hæstv. fjmrh. mikið um það, að við Íslendingar mættum ekki skerast úr leik, þegar aðrar þjóðir gengju í hernaðarbandalög. Nú eru margar þjóðir, þ. á m. flestar smáþjóðir á vesturhelmingi jarðar, utan allra hernaðarbandalaga, svo að röksemdin er af þeim sökum einum næsta fátækleg, en af ummælunum eins og þau féllu má þó ráða það, að Eysteini Jónssyni þykja eindæmin bezt. En nú vil ég mínna þennan hæstv. ráðh. á það, að hann er alger eindæmamaður í pólitík. Hann er áreiðanlega eini fjármálaráherra í öllum heiminum, sem gert hefur svo kallaðar varnir landsins að tekjustofni fyrir ríkið, haft þær að féþúfu. Það hefur enginn annar eftir leikið. Og það vil ég segja, ekki aðeins Eysteini Jónssyni, heldur öllum ráðherrunum sex: Betlandi ráðherrar hafa engan siðferðilegan rétt til að tala um hugsjónir í sambandi við þessi mál.
Þá skal ég víkja aftur að innanlandsmálum. Sú var tíðin að hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, og ýmsir fylgismenn núverandi stjórnarflokka töluðu mikið um ráðdeildarsemi og sparnað. Nú heyrist sparnaður varla nefndur í þeim herbúðum, nema þegar til þeirra kasta kemur að skera niður eða drepa till. um verklegar framkvæmdir, einkum í sambandi við tvo meginatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveg og iðnað. Þá er skurðarhnífurinn á lofti og bítur vel. En þegar á það er minnzt að stöðva ýmsan þarflausan fjáraustur og spara rekstrarútgjöld ríkis og ríkisstofnana, þá hefur hæstv. fjmrh. eitt svar á reiðum höndum og endurtekur það hvað eflir annað: Þar er ekki hægt að spara neitt, sem máli skiptir. Þessa skoðun lét fjmrh. í ljós í fjárlagaræðu sinni í fyrra, og vakti sú yfirlýsing þá mikla athygli um land allt. Flokksbræður ráðherrans í tryggasta framsóknarkjördæmi landsins, Þingeyjarsýslu, gerðu þá fundarsamþykkt, þar sem þeir lýstu furðu sinni yfir þessari staðhæfingu ráðherrans og mótmæltu þeirri skoðun, sem þar kom fram. Það eru áreiðanlega fleiri en þingeyskir bændur, sem ekki fást til að trúa því, að hvergi sé hægt að spara á rekstrarútgjaldaliðum fjárlaga.
Allir landsmenn vita, að ein af meinsemdum íslenzks stjórnarfars er sú, að hrossakaup og gegndarlítill fjáraustur valdhafa hefur dregið fjölda fólks frá störfum við framleiðsluna, hrifið það brott úr undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar og raðað því á ríkisjötu, stundum við þarflítið dútl eða ástæðulausa skriffinnsku. Sú stefna hefur síðan leitt til þess, að atvinnuvegirnir sligast æ meir undir síaukinni byrði, því að undir öllum skrifstofunum, undir öllum ráðunum og nefndunum verða þeir að standa. Allur almenningur í landinu er fyrir löngu orðinn þreyttur á þessari ofboðslegu skriffinnsku. Skrifstofurnar, ráðin og nefndirnar hafa sprottið upp eins og gorkúlur, og forstaða þeirra nálega allra er falin gæðingum stjórnarliðsins, oft án tillits til hæfileika, aðeins með hliðsjón af pólitískum litarhætti. Og sagan er ekki öll sögð með þessu. Þegar hinir verðugu stjórnarlegátar hafa fengið til umráða sína skrifstofu, taka þeir að ýta á ríkisvaldið um að fá meira starfslið, stærra skrifstofuhúsnæði, aukin framlög úr almannasjóði. Það vantar stöður handa kosningasmölum flokksins ellegar börnum ráðamanna, tengdabörnum og öðrum vandamönnum. Smátt og smátt lætur ríkisvaldíð undan kröfunum, og það kemur jafnvel fyrir, að sjálfir ráðherrarnir búa til óþarfar stöður handa flokksþjónunum. Og svo er það einkennandi fyrir þessa skriffinnsku alla, að það kemur nálega aldrei fyrir, að fækkað sé á opinberri skrifstofu, hvað þá heldur að slík stofnun sé lögð niður. Jafnvel þótt nýir tímar og breyttar aðstæður geri einhverja af skrifstofum þessum meira en óþarfa, er haldið í þær dauðahaldi, hverja og einustu. Minnist einhver á að draga úr skriffinnskunni, er eins og komið sé við hjartað í stjórnarherrum vorum. Allar sparnaðartill., sem fram koma hér á Alþingi, eru miskunnarlaust drepnar. Hæstv. fjmrh. og stuðningsmenn hans gefa þá ævinlega sama svarið: Þetta er ekki hægt að spara. Á þessum lið er ómögulegt að spara neitt. — Ég leyfi mér þó að fullyrða, að það sé engum vafa undiropið, að ríkið getur sparað milljónir árlega, ef dregið væri úr þarflausu mannahaldi ýmissa ríkisstofnana og skriffinnskan eitthvað minnkuð. Einnig mætti hæglega spara á því að sameina vissar ríkisstofnanir, stundum tvær, stundum jafnvel fleiri, undir eina stjórn.
Fyrir nokkrum árum var hér á Alþingi samþ. að sameina áfengisverzlun ríkisins og tóbakseinkasöluna. Þetta virtist skynsamleg ráðstöfun. Vissulega er það meira en óþarfi að hafa þessi hliðstæðu ríkisfyrirtæki aðskilin, með tveimur skrifstofum og tilheyrandi forstjórum, skrifstofustjórum og fulltrúum, auk venjulegs skrifstofufólks. En úr þessu hefur ekkert orðið. Er þetta ekki hægt? Auðvitað er það hægt. Það hefur aðeins, eins og fleira, strandað á hagsmunum stjórnarflokkanna og gæðinga þeirra. Satt að segja er ekki við miklum sparnaði að búast í opinberum rekstri meðan stjórnarherrarnir líta svo á, að forstaða ríkisfyrirtækja sé eins konar pólitísk atvinnubótavinna eða verðlaun fyrir flokksþjónustu. Þetta er auk þess hin eina atvinnubótavinna, sem studd er dyggilega af stjórnarvöldum landsins. Hún beinist að því að tryggja feit embætti handa málaliðsmönnum Fróðárhirðar vorra tíma.
Við 2. umr. fjárlaga fyrir árið 1954, sem fór fram hér á Alþingi í síðustu viku, bárum við þjóðvarnarmenn fram ýmsar sparnaðartill. við rekstrarútgjöld ríkisins. Slíkt hið sama gerði formaður Alþfl., hv. 3. landsk. þm., Hannibal Valdimarsson. Samtals skiptu þessar sparnaðartill. nokkrum milljónum. Allar voru till. strádrepnar, án þess að ástæða þætti til að athuga eina elnustu þeirra í nefnd til 3. umræðu. Meðal annars lögðum við þjóðvarnarmenn til, að utanfararkostnaður, þ. á m. kostnaður við fjölmennar sendinefndir á alls konar ráðstefnur úti í heimi. yrði lækkaður til mikilla muna. Það er alkunna, að ferðalög gæðinga ríkisstj. til útlanda á kostnað skattþegnanna er orðinn allstór þáttur í útgjöldum ríkisins, og hefur sú upphæð farið síhækkandi með ári hverju. Oft heyrist þess getið í blöðum og útvarpi, að sendir hafi verið af Íslands hálfu 3, 4 eða 5 fulltrúar, ásamt eiginkonum, á einhverjar ráðstefnur. Stundum eru ráðstefnur þessar þess eðlis, að engin ástæða virðist til að gera út neina sendinefnd af okkar hálfu, stundum gátu sendiherrar Íslands eða sendiráðsstarfsmenn í viðkomandi eða nálægum löndum auðveldlega komið fram fyrir okkar hönd, en í þeim tilfellum, þegar ástæða var til að gera út menn héðan að heiman, hefði einn eða tveir fulltrúar hæglega átt að duga. Kostnaður sá, sem hér er um að ræða, er einkum á 10. gr. fjárlaga, þótt mér sé ekki alveg grunlaust um, að eitthvað af honum kunni að vera falið í öðrum útgjaldaliðum. Hann er nú áætlaður eftir 2. umr. fjárl. svo sem hér segir:
Kostnaður vegna samninga við erlend ríki 500 þús. kr.
Kostnaður vegna þátttöku í alþjóðaráðstefnum á vegum utanrrn. 400 þús. kr.
Kostnaður við alþjóðaráðstefnur og annar utanfararkostnaður 200 þús. kr.
Samtals 1 millj. og 100 þús. kr.
Ríkisreikningur undanfarinna ára ber með sér, að fyrsti liðurinn og hinn nauðsynlegasti af þessum þremur hefur yfirleitt staðizt vel áætlun og stundum orðið töluvert fyrir neðan, en það hefur þá heldur en ekki jafnazt upp á ráðstefnuliðunum tveim. Þeir hafa farið langt fram úr áætlun. þetta ráðstefnufé vildum við þjóðvarnarmenn lækka til muna, en það máttu stjórnarliðar ekki heyra nefnt.
Áður en ég skilst við þetta mál, vil ég leyfa mér að gera þá kröfu á hendur ríkisstj., að framvegis sé gerð opinberlega sundurliðuð grein fyrir árlegum kostnaði hins opinbera við ferðalög stjórnargæðinga til útlanda, svo að almenningur hafi aðstöðu til að meta, hversu nauðsynlegar allar þessar ferðir eru og hvort hér verði ekki við komið sparnaði. Með því gæti ríkisstj. ef til vill kveðið niður þann þráláta orðróm, ef hann er rangur, að sendimenn hennar fái í ýmsum tilfellum allt að því tvöfalda dagpeninga á við hliðstæða sendimenn margfalt stærri og auðugri ríkja. Það er óverjandi með öllu að eyða hundruðum þúsunda króna árlega af opinberu fé til þess eins, að fáeinir stjórnarherrar og vinir þeirra geti fengið sér sumarleyfi eða vetrarfri á kostnað skattþegnanna. Hér þarf þjóðin sjálf að veita aðhald, þar eð stjórnarvöldin hafa sýnt, að þeim er ekki treystandi til þess.
Fast er sótt á að fá þessi fríðindi af þeim, sem komizt hafa á þann spenann. Alkunn og dálítið skopleg er saga, sem gerðist í fyrra, er þáverandi skrifstofustjóri einn í stjórnarráðinu, sem hafði verið einkar duglegur að sækja á ríkisins kostnað mismunandi þarflausar ráðstefnur viða um heim, sagði upp starfi sínu til að sinna dálítið annarlegum hugðarefnum. Ritaði hann þá yfirboðurum sínum bréf og tilkynnti þeim þetta, en skýrði jafnframt frá því, að hann mundi eftir sem áður sjá sér fært að vera fulltrúi ríkisins á hinum og þessum þingum og ráðstefnum erlendis!
Einn af þeim kostnaðarliðum, sem mjög hafa hækkað hin síðustu ár og vex enn hröðum skrefum, er kostnaður við utanríkisþjónustuna. Þar höfum við Íslendingar ekki fremur en í mörgum öðrum efnum kunnað okkur hóf. Fyrir aðeins 5 árum, á fjárhagsáætlun fyrir árið 1949, voru útgjöld til sendiráða áætluð samtals 1 millj. 346 þús. kr. Hvernig eru þessar tölur nú, fimm árum síðar? Þess ber að geta, að sendiráðin eru orðin 8, einn fleira en fyrir 5 árum. Við hefur bætzt sendiráð í Vestur-Þýzkalandi. Kostnaður við sendiráðin er á næstu fjárl. áætlaður samtals 4 millj. 577 þús. kr. Áætlunarupphæðin á þessum eina gjaldalið hefur m.ö.o. hækkað á fimm árum um 3 millj. 231 þús. kr., þ.e.a.s. mun meira en þrefaldazt. Við þm. Þjóðvfl. lögðum til nú við 2. umr. fjárl., að sendiráðin í Osló og Stokkhólmi væru lögð niður og framvegis yrði aðeins einn sendiherra íslenzkur á Norðurlöndum með aðsetri í Kaupmannahöfn. Þessi sparnaðartill. var vitanlega drepin eins og allar sparnaðartill. okkar.
Hæstv. fjmrh. sagði í gærkvöld, að vísu ranglega, að við þjóðvarnarmenn hefðum ekki bent á neinar sparnaðarleiðir. Var helzt á honum að skilja, að ekki mundi nú standa á honum að fylgja fram slíkum till. Ágætt er það. Við þm. Þjóðvfl. viljum nú enn prófa þetta. Ráðh. sex hafa til umráða 7 fólksbíla á kostnað ríkisins. Þetta þykir okkur — og kannske fleirum — nokkuð mikið. Við viljum nú hjálpa hæstv. fjmrh. til að sýna sparnaðarvilja í verki og gefa jafnframt öðrum fagurt fordæmi. Að gefnu tilefni frá hæstv. ráðh. við útvarpsumr. í gærkvöld höfum við því í dag lagt fram í sameinuðu Alþ. till. til þál. um að heimila ríkisstj. að hafa tvær fólksbifreiðar á kostnað ríkissjóðs í embættisþágu, enda verði aðrar bifreiðar, er ríkissjóður á og ráðh. hafa notað, seldar atvinnubilstjórum. Væntum við þess, að ekki standi á hæstv. fjmrh., Eysteini Jónssyni, að beita sér fyrir samþykkt þessarar sjálfsögðu till.