18.12.1953
Sameinað þing: 29. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (498)
1. mál, fjárlög 1954
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Auk þess sem ég er algerlega andvígur því, sem í till. felst, eins og ég gerði grein fyrir við umræðuna um fjárl., þá álít ég mjög hæpið, ef ekki beint lögbrot, að afhenda eigur ríkisins — sem samkv. 40. gr. stjórnarskrárinnar aðeins má afhenda með lögum — með einfaldri samþykkt í fjárl., sem er farið allt öðruvísi með en önnur lög á Alþingi. Þegar þar að auki hluti af stjórnarráðshúsunum á í hlut, þá álit ég þessa afgreiðslu að öllu leyti bæði óviðfelldna og ólöglega. Ég segi þess vegna nei.
Brtt. 308,47 samþ. með 30 shlj. atkv.
Frv., svo breytt, samþ. með 30 shlj. atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 344).