13.10.1953
Neðri deild: 7. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (546)
13. mál, vátryggingasamningar
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Frv. það að lagabálki, sem hér liggur fyrir, er samið eftir tilsvarandi lögum hjá hinum Norðurlandaþjóðunum, sem sett hafa slík fyrirmæli hjá sér, og er þess vegna einn þáttur í hinu samnorræna löggjafarstarfi, sem hefur átt sér stað um langa hríð og þegar hefur borið góðan árangur, m.a. með ýmsum lagafyrirmælum, sem lögfest hafa verið hér á landi.
Frv. þetta er undirbúið í dómsmrn., þ.e.a.s. aðallega þýtt, stuðzt við þær fyrirmyndir, sem hin Norðurlöndin voru búin að lögfesta hjá sér. Síðan hefur próf. Ólafur Lárusson, sem er manna færastur í þessum efnum, yfirfarið það og gengið svo frá, að öruggt má telja, að frv. sé nú í góðu horfi.
Ætlan frv. er fyrst og fremst sú, að þar séu settar reglur um vátryggingarsamninga, er taki til, þegar ekki er sérstaklega tekið fram á milli aðila, að önnur ákvæði gildi, og eru þó raunar nokkur ákvæði í frv., sem ekki er hægt að komast fram hjá, þó að aðilar semji um það sín á milli. En óhætt er að segja, að frv. tryggi borgurunum betri og öruggari rétt en þeir hafa eins og nú til háttar. Í mörgum tilfellum má raunar segja, að hér séu sett fyrirmæli til staðfestingar á þeim lagavenjum, sem farið hefur verið eftir, en það eru þá líka lagavenjur, sem hugsanlegt er, að breytt verði til um. Við setningu laganna á þetta að vera fastmótaðra en áður og horfa til bóta. Ég vonast til þess, að frv. þurfi ekki að verða ásteytingarsteinn manna hér. Það er fyrst og fremst lögfræðilegs eðlis og undirbúið svo vel sem frekast eru föng á. Ég leyfi mér að leggja til, að það gangi til 2. umr. og hv. allshn.