24.02.1954
Sameinað þing: 35. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (564)
104. mál, fjáraukalög 1951
Frsm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Eins og nál. á þskj. 380 ber með sér, þá komst fjvn. að þeirri niðurstöðu eftir að hafa athugað frv. þetta allgaumgæfilega og borið það saman við fjárlög 1951 og ríkisreikning ársins, að á frv. þyrfti að gera nokkrar breyt. til leiðréttingar. Hins vegar samþykkti n. einróma að leggja til, að frv. yrði samþ. að gerðum þeim breytingum, sem hún gerir till. um, eins og það þá verður. Þó skal það tekið fram, að einn nm., hv. 2. þm. N-M. (HÁ), var ekki viðstaddur, þegar málið var afgr. í n., og er hann því ekkert bundinn af nál.
Ég sé enga ástæðu til þess að vera fjölorður um brtt. n., en vil þó gera grein fyrir þeim með nokkrum orðum.
Frv. er í tveimur greinum, svo sem venjulegt er og mun jafnan hafa verið. 1. gr. er afleiðing 2. gr., og brtt. við 1. gr. er afleiðing brtt. við 2. gr., að því leyti sem þær hafa áhrif á niðurstöðutölur hennar.
Brtt. a við 2. gr. og brtt. b við sömu gr. eru alveg hliðstæðar.
Á fjárl. fyrir 1951 voru engin útgjöld talin hjá Áfengisverzlun ríkisins né Tóbakseinkasölu ríkisins, heldur hreinar tekjur. Þetta mun hafa stafað af því, að þegar fjárl. voru samin, mun helzt hafa verið gert ráð fyrir sameiningu þessara fyrirtækja. Af sameiningu varð ekkert. Hvort fyrirtækið um sig skilaði sínum sérstöku reikningum við uppgjör ríkisreikningsins, svo sem venjulegt hafði verið og er enn. Verður fyrir þetta að leita heimildar á fjáraukalögunum fyrir öllum gjöldum fyrirtækjanna, en telja nettótekjur það, sem kom inn fram yfir fjárhagsáætlun og umfram útgjöldin.
Hjá þeim, er samið hafa fjáraukalögin, hefur orðalag ruglazt í þessu sambandi, og eru brtt. a og b leiðréttingar á því orðalagi.
Um brtt. e, við 2. gr., vil ég segja þetta: Eignaaukning samkv. 20. gr., sem útborganir valda, er vantalin í samlagningu eða í flutningi frá ríkisreikningi yfir á fjáraukalagafrv. um kr. 76017.11. Till. er um, að þetta sé leiðrétt, svo sem sjálfsagt er. Á þskj. hafa 11 aurarnir fallið niður. Það vil ég biðja hv. þm. að leiðrétta hjá sér. Ekki þótti taka því að prenta þskj. upp fyrir þessa smávillu, en þess verður gætt að leiðrétta hana í þingtíðindum.
Þá hefur þeim, er frv. hefur samið, orðið á sú vangá að telja innkomið samkv. 20. gr. geymslufé og lánsfé, sem ríkið útvegaði og endurlánaði. Er þetta geymslufé og endurlánað fé að vísu fært á 20. gr. í bókhaldi ríkisins, en kemur ekki fjáraukalögum við. Nemur þessi villa, sem n. að sjálfsögðu leggur til að þingið leiðrétti, kr. 126151 455,25. Talan er aðeins sett fram til skýringar í frv., eins og segir í nál., en verður eigi að síður að leiðréttast, annars er hún villandi.
Loks er þá d-liður í brtt. Hann er leiðrétting á endanlegri niðurstöðu 2. gr., þ.e. samtölunni. Ég hef þá minnzt á alla liði brtt. og leyfi mér að vænta þess, að hv. þm. fallist á tillögurnar. Um frv. að öðru leyti væri vitanlega hægt margt að segja, en þess tel ég þó enga þörf.
Ef litið er yfir fjáraukalögin, kemur í ljós, að þau sýna ekki með neinni nákvæmni í öllum efnum gjöld umfram áætlun í ríkisbúskapnum, hvað þá tekjur. Á fjárlög var ekki t.d. orðin venja 1951 að taka ríkisbúin, spítalana og skólana, en hins vegar venja að leita heimildar á fjáraukalögum fyrir útgjöldum þeirra. Þetta og fleira þvílíkt hleypir jafnan fjárlögum fram. Útgjöld samkvæmt heimildargreinum koma á fjáraukalög, og í þetta sinn námu þau á tíundu millj. kr.
Ég athugaði í frv., fyrir hvaða útgjaldagrein fjárlaga er leitað hæstrar viðbótarheimildar, og ef gengið er á röðina á 2. bls. frv., þá verður fyrst fyrir 11. gr. A., þ.e. dóms- og lögreglumál. Þar nemur útgjaldahækkunin rúmlega 3.7 millj. kr. Hækkunin stafar aðallega frá landhelgisgæzlu og að nokkru auknum lögreglukostnaði.
Þá er 13. gr. A., eða vegamálin, með nálega 7,5 millj. kr. hækkun. Sú hækkun má heita öll vegna viðhalds á vegum, og hefur sjálfsagt engum, er naut, þótt um af að gert.
14. gr. B. er næst. Það er kostnaður við kennslumál. Hækkun er nálega 6,3 millj. kr. Þar eru aðalhækkanirnar vegna barnafræðslu og gagnfræðafræðslu.
Næst er 16. gr. Það er til landbúnaðar, 6,9 millj. kr. hækkun. Þessi upphæð stafar að mestu frá framkvæmd jarðræktarlaga og laga um sauðfjárveikivarnir.
Gjöld samkvæmt jarðræktarlögum fóru talsvert á 3. millj. kr. fram úr áætlun, og gjöld vegna sauðfjárveikivarna og sérstaklega sökum bóta vegna fjárskipta fóru 3 millj. kr. fram úr áætlun.
Þar næst má nefna 17. gr., eða útgjöld til félagsmála, sem hafa hækkað frá áætlun um 6,2 millj. kr. Nálega helmingur er vegna lögbundinna framlaga til almannatrygginganna. Hinn helmingur þeirrar upphæðar stafar frá heimildum á 22. gr., og þar er hæsti liður atvinnubótafé.
Loks er svo 19. gr. 4, þ.e. óviss útgjöld, sem farið hafa 4 millj. kr. rúml. fram úr áætlun. Þau voru á fjárl. aðeins 1/2 millj. kr. Þetta er safn margra fjárhæða, en engra stórfelldra.
Það er að mínu áliti meira form en efnisleg nauðsyn að afgreiða sérstök fjáraukalög fyrir ár hvert. Afgreiðsla ríkisreikningsins, þar sem birtur er nákvæmur samanburður við fjárlög í hverjum lið og viðhafðar eru að minnsta kosti 6 umr., er vitanlega miklu fullkomnari málsmeðferð af Alþingis hálfu en afgreiðsla fjáraukalaga í Sþ.
Fjáraukalög eru gerð að fyrirmælum stjórnarskrár og þau fyrirmæli komin frá gömlum tíma, þegar minna var um að vera í fjármálum ríkisins en nú er orðið, og hugsun sú sennilega lögð til grundvallar, að fjáraukalög gætu jafnvel orðið á undan útborgunum og a.m.k. á undan ríkisreikningnum. En tímarnir hafa breytzt og þýðing fjáraukal. breytzt og minnkað. Nú bíður reikningurinn 1951 eftir 6. umr., það er 3. umr. í seinni þd., þegar fjáraukalögin koma til 2. umr. í Sþ. Þetta er orðinn gangur málanna.
Fjáraukalögin hefðu ef til vill getað verið eitthvað fyrr á ferðinni en þetta, en þó varla svo, að máli skipti. Þetta sakar auðvitað ekkert, af því að reikningurinn er aðalatriðið, eins og ég sagði áðan.
Mér þykir líklegt, að þegar stjskr. verður breytt, þá verði ákvæðið um sérstök fjáraukalög fellt úr gildi. En vitanlega ber að hlýða ákvæðum stjskr. um fjáraukalögin sem öðrum ákvæðum hennar, meðan þau gilda, og fjvn. telur hvorki formlega né efnislega meinbugi á því að samþ. frv. það til fjáraukalaga fyrir 1951, sem hér er til umr., þegar samþ. hafa verið brtt. hennar á þskj. 380, og mælir ágreiningslaust með því, að frv. verði samþ. svo breytt.