09.12.1953
Neðri deild: 36. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (571)
105. mál, ríkisreikningar
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Eins og segir á þskj. 274, hefur fjhn. d. farið yfir þetta frv. og borið tölur þess saman við niðurstöðutölur á ríkisreikningi. Ber þeim saman.
N. veitti því athygli, að það er lítils háttar ósamræmi á tveim stöðum í ríkisreikningnum.
Eign sú, sem færð er á efnahagsreikningi flugmála, er ekki alveg í samræmi við það, sem talið er til eignar á þeim lið á sjálfum efnahagsreikningi ríkisins. Einnig er nokkurt ósamræmi í uppgjöri hjá ræktunarsjóði og byggingarsjóði Búnaðarbankans, þannig að þær hreinu eignir, sem eru taldar á sérreikningum þessara sjóða, eru ekki alveg í samræmi við það, sem talið er á efnahagsreikningi ríkisins, en við fengum þær skýringar á því í ríkisbókhaldinn; að þarna hefði ekki verið hagað eins reikningsfærslu um áramót, en þetta mundi færast í lag á árinu 1952.
Þá hefur n. einnig litið yfir þær aths., sem yfirskoðunarmenn gerðu við ríkisreikninginn fyrir árið 195'1, og svör reikningshaldara, svo og till. yfirskoðunarmanna út af þeim; þar var aðeins einni aths. vísað til aðgerða Alþingis, eins og þm. hafa séð, ef þeir hafa litið yfir reikninginn, en n. hefur engar till. að gera í tilefni af þeirri aths. eða öðrum, og leggur n. til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.