12.02.1954
Neðri deild: 46. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

139. mál, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér um ræðir, er staðfesting á brbl., sem hafa verið gefin út nú meðan þinghlé var í janúar. Ég vil í fyrsta lagi átelja, að sá háttur skuli hafa verið hafður á með setningu þessara laga. Það eru nú bráðum komin þrjú ár síðan hernámssamningurinn var gerður og erlent herlið settist að á Keflavíkurflugvelli, og það er ekki hægt að álykta, að einmitt janúarmánuður 1954 hafi verið það frábrugðinn öllum öðrum mánuðum þessara þriggja ára, að einmitt í honum og meðan þinghlé er, skuli hafa verið nauðsynlegt að gefa út brbl. vegna skipulagsbreytinga þar. Það mætti ætla, að annaðhvort hefði hæstv. ríkisstj. getað lagt slík lög fyrir þing, áður en því var frestað um jólaleytið, eða látið bíða þangað til eftir jólin, enda engin sérstök rök færð hér fyrir því, að það hafi endilega verið nauðsynlegt að gefa út þessi brbl. í janúar. Ég vil þess vegna átelja þessa aðferð, ekki sízt vegna þess, að hún ber svo undarlegan keim af þeim aðferðum, sem tíðkazt hafa undanfarin ár, að reyna alltaf að afgreiða öll mál, sem snerta að einhverju leyti annaðhvort samningana við Bandaríkin, eða mál, sem varða sambýlið við hernámsliðið hér á Íslandi, þegar Alþingi kemur hvergi nærri, og stilla Alþingi frammi fyrir fullgerðum staðreyndum og binda jafnan þannig hendur stjórnarliðsins í þinginu, sem væri ekki kannske að öllu leyti alltaf einu sinni ánægt með þessi lög.

Ég vil þess vegna í fyrsta lagi átelja það, að þetta skuli hafa verið getið út sem brbl., því að það er vitanlegt, að það er miklu erfiðara að fá fram breytingar á slíkum lögum, þegar til Alþingis er komið, heldur en mundi hafa verið, svo framarlega sem hæstv. ríkisstj. hefði lagt fram sitt frv. fyrir þingið og gefið nefndum þingsins og þingmönnum þannig tækifæri til þess að gera sínar brtt., án þess að vera búin að samþykkja lögin áður.

En svo er nú auðvitað hitt höfuðatriðið, sjálft innihald þessa frv. Ég vildi nú fyrst mega athuga með nokkrum orðum það, sem frá mínu sjónarmiði, lögfræðilega séð, felst í þessu frv. frábrugðið því, sem tíðkazt hefur um stjórnskipun hjá okkur hingað til á Íslandi.

Í fyrsta lagi er ákveðið að taka þarna upp lögreglustjóraembætti, og það lögreglustjóraembætti er með öðrum hætti en öll önnur lögreglustjóraembætti hafa verið á Íslandi fram að þessu. Lögreglustjórar á Íslandi hafa ýmist verið í kaupstöðum eða settir í verzlunarstöðum, sem ekki væru kauptún, og þá með sérstöku samþykki viðkomandi hreppsnefndar og tekið við í fyrsta lagi hreppsstjórastörfum á því sviði og síðan ýmsum öðrum verkum, sem þeim eru falin. Hér er settur lögreglustjóri á sviði, sem hvorki er verzlunarstaður, kaupstaður né sérstakt hreppsfélag, og að því er mér skilst ekki að neinu leyti breytt því, sem fyrir er á þessum sviðum. Við skulum segja, að Keflavíkurflugvöllur, eða það svæði, sem hann hefur náð yfir, hefur heyrt undir þrjú hreppsfélög á Íslandi. Hreppsstjórarnir hafa haft sitt sérstaka verkefni frá hálfu ríkisstjórnar á þessum sviðum. Hvernig er þetta lögfræðilega, eftir að þetta ástand þarna er skapað? Það er ekki nokkur skapaður hlutur tekinn fram. Það er ekki verið að skapa neinn nýjan hrepp. Það er ekki verið að undanþiggja nein önnur störf, sem þarna hafa verið unnin, en það er skapað þarna sérstakt lögreglustjóraembætti. Ég vil aðeins henda á, að þarna er verið að taka upp alveg nýja stefnu, sem brýtur í bága við allt það, sem verið hefur á Íslandi hingað til um fyrirkomulag þessara embætta eða annarra skyldra.

Svo er ákveðið, að þetta umdæmi skuli miðast við samningssvæði þau á Reykjanesi. sem varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951 tekur til og eru eign ríkisins. Í þessari einu einustu setningu í lögunum eru þrjú atriði, sem ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj. um, hvað eiginlega sé átt við með.

Í fyrsta lagi stendur: „við samningssvæði þau á Reykjanesi“. — Hvað eru mörg samningssvæði á Reykjanesi? Samkvæmt hvaða samningum eru þessi samningssvæði sett, og hvar hafa þau verið tilkynnt? Ég vil taka það fram, að þegar rætt er um samningssvæði í hernámssamningnum og í þeim lögum, sem honum fylgja, þá er það hvergi nokkurs staðar tilgreint og hefur ekki verið gert, svo að mér sé kunnugt. Það kann að vera, að það sé minni fáfræði að kenna, að ég viti ekki þar um, en það hefur ekki verið sett, svo að mér sé kunnugt, neins staðar ákvæði um og verið auglýst, á hvaða sviðum slík samningssvæði eru. Ég gerði athugasemd, þegar þessi samningur var gerður, um það, hvað átt væri við með þessum samningssvæðum, og þegar hann var ræddur hér, þá ítrekaði ég það hvað eftir annað, að það minnsta, sem ríkisstj. gæti gert gagnvart Íslendingum í þessu efni, væri að láta þá vita og mæla fyrir um það í lögum, hvar samningssvæði væru. Við vitum, að á samningssvæðunum gilda sérstakar reglur. Það er tekið fram t.d. í 10. gr. viðbætisins: „Liði Bandaríkjanna er rétt að fara með lögregluvald á samningssvæðunum og gera allar viðeigandi ráðstafanir til að halda þar uppi aga, allsherjarreglu og öryggi.“ M.ö.o., sá Íslendingur, sem var kominn inn á þessi samningssvæði, var kominn inn undir annað lögregluvald en hann var annars vanur í sínu landi. Það minnsta, sem þess vegna var hægt að gera gagnvart honum, var að auglýsa eða tilkynna, hvar slíkt samningssvæði væri. Þetta hefur, að því er ég bezt veit, hvergi nokkurs staðar verið gert. Þegar Ísland var hernumið á stríðsárunum, þá voru auglýst alveg sérstaklega í Lögbirtingablaðinu sérstök svæði, sem voru álitin vera hættusvæði, tilgreind alveg nákvæmlega. Það hefur aldrei neitt slíkt verið gert nú. Ég er ekki kunnugur suður á Keflavíkurflugvelli, ég hef ekki komið þar síðan hernámið fór fram, en það má vel vera, að það séu máske festar upp þar einhverjar auglýsingar og annað slíkt, og er það þó algerlega ófullnægjandi sem almenn tilkynning um, að hvað miklu leyti Íslendingar séu undir sínum eigin embættismönnum eða embættismönnum annarrar þjóðar. Ef slík samningssvæði eru fleiri en eitt, þá þætti mér viðkunnanlegt að fá upplýsingar um það. M.ö.o.: Það er þetta í fyrsta lagi, hvað samningssvæðin séu mörg.

Í öðru lagi er þetta röng tilvitnun, að varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí taki til þessara samningssvæða, hann tilgreinir þau hvergi nokkurs staðar.

Svo er í þriðja lagi bætt þarna inn í, að þau eigi að vera eign ríkisins. M.ö.o.: Ef um samningssvæði er þarna að ræða og jafnvel þó að það væri tilkynnt, þá er það til viðbótar, að það skal þó ekki teljast undir lögreglustjórann, ef það er ekki eign ríkisins. Hvernig eiga nú þeir, sem þarna koma, að vita, ef þeir eru á einhverju svæði, sem kynni nú að hafa verið eða einhverjir álitu eitthvert samningssvæði, hvaða partar af því kynnu að vera eign ríkisins eða hvort samningssvæðið allt væri endilega eign ríkisins?

Hvers konar aðferð er þetta til þess að búa til eina nýja, ákveðna réttarheild í íslenzku þjóðfélagi? Hingað til höfum við vitað, hvað væru hreppatakmörk, sýslnatakmörk og annað slíkt. Nú er allt í einu komið til okkar hér með sérstakt umdæmi; og hvar eru takmörkin fyrir því? Jú, það er allt í lagi, skulum við segja, ef það stæði í þessum lögum, að ákveðin gaddavírsgirðing, sem amerískur her hefði sett upp á Íslandi, skuli afmarka það umdæmi, þar sem ákveðin lög skulu gilda. Það er ekkert slíkt tekið fram. Það eru teknir fram hér almennir „frasar“, sem ekkert fela í sér. Ég vil strax benda á það, að þetta sem einkenni á ákveðnu lögsögulegu umdæmi á Íslandi þekkist ekki í neinum íslenzkum lögum, sem ég þekki til, og brýtur í bága við allar íslenzkar venjur í þessu efni. Ég held þess vegna, að þarna þurfi strax, svo framarlega sem það nú á annað borð að samþykkja svona, að gera þetta miklu greinilegra og skýrara.

Þá kem ég að því, sem er hins vegar mun miklu stærra atriði. Það er ákveðið, að ráðherra sá, sem fer með varnarmál, skuli velta embættið lögfræðingi. M.ö.o.: Það á að taka það upp, að eitt sérstakt umdæmi af öllum þeim hreppum og sýslum og öðrum umdæmum, sem á Í slandi eru, skuli heyra undir aðra ráðherra heldur en slík mál heyra undir venjulega. Dómsmál, sem koma fyrir lögreglustjóra á umdæmi Keflavíkurflugvallar, skulu ekki heyra undir dómsmrh. Skattamál eða tollamál, sem koma þarna upp, virðast þá eiga að heyra undir ráðherra, sem fer með varnarmál, — eða á máske fjmrh. að hafa eitthvað með það að gera? Heilbrigðismál og önnur slík mál, sem eru eitt af því, sem lögreglustjórar alveg sérstaklega hafa með að gera, eiga þá á Keflavíkurflugvelli ekki lengur að heyra undir heilbrigðismálaráðherra, heldur undir varnarmála- eða utanríkisráðh. Símamál og póstmál; eru þau þarna meðtalin, eiga þau ekki þá lengur að heyra undir póst- og simamálaráðherra, heldur undir utanríkisráðherra? Hvað mikið felst í þessu, sem sagt er í 2. gr. „eftir því sem við getur átt önnur þau störf?“ Að vísu hafa ekki sýslumenn og bæjarfógetar venjulega slík störf. En að hve miklu leyti á maðurinn, sem er settur lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, að grípa inn yfir svo að segja allt, sem annars heyrir undir önnur íslenzk ráðuneyti? Ég held það í fyrsta lagi, að það sé nauðsynlegt að taka alveg greinilega fram, hvað þarna heyrir undir þennan lögreglustjóra. Nú skulum við taka sem dæmi: Það er mál á Keflavíkurflugvelli eða í umdæmi þess, og dómarinn, lögreglustjórinn, dæmir; það er þá eftir þessu að dæma varnarmála- eða utanrrh., sem á að ákveða, hvort máli sé áfrýjað eða ekki; það er ekki dómsmrh. M.ö.o.: Það á að byrja algera tvískiptingu um það, hvernig farið sé með mál á Íslandi, eftir því, hvar á landinu þau gerast og í umdæmi hvaða lögreglustjóra, því að auðvitað er hægt að ganga út frá því, að það séu mismunandi skoðanir um mismunandi mál hjá mismunandi ráðherrum. Það er m.ö.o. þar með ekki lengur víst, ef einn maður fremur eitthvert ákveðið afbrot á þessum stað á landinu og annar maður fremur afbrot á öðrum stað og þeir eru dæmdir af tveim mismunandi embættismönnum, að tveir mismunandi ráðherrar líti sömu augum á sama afbrotið og dóm um það. M.ö.o.: Það er verið með þessu að innleiða þann möguleika, að það séu raunverulega mismunandi réttarreglur og réttarhugmyndir, sem kunna að gilda eftir því, hvar á landinu einhver afbrot séu framin.

Ég verð að segja, að ég álít þessa stefnu, sem þarna er farið inn á, ákaflega hættulega. Mér sýnist, að með þessu sé stefnt að því að taka smám saman það umdæmi, sem hér er talið undir Keflavíkurflugvöll, út úr þeirri almennu íslenzku réttarhefð, setja það undir sérstakan ráðherra, sem síns embættis vegna verður að standa í sífelldum samningum, jafnvel sífelldum árekstrum við það ameríska setulið og þann samningsaðila, sem þar er um fjallað. Ég held, að þetta hljóti að gera erfiðara fyrir Íslendinga að eiga að fá fram sinn rétt í þessum efnum. Það væri áreiðanlega heppilegra, að þau mál, sem Íslendingar þurfa að eiga í við ameríska hernámsliðið, heyri undir venjuleg íslenzk yfirvöld, jafnvel þó að sá þáttur væri á hafður, að sérstök umdæmi væru þarna sköpuð. Ég vonast til þess, að menn sjái, ef hernám eins og nú er yrði lengi, fyrst svona er farið að verða, að svona till. koma fram strax eftir fyrstu 2–3 árin, hvert muni þá stefna, það muni stefna að því að gera þessi umdæmi meira og meira frábrugðin öðrum íslenzkum lögsöguumdæmum, stefna að því að taka þau meira og meira út úr íslenzkri réttarhefð, og við vitum, til hvers slíkt hefur leitt hjá löndum, sem hafa haft erlendar herstöðvar þannig lengi. Það hefur leitt til þess, að viðkomandi herveldi hefur smám saman náð þessum stöðvum undir sig, undir sín beinu yfirráð. Við þurfum ekki nema hugsa til Gíbraltar eða annarra slíkra staða til þess að sjá, hvað það er, sem voldug herveldi vilja í slíkum efnum. Og við vitum ósköp vel, að Bandaríkin stefna að því sama hér heima á Íslandi. Fyrir okkur, sem höfðum með það að gera fyrir níu árum, þegar Bandaríkin fóru fram á að fá þrjár stöðvar. hér á Íslandi undir sín algeru yfirráð sem herstöðvar, var það alveg ljóst, hvert þau stefndu. Þau vildu fá svæði hér á Íslandi, sem að öllu leyti heyrðu undir þeirra lögsögu, undir þeirra yfirráð, sem Íslendingar hefðu ekkert með að gera. Ég er ákaflega hræddur um, að lög eins og þessi væru fyrsta sporið í slíka átt, og er ég þó ekki með því að segja, að slíkt vaki fyrir hæstv. utanrrh. eða hæstv. ríkisstjórn eða hennar flokkum; ég er ekki að segja það, en ég vil aðeins benda á hættuna, sem í þessu felst. Ég held þess vegna, að þessi mál þurfi mjög ýtarlegrar athugunar við. Ég held, að það sé rangt að stefna að því að taka öll þau íslenzk mál, sem snerta viðskiptin við herinn, undan þeim íslenzku ráðherrum, sem þau eiga að heyra undir, og setja það allt saman í utanrrn. Enn þá fjær álft ég, svo framarlega sem meiningin væri að fara að koma upp eins konar sérstöku hermálaráðuneyti á Íslandi og að láta það fara að hafa með þessi mál að gera, því að það þýddi þá beinlínis að vera að vinna að því að skapa sérstakar langvarandi herstöðvar á Íslandi, sem yrði að gilda um bókstaflega önnur fyrirmæli — meira eða minna mild fyrirmæli og önnur stjórn á heldur en annars á öðrum landssvæðum Íslands. Mér er t.d. spurn: Á lögreglustjórinn, sem settur er á Keflavíkurflugvelli, að hafa eftirlitið viðvíkjandi gjaldeyrismálum þar? Á hann að hafa eftirlitið um, hvernig fer með þann erlenda gjaldeyri, sem inn kemur t.d. fyrir sölu á flugvélabenzíni? Á hann að ráða því, hvernig slíkum gjaldeyri er beitt, hvernig hann er notaður? Getur hann ráðið því, hvort slíkur gjaldeyrir er afhentur íslenzka ríkinu eða hvort einstök félög fá að ráðstafa honum eftir vild? Eða á það að vera verkefni ríkisstj.? Og hvernig hagar til eins og stendur með þessa hluti? Mér er ekki grunlaust um, að það virðist gilda sérstök undanþáguákvæði um þessa hluti nú. Á það að vera svo áfram? Og á valdi hvers á að vera að ráða þessu?

Ég vildi þess vegna eindregið óska eftir því, að það yrðu gefnar hérna nánari upplýsingar, fyrst og fremst varðandi þessa 1. gr., um þessi umdæmi, um hvernig þau eru ákveðin, um hver þeirra staðatakmörk eru og hvað víðtækt það svið á að vera, sem lögreglustjórinn þarna á að hafa með að gera. Ég vil enn fremur minna á það, að það er ákveðið í 10. gr. viðbótarsamningsins við Bandaríkin, að liði Bandaríkjanna sé rétt að fara með lögregluvald á samningssvæðunum, og ég vil spyrja, hvort það hafi orðið eða komi til með að verða einhver breyting viðvíkjandi þeim ákvæðum í sambandi við setningu þessara laga, hvort vald Íslendinga verði meira og hvort það að einhverju leyti sé fyrirhugað að breyta þessu með því að setja sérstaka lögregluþjóna þarna, þannig að Ísland og Íslendingar fái meiri rétt til að fara með lögregluvald þarna heldur en þeir hafa haft. Það er kunnugt mál, að meira að segja á meðal þeirra embættismanna, sem undanfarið hafa farið með þessi mál, og ríkisstj. virðist ekki hafa verið með öllu ágreiningslaust um framkvæmd þessara mála. Að minnsta kosti virtist það dálítið koma fram í útvarpsumræðum, sem hér fóru fram í vetur. Ég held, að það væri nauðsynlegt, þegar nú mun vera tilgangur ríkisstj. að ráða bót á þessum málum með frv. eins og því, sem hér liggur fyrir, að þá sé reynt að ganga sem allra bezt frá þessum málum.

Ég vildi um leið, fyrst þetta mál er hér til umræðu og af því að ég var að átelja þá aðferð, sem höfð var við setningu þessara laga, þ.e.a.s. að gefa út brbl. nú í janúar í þinghléinu, leyfa mér að nota þetta tækifæri til að beina þeirri fyrirspurn og þeim tilmælum til hæstv. ríkisstj. í sambandi við þá samninga, sem nú hefur verið tilkynnt að standi yfir á milli Íslands og Bandaríkjanna um endurskoðun á hernámssamningnum frá 1951, að Alþingi sé látið fylgjast með þessum samningum, og spyrja hæstv. ríkisstj., hvort það sé hennar hugmynd, að Alþingi sé látið fylgjast með þeim.

Ég vil vekja eftirtekt á því, að það er í fyrsta skipti nú, sem samningar fara fram milli Íslands og Bandaríkjanna um hernámsmálin þannig, að Alþingi situr á þeim tíma. Hingað til, þegar þeir samningar hafa verið gerðir, sem á undanförnum áratug hafa oft orðið tilefni mjög harðra deilna hér á landi, þá hefur Alþingi ekki verið á fundum og slíkt hefur oft verið notað sem átylla eða ástæða til þess að gera samningana án þess, að þingið fylgdist með þeim. Ég vil benda hæstv. ríkisstj. á, að það er mikill styrkleikur fyrir hverja ríkisstj., sem virkilega hyggst að reyna að koma einhverju fram í sambandi við endurskoðun á hernámssamningnum, að láta Alþingi fylgjast með þeim samningum. Það er styrkleikur fyrir hverja þá ríkisstj., sem vill virkilega reyna að fá fram verulegar umbætur á slíkum samningum. Það er að vísu mitt álit, að hefði það verið mjög ákveðinn vilji hæstv. ríkisstj. að fá fram breytingar á slíkum samningi, þá hefði eini möguleikinn fyrir hana til þess að knýja slíkt fram verið sá að segja samningnum upp, þannig að Bandaríkin hefðu orðið að sækja á og átt það á hættu allan tímann að fá ekki samning aftur, svo framarlega sem þau gengju ekki að þeim skilmálum, sem ríkisstj. setti. Það er hins vegar vitanlegt, að Alþingi sem heild er þannig skipað, að það mundi áreiðanlega, ef samningar kæmu til þess kasta, styrkja hvern þann aðila sem vildi halda fast á rétti Íslendinga í samningunum við Bandaríkin, og það yrði þess vegna meiri styrkur að láta slíka samninga, áður en þeir væru gerðir, koma til kasta Alþingis fyrir hverja þá, sem virkilega vilja fá heiðarlega og róttæka endurskoðun fram, heldur en að láta það eingöngu verða verk ríkisstj. sjálfrar. Það er engum efa bundið, að hæstv. ríkisstj., ef hún væri í vandræðum með slíka samninga við Bandaríkin, þyrfti varla annað að segja en að hún mundi skjóta slíkum ágreiningsatriðum undir Alþingi, og ég býst við, að Bandaríkjunum væri ekkert sérstaklega vel við slíkt.

Ég held þess vegna, að sá háttur, sem hæstv. ríkisstj. hefur haft á, að setja brbl. um þetta mál núna í staðinn fyrir að láta það fyrst koma til kasta Alþingis, hafi verið rangt spor, og ef hæstv. ríkisstj. hugsar sér nú að framfylgja þeim samningum, sem hún nú er að gera, án þess að láta þá áður koma til kasta Alþingis og án þess að ráðgast við Alþingi áður en frá þeim væri gengið, eða yfirleitt meðan þeir stæðu yfir, það væri rangt af henni. Ég vil enn fremur minna á, að það eru bein lagafyrirmæli í þingsköpum Alþingis, að ríkisstj. er skyldug til þess að láta utanrmn. fylgjast með þeim málum, ef Alþingi situr, þannig að það eru bein lagafyrirmæli og bein lagabrot, ef ekki hafa þegar verið lagðir fyrir utanrmn. og ekki sízt hennar undirnefnd þeir samningar, sem nú er fjallað um. Og ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. utanrrh., hvort þeim lagafyrirmælum hefur þegar verið framfylgt, þannig að utanrmn. eða a.m.k. hennar undirnefnd hafi fengið tækifæri til að fylgjast með þessum samningum frá upphafi.

Það hefur alveg sérstaklega af hálfu Framsfl., sem nú fer með utanríkis- og hernámsmálin, verið sett fram sú krafa, bæði fyrir kosningar og eftir, að þeir útlendu verktakar, sem hér eru á Íslandi, Hamilton, séu látnir fara burt og ríkið taki að sér sjálft þann atvinnurekstur, sem þeir hafa haft með höndum. Ég vildi leyfa mér að spyrja, hvort nokkur vafi leiki á því, að staðið verði fast á þeim tillögum. Og ég vil leyfa mér að benda hæstv. utanrrh. og Framsfl. á, að svo framarlega sem einhver efi léki á um, hvernig Bandaríkin tækju í slíkar kröfur, þá mundi það áreiðanlega vera sterkur leikur í slíkum samningum að fá upp skoðun meiri hluta Alþingis á slíkum málum. Ég efast ekki um, að a.m.k. í öllum þeim málum, þar sem Framsfl. eða ráðherrar hans væru þarna sérstaklega að reyna að framfylgja því, sem róttækast var í þeirra yfirlýsingum, þar mundu þeir eiga allmikla stoð vísa á þinginu, ef það kæmi til þingsins kasta.

Ég minnist aðeins á þetta vegna þess, að það er stundum um svona mál, að máske hitt og þetta er útkljáð í stjórnarherbúðum, án þess að látið sé koma til kasta þingsins. Og ég vil benda á það, að a.m.k. meðan þing situr er það engin afsökun að gera lélega samninga, ef möguleiki hefur verið á því að fá meiri hluta Alþingis til að standa að róttækum kröfum í samningum. Ég held þess vegna, að það væri ákaflega æskilegt, að Alþingi væri látið fylgjast með því, hvernig slíkir samningar ganga.

Sama gildir um kröfuna um einangrun hersins á Íslandi. Ég álít, að það eina, sem viðhlítandi er í slíkum efnum, sé sjálf brottför hans. Það hefur hér, bæði á síðasta þingi og nú, verið rætt nokkuð um einangrun hersins og af hálfu ýmissa málsmetandi manna verið komið fram með mjög skynsamlegar till. til að firra Faxaflóabúa þeim hættum, sem stöfuðu af amerískum her, á meðan hann á annað borð væri hér á Íslandi, t.d. að láta hann hafa aðsetur annaðhvort á Vatnajökli eða Sprengisandi. Því held ég, að það væri alveg rétt að athuga það fyrir hæstv. ríkisstj., áður en nokkrir samningar eru kláraðir, að ræða við Alþingi mjög alvarlega um þessi mál. Það væri mjög óviðkunnanlegt, ef reynslan af svona samningum yrði sú, að minni hluti Alþingis kúskaði meiri hluta Alþingis, vegna þess að ríkisstj. fjallaði ein um málin og léti Alþingi aldrei fá neitt tækifæri til að segja sitt álit um þau.

Ég vildi svo leyfa mér í sambandi við ákvæðin í 1. gr. þessa frv., þar sem talað er um samningssvæðin, að spyrja að því, hvort það sé hugsanlegt, að haldið yrði áfram á þessari braut, sem hér er lagt til, viðvíkjandi öðrum þeim svæðum. sem amerískur her hefur setzt að á á Íslandi. Ég meina, ef látið er undan á Keflavíkurflugvelli og farið að aðgreina það að nokkru leyti út frá íslenzku ríkisheildinni með þessum hætti, eins og mér virðist því miður stefnt að hér, er þá ekki hugsanlegt, að það verði farið að fara sömu leið t.d. viðvíkjandi Hvalfirði? Enn þá er ekki farið að tilkynna nein samningssvæði í Hvalfirði, en amerískir hermenn standa í Hvalfirði við íslenzka olíugeyma. Íslenzkt olíufélag er undir sérstakri amerískri hervernd þar, og íslenzkir sjómenn, sem koma þarna á land eða ætla að lenda þarna við bryggjur, verða fyrir óþægindum frá amerískum hermönnum. Það er ekkert tilkynnt samningssvæði í Hvalfirði. Hver amerískur hermaður, sem eitthvað gerir þar af sér, eða amerískur lögreglumaður er beinn árásarmaður; hann hefur engan lagalegan rétt til þess að skipta sér af neinu þarna sem bandarískur lögreglumaður. Þetta kann að vera fáfræði hjá mér, það hafi verið tilkynnt samningssvæði í Hvalfirði, en ég hef aldrei séð það. Og eins og ég benti á áður, er það stór galli í þeim vitlausa hernámssamningi, að það skuli ekki einu sinni tekið fram, hvar slík samningssvæði séu eða hvernig eigi að tilkynna þau.

Ég vil enn fremur spyrja: Ef það á að fara að setja sérstakan lögreglustjóra yfir Keflavíkurflugvöll, sem heyri undir sérstakt ráðuneyti, er þá ekki hugsanlegt, að það fari sömu leið með part af Hvalfirði?

Það er verið að koma upp radarstöðvum á nokkrum stöðum úti um land. Það er verið að koma upp radarstöð á Hornafirði undir miklum mótmælum allra íbúanna þar. Er það máske meiningin innan skamms tíma, að ákveðin svæði kringum þá radarstöð eigi að verða sérstakt samningssvæði? Á þá máske að .fara að setja líka sérstakan aðila, lögreglustjóra eða eitthvað annað slíkt, yfir þau samningssvæði? Hvert leiðir þetta spor, sem hér er farið? Það er verið að byggja radarstöðvar víðar á landinu en á Hornafirði, og það er máske verið að undirbúa fleiri framkvæmdir hér á Íslandi en þær, sem þegar hafa verið gerðar. Hver er meiningin viðvíkjandi stjórn á þessum samningssvæðum? Á svo smám saman að fara að taka þau út úr þessari venjulegu íslenzku stjórnskipulegu heild og setja þau undir alveg sérstakt ráðuneyti, undir sérstaka stjórn, sem mundi þróast upp í smám saman að vera eins konar hermálaráðuneyti með sérstökum herstöðvum, þar sem aðrar reglur á ýmsan hátt gilda en annars staðar á Íslandi?

Ég vil benda á, að öll lög, sem sett eru, heimila útgáfu reglugerðar. Venjulega höfum við getað treyst því, að þegar reglugerðir væru gefnar út samkv. ákveðnum lögum, þá væru þær jafnt gildandi alls staðar á landinu. Ef samþ. eru lög og þau lög heimila tvenns konar ráðuneytum að gefa út reglugerðir samkv. þeim, þá er ekki lengur öruggt, að meira að segja slíkar reglugerðir séu samhljóða. Það er því stefnt að því að fara að skapa mismunandi rétt og mismunandi reglur eftir því, hvar er á landinu.

Ég álít sem sé, að hér sé farið inn á ákaflega varhugaverða braut um lagasetningu og skipun lögsögu á Íslandi. Það má kannske segja, að það hafi ekki verið úr háum söðli að detta, eftir að búið var að samþykkja lög um, að útlendir menn skuli fara með lögregluvald á ákveðnum svæðum á Íslandi. Þetta mundi auðvitað vera framför, ef það væri við það átt, að lögregluvald væri tekið af lögreglu Bandaríkjanna á samningssvæðunum. En ég er því miður hræddur um, að svo sé ekki, vegna þess að það mundi vera að breyta þeim samningi, sem gerður hefur verið.

Ég vildi þess vegna leyfa mér að æskja þess, að hæstv. utanrrh. skýri nokkru betur fyrir okkur þm. tilgang hæstv. ríkisstj. með þessari lagasetningu og hvernig hann eða ríkisstj. hugsar sér hennar framkvæmd. Ég etast ekki um, að það muni vaka fyrir hæstv. ráðh. að reyna að finna einhverja leið út úr þeim ógöngum, sem eru suður á Keflavíkurflugvelli og að mínu áliti hljóta alltaf að vera, á meðan hernámsliðið dvelur þar. Ég ætla ekki að bera neinar brigður á góða viðleitni í þeim efnum og góðan vilja. En það er ekkert smáræðis vandamál, sem við er að fást, eftir að einu sinni er búið að hleypa þar inn innrásarher og láta hann setjast þar að. Það þarf þess vegna sterk tök, þegar á að fara að hreyta þarna að einhverju leyti til. Þess vegna held ég, að það væri heppilegt, að um þetta mál yrðu nokkru ýtarlegri umr. hér, ekki sízt ef hæstv. utanrrh. að einhverju leyti sæi sér fært að gefa þinginu nokkrar upplýsingar um þá samninga, sem nú standa yfir, og þær horfur, sem í þeim eru það, sem utanrmn. þingsins þegar samkv. lögum á að vera búin að fá að vita í þeim efnum, ætti að vera heimilt þingheimi að fá vitneskju um líka.