29.03.1954
Efri deild: 72. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

16. mál, sóttvarnarlög

Frsm. (Ingólfur Flygenring):

Herra forseti. Frv. það,. sem liggur fyrir til sáttvarnarlaga, er stjfrv., en samið af landlækni. Það er fram komið til ess að samræma sóttvarnarlög vor við alþjóðlega sóttvarnarsamning, sem Ísland hefur gerzt aðili að á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Við samningu frv. þessa hefur landlæknir stuðzt við dönsk lög og nýsamið frv. um þetta efni og haft samband við dönsku heilbrigðisstjórnina, þannig að löggjöfin verði sem líkust því, er gerist á Norðurlöndum, en vér höfum lengstum átt samleið með þeim í skipun þessara mála. — Frv. er mjög ýtarlegt, er í 10 köflum og 45 greinum. Heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. hefur haft frv. til athugunar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.