01.03.1954
Efri deild: 54. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (638)

93. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Frsm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. hefur borið hér fram brtt., eins og við var búizt. Hann skýrði að öllu leyti rétt frá umræðum, sem fóru fram um efni þessara tillagna í fjhn., og þarf ég þess vegna ekki að bæta þar verulegu við; þó vil ég aðeins minnast á tillögurnar.

1. till. er um breyt. á 14. gr., 2. málsl. 2. málsgr. Þetta atriði kom til umræðu í fjhn. vegna bréfs frá stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og var nokkuð athugað, og að athuguðu máli gat meiri hl. ekki fallizt á að taka þetta ákvæði upp, að greinin orðist þannig: „Ef sama eða sams konar staða er aftur stofnuð.“ Í því sambandi vil ég geta þess, að fulltrúar ríkisstj. mæltu móti því, að þessi breyting yrði gerð, og þeir töldu, að með því gæti orðið meiri ágreiningur um rétt starfsmanna. Flm. till. telur, að það sé erfitt að meta, hvort „sama staða“ er stofnuð. En með engu minni rétti má segja, heldur þvert á móti meiri, að erfitt sé að meta, hvort staða er „sams konar“ eða ekki; það orð verður einmitt teygjuband. Nú er sjálfsagt að viðurkenna það, að menn, sem missa stöðu fyrir það, að hún er lögð niður, og eru hæfir í starfi, ættu að eiga nokkurn rétt, meira að segja mikinn rétt til þess að fá nýjan starfa, og það vakir ekki fyrir meiri hl. n. að mæla gegn því. En ekki er heppilegt að skapa um þetta skilyrði til deilu og gera það mjög teygjanlegt, til hvaða stöðu maðurinn getur talið sig eiga rétt, og meiri hl. taldi sig með því að taka upp brtt., sem gefur slíkum starfsmönnum rétt til þess að hafa forgangsrétt að öðru jöfnu að hverju starfi sem er í þjónustu ríkisins í fimm ár, gera með því hátt undir höfði þeim starfsmanni, sem hefur orðið fyrir því, að staða hans er lögð niður.

Þá er það brtt. við 34. gr., að aftan við fyrri málsl. greinarinnar bætist: „enda hafi breytingin ekki áhrif til skerðingar á launakjörum hans eða réttindum.“ Nefndin taldi, eins og hv. flm. sagði, að þetta væri tryggt með seinni málsgr. 15. gr., eins og hún verður samkv. brtt. n., og óþarft að endurtaka það, með því líka að það var upplýst, að á því væri ekki neinn vafi, að sá embættismaður, sem fer úr stöðu vegna þess, að hann hlítir breytingum lögum samkvæmt á störfum sínum, á fullan rétt á því að fá það bætt. Með till. virðist vera frekar girt fyrir það, að hann sé skyldur að fara úr stöðu, en hins vegar væri það óheppilegt, ef ekki væri hægt að breyta verkahring og starfssviði. En tvímælalaust þarf það að vera, að sá, sem verður fyrir þeim breytingum í starfi sínu, eigi fullan bótarétt, svo að hann bíði ekki fjárhagslegan skaða af því. Og um það er víst ekki deilt, að hann eigi þann rétt.

Þá er brtt. við 36. gr. Sú brtt. kom fram frá stjórn bandalagsins, og að vel athuguðu máli taldi meiri hl. n. ástæðulaust að taka hana upp, m.a. fyrir það, að það, sem hér er verið að tala um og gerð till. um að verði tekið sérstaklega í lögin, er að finna í lögunum á öðrum stað, eða í 15. gr., og hv. flm. viðurkenndi það líka, að það væri þar í raun og veru, en till. flutt til þess að taka af allan efa. Engin ástæða virðist til að lengja lög að áþörfu eða hafa þar meiri endurtekningar en nauðsynlegt má teljast. Ég tel þetta óþarfa endurtekningu og eiginlega að gefa löggjöfinni, ef upp yrði tekið, dálítið leiðinlegan blæ, og ég vona, að hv. flm. geti fallizt á það líka. Það var hlegið að fjármanni einum, sem lét sér ekki nægja að telja fé í hús, því þó að hann fengi allt inn, þá taldi hann sér nauðsynlegt að ganga fyrir allar slóðir líka. Það er eitthvað því líkt, sem lagt er til að gert verði með því að taka upp þessa till. Það er viðurkennt, að allt sé komið í frv., sem koma þarf, en fyrir allar slóðir á samt að ganga; það tel ég alveg óþarft.