26.03.1954
Neðri deild: 70. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (650)
93. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Frsm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þetta frv. um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er komið frá hv. Ed. og á sér að öðru leyti alllangan aðdraganda, var undirbúið fyrir nokkrum árum af dómsmrn. og síðan þetta frv. yfirfarið af starfsmönnum í stjórnarráðinu, eins og grg. ber með sér, og auk þess hefur átt sér stað viðtækt samstarf og samráð við fulltrúa frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja.
Fjhn. Nd. boðaði á fundi sína bæði fulltrúa frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og þá starfsmenn stjórnarráðsins, sem að undirbúningi málsins höfðu starfað. Niðurstöður hjá nefndinni voru að leggja til, að frv. yrði samþykkt, en þó hafa nm. áskilið sér rétt til þess að flytja og fylgja brtt., og í samræmi við það liggja þess vegna fyrir nokkrar brtt. við frv. Ég vil taka það fram, að við erum fleiri nm. heldur en þeir, sem brtt. hafa flutt, sem álitum, að það mættu ef til vill athugast nokkru betur einstök ákvæði frv., en þó teljum við það ekki svo mikilvægt, að við viljum stofna til þess að gera breytingar svo að nokkru nemi á frv., vegna þess að langt er komið þingtíma nú, og gæti það orðið til þess að tefja fyrir framgangi málsins á þessu þingi. Sama sjónarmið hefur komið fram hjá fulltrúum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Eins og nú er komið málum, gerðu þeir grein fyrir því í nefndinni, að þeir legðu megináherzlu á afgreiðslu málsins, enda þótt þeir óskuðu heldur, að nokkur ákvæði þess væru öðruvísi. Nefndin leggur þá einnig til, að frv. verði samþykkt, með þeim fyrirvara, sem ég hef getið.