26.03.1954
Neðri deild: 70. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

93. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Jón Pálmason:

Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm. lýsti sig algerlega andvígan síðari brtt. minni á þskj. 498 og taldi þar um að ræða skerðingu á rétti starfsmanna í þeim ákvæðum, sem í till. eru. Ég skal nú ekki á þessu stigi fara í neinn samanburð við þennan hv. þm. um aðstöðu fastlaunaðra starfsmanna ríkisins og verkamanna, sem mér skildist á honum að væri dálítið breytilegur, þannig að verkamennirnir hefðu hærri tekjur sem svaraði 10%, en aðeins minna á það, að ég held, að það sé undantekningarlaust, að ef menn í verkamannastétt eiga kost á því að fá fast starf, þá kjósi þeir það heldur, og það má segja, að um hvert einasta smástarf, fast starf, sem hér er auglýst í stofnunum ríkisins, sæki mjög margír menn, og oft svo að skiptir mörgum tugum. Þetta er ósköp eðlilegt, vegna þess að aðstaða fastlaunaðra manna og verkamanna, sem hafa tiltölulega ótrygga atvinnu, er ákaflega ólík. En nú er það ekki þannig í minni brtt., að ég ætlist til þess, að það sé á neinn hátt skertur sá réttur, sem ákveðinn er í ráðningarsamningum sem nú eru í gildi, þegar þessi lög öðlast gildi, því að það er beinlínis tekið fram, að þeir ráðningarsamningar, sem þá eru í gildi, haldi áfram að gilda, enda þótt launalögum væri breytt. En tili. er um það, og það er í rauninni aðalatriði hennar, að það sé ekki heimilt, eftir að þessi lög öðlast gildi, að gera ráðningarsamninga upp á annan máta en þann, að það sé tekið fram í þeim, að þeir geti tekið breytingum, ef launalögum er breytt. Hér er ákaflega vægt í sakirnar farið, og ég held, að embættismannastéttin þurfi ekkert að óttast, þó að þessi litla brtt. væri samþykkt, og allra sízt höfum við nú kynni af því, að hún þurfi neitt að óttast hér á hinu háa Alþingi, vegna þess að minnsta kosti síðustu tvo áratugina hefur fastlaunastéttin haft hér hreinan meiri hluta og notað sér hann talsvert vel sér til tryggingar og framdráttar.