05.04.1954
Neðri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (689)
167. mál, tollskrá o. fl.
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 652 að bera fram brtt. við brtt. á þskj. 636 um, að af fiskkössum verði reiknaður vörumagnstollur 2 aurar á kg og 2% verðtollur. Hv. fjhn. hefur gert till. um nokkra lækkun á þessum lið, eða í 7 aura vörumagnstoll og 8% verðtoll.
Í fyrsta lagi eru þessir kassar ekki smíðaðir hér á landi, og í öðru lagi eru þeir mjög nytsamir fyrir fiskiðnaðinn, þar sem þeir eru notaðir undir bæði fiskflök, hrogn, þunnildi, síld og til ýmissa annarra nota í sambandi við frystihúsrekstur. Ég fullyrði, að einmitt síðan byrjað var að nota þessa kassa hefur vöndun á meðferð þessara vörutegunda farið mjög mikið fram, í stað þess að áður voru notaðar stálkörfur undir þessar vörur frystihúsanna, sem orsökuðu oft skemmdir á þessum afurðum. Ég tel því, að það sé fylista sanngirni, að þessir kassar verði tollaðir eins og ég fer fram á í brtt. minni.