06.04.1954
Efri deild: 78. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (720)
178. mál, útsvör
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði nú ekki hugsað mér að taka til máls í þessu máli, en mér er alveg ómögulegt að láta ósvarað ræðu hv. 4. þm. Reykv. (HG), sem hann hélt hér áðan. 9ð vísu svaraði hv. frsm. henni að nokkru leyti, en ég tel þó, að það þurfi að gera betri skil því máli og leiða hv. þm. í allan sannleika um þessi mál, ef honum er það ekki enn kunnugt.
Eins og vitað er og tekið var fram hér í sambandi við það mál, sem var hér til umr. fyrr á þessum fundi, þá er ekki aðalskattþunginn á þegnunum tekju- og eignarskattur ríkisins, heldur einmitt útsvörin. Svo mjög sem menn hafa kvartað undan tekju- og eignarskatti og jafnvel undan tollum og söluskatti, þá hafa menn þó enn meira kvartað undan þeirri byrði, sem sveitarsjóðirnir sjálfsagt réttilega hafa þurft að leggja á sína þegna. Og ég fer ekki þar með rangt mál, þegar ég fullyrði, að það þætti engin réttlæting á skattalöggjöfinni yfirleitt, ef ekki væri hægt að setja a.m.k. skorður við því, að bæjar- og sveitarsjóðir tækju til sín þann hluta, sem ríkissjóður er hér að gefa eftir af sínum tekjum. En frumskilyrði fyrir því, að svo verði, er einmitt, að 2, gr. þessa frv., sem hér er til umr., verði samþ. Það gefur þó einhverja möguleika til þess að fylgjast með því, hvort sveitarsjóðirnir eða bæjarsjóðirnir eru að taka til sín þegar á þessu yfirstandandi ári þann hluta, sem ríkissjóðurinn er að gefa eftir. Auk þess er það hornsteinninn undir því, sem hugsað er að breyta síðar, að gera veltuútsvörin frádráttarbær. Er samþykkt frv. frumskilyrði fyrir því, að svo megi verða. Það er ekki hægt yfirleitt að gera það, eins og hv. frsm. tók fram, ef ekki er hægt að sundurgreina fyrir fram, hve mikil veltuútsvörin eru. Annars geta að sjálfsögðu sveitarstjórnir alltaf komið á eftir og sagt: Okkar útsvar var lagt á þannig, að 50% af því er veltuútsvar — eða einhver annar hundraðshluti. Það yrði svo frádráttarbært og gæti jafnframt haft það í för með sér, að svo og svo margir skattþegnar í landinu yrðu algerlega skattfrjálsir til ríkissjóðs, en samt sem áður yrðu þeir að greiða eftir efnum og ástæðum til bæjar- og sveitarfélaga og hafa ekkert um það að segja og enga vörn gegn slíkri eignatöku. Ég vil í sambandi við þetta leyfa' mér að benda hv. þm. og hv. deild á eitt ákveðið dæmi, sem mér er kunnugt um.
Félag, sem hafði löggilt bókhald, sem var endurskoðað af löggiltum endurskoðendum, hafði 26 þús. kr. í hreinan ágóða á árinu, mátti samkvæmt skattalögunum leggja 5200 kr. í varasjóð og gerði það. Á þessar tekjur voru lagðir skattar til ríkisins 4800 kr. og þar ekki innifalinn eignarskattur, vegna þess að viðkomandi aðili átti ekki fyrir skuldum. En síðan kemur bæjarfélagið eða sveitarfélagið og leggur 20400 kr. í útsvar á þennan sama aðila, þ.e.a.s. 20 þús. kr. í beint útsvar og 400 kr. í kirkjugarðsgjald. Þá er álagningin á þetta fyrirtæki orðin 25200 kr., og verður þá að taka 4400 kr. úr varasjóðnum aftur til þess að geta greitt þessa álögðu skatta.
Ég veit, að þetta er ekki eina dæmið, svona eru fjöldamörg dæmi. Og hvað heldur nú hv. 4. þm. Reykv., að það séu margir aðilar í landinu, sem vilja veita svo og svo mörgum mönnum atvinnu og halda áfram atvinnurekstri undir slíkum skattaákvæðum eins og hér hefur verið beitt? Nú sagði hv. þm., að þessir menn gætu bara klagað undan sínum álögum. Það er alveg rétt. Þessir menn klöguðu líka undan sinni álagningu. Þeir fengu ekki einu sinni leyfi til að ræða eið þá dómara, sem taka sér það vald að segja: Þetta skal greitt. — Þeir svara aðeins með einni línu: Kæran er ekki tekin til greina, útsvarið skal óbreytt standa. — Undir venjulegum kringumstæðum segja yfirskattanefndirnar það sama og langoftast einnig ríkisskattanefndirnar, sem hvað eftir annað hafa lýst því yfir, að þær hafi ekki ástæðu til þess að ganga beint í berhögg við dóm niðurjöfnunarnefndar. Þetta er sannleikurinn í þessum málum. Hér er því bókstaflega engin vörn til fyrir skattþegnana. Þetta er það minnsta, sem hægt er að gera í þessu tilfelli, að setja þessi ákvæði, sem hér eru sett fram í 2. gr. frv. Það er allra lægsta lágmark, sem hægt er að hugsa sér.
Ég veit ekki heldur, hvaða siðferði hv. 4. þm. Reykv. er að boða hér í þessum málum, að það sé eiginlega einhver goðgá að taka framtöl manna sem grundvöll fyrir útsvarsálagningu. Hvað annað á að taka gilt? Er réttara að taka gilt einhvern slumpareikning ákveðinnar niðurjöfnunarnefndar, sem ekkert þekkir oft og tíðum aðstæður þessara manna, hefur ekki hugmynd um, hvað hún er að gera, og hefur ekkert við að styðjast annað en framtölin. Ég veit ekki, hvað á að taka gilt, ef ekki framtöl, sem undirrituð eru undir eiðstilboð. Það er sama sem dómari tekur undir flestum kringumstæðum gilt í réttarfari; ef ekki er krafizt sérstaklega eiðfestingar, þá láta menn sér nægja slík drengskaparheit. En það á ekki að taka gilt við útsvarsálagninguna.
Mér er kunnugt um, að sú regla, sem höfð er t.d. hér í Reykjavík og kannske víðar á landinu, er þessi, að það er fyrst lagt á tekjur mannsins, síðan á eignir mannsins, svo er lagt á veituútsvar, sem þeir ekki þykjast nú skyldugir til þess að gefa upp, þótt þeir raunverulega hafi nú orðið að gera það, ef það hefur verið farið í mál og þeir hafa verið dæmdir til þess. En svo er bara einn skattstofninn enn, sem Reykjavíkurbær og margir aðrir bæir nota alveg óspart og hv. 4. þm. Reykv. vill halda verndarhendi yfir; það er áætluð skattsvik hjá viðkomandi aðilum. Jafnvel þó að þessir aðilar hafi sýnt allt, sem hægt er að sýna máli sínu til sönnunar, lagt fram bókhald, látið löggilta endurskoðendur ganga í gegnum það og skoða það samt sem áður hafa þeir tekið sér þetta vald að segja: Ja, hér hlýtur að vera, að maðurinn hafi þénað meira, hann hlýtur að vera að svíkja skatt, hann hlýtur að vantelja eignir sínar og tekjur o.s.frv., hann hlýtur að eiga eitthvað í sparisjóðsbók, sem ekki er gefið upp. — Ef lögfesta ætti slíkt siðferði í þessum málum, þá veit ég ekki, hvernig yfirleitt ætti að koma fyrir skattalögum og skattaákvæðum.
Ég álít, að það sé ekkert jafnaðkallandi í þessum málum eins og einmitt það, að niðurjöfnunarnefndirnar séu skyldaðar til, eins og sagt er í þessari grein, að leggja fram þær reglur, sem þær fara eftir, og ef þær fara út fyrir þær reglur, þá hljóti sönnunarskyldan að hvíla á þeim, en sannarlega ekki á hinum aðilanum, sem hefur gefið sína skýrslu sanna og rétta undir drengskaparheiti.
Mér þótti rétt að láta þetta koma hér fram vegna ræðu hv. 4. þm. Reykv. í þessu máli.