07.04.1954
Neðri deild: 80. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (764)

11. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Frsm. fjhn. í þessu máli, hv. þm. A-Húnv. (JPálm), getur ekki mætt nú á fundinum, og vil ég því segja örfá orð um frv. út af því, sem hér hefur fram komið.

Hv. þm. Snæf. (SÁ) bar fram hér brtt. við 23. gr. frv. við 2. umr. og flutti þá ræðu og hélt því fram, að hér væri um mjög margfalda aukningu að ræða á þessum gjöldum, þ.e. þinglýsingargjöldum. Hann hefur nú, vegna þess að till. hans var felld við 2. umr., borið fram till. á nýjan leik um þetta sama atriði og heldur því fram, að gjöldin, sem hér séu tekin, séu — mér heyrðist hann segja sextán sinnum hærri en 1934. Þetta hlýtur allt að vera byggt á ákaflega miklum misskilningi hjá hv. þm. Í grg., sem fylgir þessu frv., er skýrsla yfir það, hver gjöldin hafi áður verið, og til samanburðar, hver þau séu samkvæmt frv. Frumgjald fyrir þinglýsingu skjala er samkv. frv. 50 kr., þegar fjárhæðin er 5 þús. kr. eða minni. En þetta frumgjald hefur verið síðan 1951 16.80 kr. Þarna er um rúmlega 30 kr. hækkun að ræða. Hins vegar er viðbótargjald á þúsund samkv. frv., eins og það nú er og eins og það kom frá Ed., 2.40 kr. á hvert þúsund, og þetta er nákvæmlega sama gjaldið og tekið hefur verið síðan 1951. Í frv., eins og það var upphaflega lagt fyrir, var gert ráð fyrir, að þetta væri hærra, 5 kr. á hvert þúsund, og það er það enn af skjölum, þar sem um er að ræða annað en lán út á framleiðsluvörur sjávarútvegs, landbúnaðar eða iðnaðar. Breytingin í Ed. var sú, að gjald fyrir skjöl, sem gefin eru út í sambandi við lán með veði í framleiðsluvörum, var lækkað úr 5 kr. í 2.40 kr., og eins og ég hef þegar sagt, þá er það nákvæmlega jafnhátt og verið hefur síðan 1951, svo að hér er ekki um neina hækkun að ræða.

Út af því, sem hv. þm. sagði um, hvað þetta hefði verið fyrir 30 árum, þá kemur það fram hér í þessari skýrslu frá þeim, sem sömdu frv., að þetta gjald hefur verið 1921 — samkv. lögum frá 1921 — 1 kr. á hvert þúsund, þ.e. viðbótargjaldið, sem nú er samkv. frv. 2.40, svo að það að tala um sextánfalt gjald af þessum skjölum fyrir þinglýsingu er algerlega út í bláinn og byggt á einhverjum misskilningi, held ég að hljóti að vera. Ég vil taka það fram, að n. mælir með frv. óbreyttu, og kom það fram hjá frsm. við 2. umr. málsins. En n. leggur gegn þessari brtt. hjá hv. þm. Snæf.