02.04.1954
Neðri deild: 76. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (816)

194. mál, raforkulög

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Mér þótti hæstv. landbrh. svara með alveg óviðeigandi þjósti þeim spurningum, sem ég beindi hér til hans á fullkomlega kurteisan hátt, og ég held, að það sé ekki til þess að bæta fyrir því, sem hæstv. ríkisstj. er að leggja til og tala við okkur þm. um í þessum efnum, að taka þannig fyrirspurnum frá okkur.

Hæstv. ráðh. svaraði ekki þeirri fsp., sem hann nú sérstaklega fann ástæðu til þess að fara að gera eitthvert grín að hér, þegar ég talaði um búvísindi ríkisstj. Ég ætla að segja honum það, að ég álít það ekki búvísindi að taka tolla sjálfur af því, sem flutt er inn til ríkisins, og standa svo uppí í vandræðum við að borga þessa tolla og jafnvel tefja virkjanirnar vegna þess. (Gripið fram í.) Ég skal lýsa því fyrir hæstv. ráðh., hvers konar asnaskapur það er, sem hæstv. ríkisstj. rekur í þessu sambandi. Ég er í stjórn Sogsvirkjunarinnar, og Sogsvirkjunarstjórnin hefur staðið uppi í vandræðum með að fá peninga, m.a. til þess að borga söluskattinn til ríkissjóðs, söluskatt, sem fer yfir 20 millj. kr. af Sogsvirkjuninni nýju. Það hefur verið farið í banka til þess að reyna að fá lán til þess að borga ríkisstj. svona skatta. Og svo þegar þessi virkjun loksins er komin upp, kostar hún 165 millj. kr. Ríkisstj. sjálf er ásamt Reykjavíkurbæ eigandinn þarna að. Þá er ástandið þetta: Ríkisstjórnin hefur fengið í sinn vasa um 25 milljónir króna í söluskatt og tolla. Hún hefur ekki lagt fram einn einasta eyri — ekki einn einasta eyri til þessa. Er þetta til þess að létta undir með landsbúum í því að koma sér upp raforkuverunum? Er þetta praktísk aðferð fyrir ríkisstj. sjálfa í því að koma upp raforkuverum, sem hún á að eiga? Ég skil það ósköp vel, að hæstv. ráðh. vilji koma sér hjá því að svara svona fyrirspurn. Það mundi ekki nokkur maður haga sér á þennan hátt, það mundi enginn bóndi búa á þennan hátt. leggja svona skatt á sjálfan sig. Ég álít þess vegna, að það sé fyllilega réttmætt og Alþingi eigi að athuga það fullkomlega hér, hvort það eigi ekki að undanþiggja í sambandi við raforkuverin allar vélarnar til þeirra söluskatti, og fyrst hæstv. ráðherra tekur þessum málum svona, þá mun ég sjá til þess, að það komi fram hér brtt. við þetta frv., þar sem það sé sérstaklega fyrirskipað, að allt það, sem raforkuverin úti um land eiga að fá til sinnar raforku, verði skattfrjálst. Ég kom hér fram með þessa fyrirspurn algerlega kurteislega til hæstv. ríkisstj., og ég býst satt að segja við, að hún hefði átt fyrir löngu að vera búin að athuga þennan hlut. Það er alveg óþarfi að vera að skattleggja ríkíð sjálft á þennan máta, sem þarna er gert, og er aðeins til þess að auka kostnað og skapa fyrirhöfn. En fyrst það er tekið svona óstinnt upp, þó að bent sé á þetta, þá er líka bezt, að það komi alveg greinilega fram og hæstv. ríkisstj. og hennar flokkar fái að taka afstöðu til þess, hvort það á sérstaklega að skattleggja allar raforkuframkvæmdirnar í landinu á næstu tíu árum til ríkissjóðs með um 10% af því verðmæti, sem það kostar að koma þeim upp.

Þá fór hæstv. ráðh., án þess að ég hefði gefið nokkurt tilefni til þess heldur, að ræða um mín búvísindi í þessu sambandi. Ég skal mæta hæstv. ráðh. og hans flokki alveg ósmeykur um, hvor sýnt hafi meiri búvísindi viðvíkjandi atvinnulífi okkar Íslendinga. Og ég skal minna þennan hæstv. ráðh. á, ekki sízt af því að hann átti nú sjálfur einu sinni sæti með mér í einni nefnd, sem vann allvel að þeim málum, að það mun standa sem óbrotgjarn minnisvarði á sinn neikvæða hátt, það sem hans samráðherra, hæstv. fjmrh., sagði um þá togara, sem Ísland núna byggir fyrst og fremst sína afkomu á, að þetta væri allt saman gums, sem menn vissu ekkert hvað ætti við að gera, og það mun standa til samanburðar við fyrirhyggju okkar sósíalista og annarra, sem með okkur störfuðu við að afla Íslandi þeirra framleiðslutækja, sem nú m.a. gera hæstv. ríkisstj. kleift að hugsa svo hátt sem að leggja það raforkuplan, sem hér liggur fyrir.

Þá kom hæstv. ráðh. inn á það að svara spurningu minni um röðina í sambandi við orkuverin og minntist á, eins og ég líka þóttist vita, að það mundi eiga að hefjast handa með tvö orkuver í ár, annað austanlands, hitt vestanlands. En svo vildi hann tala um, að ég væri að setja mig á einhvern háan hest og þættist hafa fræðilega þekkingu á þeim hlutum betur en sérfræðingarnir. Það er alveg öfugt. Það er einmitt vegna þess, að ég veit ósköp vel, að hverju sérfræðingarnir í rafmagnsmálunum spyrja stjórnmálamennina, þegar þeir fara að ákveða, í hvaða röð eigi að virkja, að ég vildi vekja eftirtekt á því, að við ættum að vera hér við því búnir á Alþingi að svara. Þegar raforkumálastjórnin, raforkumálastjóri og hans sérfræðingar, fara t.d. að ráðgast um það, hvort eigi að virkja Grímsá eða Fjarðará eða hins vegar Lagarfoss, sem mundi gefa sín 5300 hestöfl, eða hinar árnar, sem gefa sín 2–3 þús. hestöfl, — þegar þeir fara að hugsa um og taka ákvörðun um, hvort sé fræðilega praktískara og réttara að leggja í, þá spyrja þeir okkur stjórnmálamennina að því, hvort við höfum einhverjar áætlanir í gangi eða einhverjar fyrirætlanir, sem mundu verða til þess, t.d. hvað Austfirðina snerti, að efla þar atvinnulíf, sem þýðir að fjölga þar fólki, og þeir koma til með að taka upp töflu um leið og benda okkur á, að á síðustu 20 árum hafi ekki bætzt við mannfjöldann á Austurlandi. Þeir koma til með að spyrja stjórnmálamennina: Á þetta að vera svona næstu 20 ár líka, eða eigum við jafnvel að verða að ganga út frá því, að það fækki fólki þar á Austurlandi? Verðum við að sníða það raforkuver, sem við hugsum um, við það, að það fullnægi neyzlu þessa fólks, sem þarna býr, og ekkert fólk svo að segja bætist við, eða er hæstv. ríkisstj. með í undirbúningi fyrirætlanir um ýmsar atvinnuframkvæmdir í þessum byggðarlögum, sem mundu gera það að verkum, að þarna mundi koma upp t.d. vaxandi fiskiðnaður, vaxandi smáiðja, landbúnaður og annað slíkt og fólkinu þess vegna mundi fjölga á þessum stöðum? Þetta er það, sem sérfræðingarnir eðlilega spyrja okkur að. Þetta er spurningin, sem þeir alltaf koma til með að leggja fyrir okkur, áður en þeir koma til með að ákvarða, hvort lagt er í Lagarfoss sem stærstu virkjunina þarna og ódýrustu virkjunina — langsamlega ódýrustu — ég býst við, að Lagarfoss sé ekki nema 3 millj. kr. dýrari, orkuverið sjálft, heldur en virkjun, sem gefur helmingi minni kílówattatölu. Ég býst við, að þeir spyrji að þessu, vegna þess að ef þeir verða að hugsa sem svo: Það kemur ekki til með að verða aukin atvinnan á þessum stað, það þýðir þess vegna ekkert að fara að virkja Lagarfoss, það verður alveg nóg raforka úr minni virkjunum þar, — ja, þá leggja þeir í minni virkjanirnar, þó að þær séu hlutfallslega miklu dýrari, þó að þær séu miklu dýrari í raun og veru. Hins vegar ef ríkisstj. kæmi svo eftir eitt eða tvö ár með einhverjar till., sem þýddu að auka atvinnulífið á þessum stað, þá mundu sérfræðingarnir segja við ríkisstj. eftir á: Hví í ósköpunum sagðirðu okkur þetta ekki fyrir fram? Það er þetta, sem gerir það að verkum, að ég kom fram með þessar spurningar hérna. Ég hef komið fram með þessar spurningar áður, og það hefur ekki verið tekið tillit til þessara spurninga hér áður. Ég kom fram með slíkar spurningar einmitt í sambandi við fjárhagsráð, þegar það var sett á laggirnar og rætt var um áætlanir viðvíkjandi áburðarverksmiðju o.fl. Ég kom þá með spurningar viðvíkjandi raforkuverunum, sem ættu að veita orkuna til áburðarverksmiðjunnar. Það var ekki tekið tillit til þess, sem ég var að spyrja að þá og benda á, og þegar komið var fram með frv. um áburðarverksmiðju tveim árum seinna, þá var stærð áburðarverksmiðjunnar sniðin við það rafmagn, sem álitið var að yrði afgangs úr þeirri virkjun, sem var lagt í. Hins vegar var þetta tvennt ekki samræmt, að hugsa í senn um raforkuverin og um verksmiðjuna, sem átti að fá rafmagnið, og það er þetta, sem alltaf vantar. Þess vegna er það ákaflega eðlilegt, að ég spurði, og raforkumálastjóri og hans sérfræðingar mundu spyrja hæstv. ráðh. á nákvæmlega sama hátt. Þeir mundu vilja fá að vita, hvað hugsað væri viðvíkjandi orkuverum í þessu sambandi. Ég vil minna á, að ein ástæðan til þess, að sementsverksmiðjan er staðsett á Akranesi, er, að það er hægt að benda á það sem röksemd, að þar sé rafmagn afgangs frá því orkuveri. Það er óhjákvæmilegt samhengi á milli atvinnulífsins sjálfs og fyrirætlananna um að efla atvinnulífið annars vegar og fyrirætlananna í raforkumálunum hins vegar. Þess vegna er ég ekki að reyna að tala sem neinn rafmagnssérfræðingur, þegar ég er að benda á þessa staðreynd. Ég er aðeins að benda á það, hvaða samræmi þurfi að vera á milli þeirra áætlana, sem menn gera viðvíkjandi raforkumálum, og þess, hvað menn hugsa viðvíkjandi atvinnulífinu.

Hæstv. ráðh. sagði, að það mundi verða ákveðið að öllum líkindum síðari hlutann í þessum mánuði,í hvaða fossa ætti að leggja vestanlands og austan. Alþ. mun eiga að fara heim 14. apríl. Hví að geyma þá ákvörðun endilega þangað til Alþ. er farið? Hví má ekki leyfa Alþ. að hafa eitthvað um það að segja meira en að gefa heimildarlög, hvort það er Lagarfoss og Dynjandi, sem í er lagt, eða hvort það eru hafðar aðrar aðferðir?

Ég efast ekki um, að svo framarlega sem fjhn. þessarar hv. d. kallar raforkumálastjóra og hans sérfræðinga á sinn fund og spyr hann um það, hvað þeir leggi mikið upp úr, hvers konar atvinnuframkvæmdir séu planlagðar á þessum stöðum, þá munu þeir svara því alveg ótvírætt, að þeir mundu haga sínum ákvörðunum um staðsetningu raforkuveranna og hve stóra fossa yrði lagt í með tilliti til þess, hvað ríkisstj. hugsaði sér fyrir í þessum atvinnuframkvæmdum. Ef ríkisstj. hins vegar hugsar sér ekkert fyrir í þessum atvinnuframkvæmdum og gefur þeim ekkert undir fótinn með það að hugsa frekar stórt í þessum efnum, þá er ég hræddur um, að þeir, tilneyddir sumpart af því upplýsingaleysi, mun3u leggja í minni fossa, en um leið ópraktískari, á þessum stöðum, heldur en þeir ella hefðu gert. — Þetta vil ég aðeins taka fram, sökum þess að hæstv. ráðh. virtist taka þetta, sem ég hafði sagt, svo óstinnt upp. Það var ekkert af því, sem ég sagði, mælt af neinu yfirlæti, heldur aðeins spurningar, og því alveg óþarfi að svara eins og hann gerði. En hins vegar þykir mér þessi ræða hans sýna, að það muni þurfa að ræða þessi mál þó nokkru nánar hér í þingínu heldur en ég hafði nú satt að segja haldið að nauðsyn væri á.