05.04.1954
Efri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (858)
124. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja litla brtt. á þskj. 608 við fuglafriðunarfrv. Sú till. snertir eingöngu 8. gr. Hún er í þremur liðum.
A-liður brtt. er um það að leyfa ekki veiði andfugla þeirra, sem um ræðir í c- og d-liðum 8. gr., fyrr en 20. sept. í staðinn fyrir 20. ágúst, þ.e. að að lengja friðunartíma þeirra um einn mánuð. Till. er byggð á þeirri staðreynd, að 20. ágúst er margt unga þessara fugla enn ófleygt, einkum þegar seint sumrar, eins og oft vill verða í landi okkar. Það er í alla staði ómannúðlegt að leyfa dráp á ófleygum unga, sem þá er hægt að elta uppi. Einnig er margt anda 20. ágúst enn í sárum.
B-liður brtt. er um það að lengja friðunartíma þeirra fugla, er þar um ræðir, um 20 daga, þannig að veiðitíminn byrji 10 dögum seinna en frv. gerir ráð fyrir og endi 10 dögum fyrr. Þetta legg ég til vegna þess, að þessir fuglar eiga líka ófleyga unga og eru enn í sárum eins og fuglarnir, sem um ræðir í c- og d-liðum, á haustin, þegar 20. ágúst er kominn, en það bætir nokkuð úr að friða þá 10 dögum lengur. Enn fremur er það, að þessir fuglar eru farnir að búa sig undir varptímann seint í apríl, og þá er óviðeigandi að leyfa dráp á þeim. Einnig felst í till. sú breyting, að himbrimi sé alfriðaður. Ég legg til, að hann verði tekinn út úr liðnum. Himbriminn, sem stundum er kallaður brúsi, er mjög fallegur fugl, áberandi í ríki náttúrunnar, þar sem hann á annað borð fyrirfinnst, og mjög eftirsóttur. Hann er að verða fáséðari og fáséðari, og þess vegna er að mínu áliti nauðsynlegt að alfriða hann. Ef hann hyrfi úr hinu tiltölulega fábreytta fuglaríki Íslands, þá væri það mikill sjónarsviptir.
C-liður till. er um friðun rjúpunnar. Till. er um, að friðun hennar byrji 23. des., þ.e. rétt fyrir jólin. Óviðeigandi er það og alveg óþarft, að menn noti jólahelgina til þess að bana rjúpunni.
Ég leyfi mér að vænta þess, að þessum till. verði vel tekið; ég tel, að þær séu allar áreiðanlega til bóta.