06.04.1954
Efri deild: 78. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (862)
124. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Mér dettur ekki í hug að efast um, að hv. frsm. menntmn. hafi farið rétt með ummæli dr. Finns Guðmundssonar, og ekki vil ég heldur í neinu kasta rýrð á þann ágæta fræðimann, dr. Finn Guðmundsson. Þó er það svo, að ég get ekki fallið frá þessari till., sem ég hef lagt fram, því að ég fyrir mitt leyti lít svo á, að hún muni vera réttmæt. Að vísu skal ég játa, að ég er ekki sérstaklega vel að mér um þessa hluti, en á bak við till. mína stendur álit tveggja manna, sem ég vil leyfa mér að kalla náttúruskoðara, tveggja manna í Þingeyjarsýslum, sem voru til þess kjörnir af sýslunefndum þar ásamt oddvita sýslunefndarinnar að athuga frv., sem upphaflega var fram lagt og sent sýslunefndum til umsagnar. Þessir tveir náttúruskoðarar eru að vísu leikmenn, en komið hefur það fyrir, að leikmenn, sem lifa og hrærast með náttúrunni, hafa reynzt lærðum mönnum glöggskyggnari í einstökum etnum. Þessir menn, sem ég vitna til að því er tillögu mína snertir, eru Bjartmar hreppsstjóri Guðmundsson á Sandi, sem alinn var upp í garði föður síns, Guðmundar skálds á Sandi, við ást og glöggskyggni á dýra- og fuglalífi. Hinn maðurinn er Theodór Gunnlaugsson bóndi á Hafurstöðum í Axarfirði, annálaður náttúruunnandi, en jafnframt frægur skotmaður. Ég er viss um, að báðir þessir menn vita af eigin sjón og raun, hvað þeir eru að segja um þessi efni, að ungar andfuglanna, sem um ræðir í a- og b-lið till. minnar, eru oft og tíðum ófleygir 20. ágúst og himbriminn er nálega horfinn, a.m.k. af sínum fornu slóðum þar norður frá.
Eitt þykir mér dálítið óvandvirknislegt, ef ég hef skilið það rétt í umsögn doktorsins, en það er það, að þeir fuglar, sem ég legg til að lengur verði friðaðir, séu farfuglar, því að í grg. með frv. segir um d-flokkinn, að þær þrjár andategundir, sem þar eru taldar, séu staðfuglar hér á landi, a.m.k. að nokkru leyti, og að grg. þessari stendur einmitt doktorinn meðal annarra. (Gripið fram í). Það er þá algerlega nefndarvilla, sem ræðir um í d-lið, undir a-lið till.
Meira hef ég svo eiginlega ekki um þetta að segja. Ég tel rétt, að hv. þdm. leiði athygli að því, að till. mín er ekki flutt án íhugunar og á bak við hana stendur álit manna, sem eru fróðir um þessa hluti, a.m.k. sem leikmenn.