08.04.1954
Neðri deild: 81. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

124. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun

Gísli Guðmundsson:

Ég skal ekki tefja þessar umr., enda þarf ég ekki miklu við að bæta. Ég varð því miður að fara á annan fund áðan, á meðan hv. frsm. menntmn. flutti sína ýtarlegu ræðu, og heyrði hana því ekki alla, en mér skildist, að hann hefði minnzt á brtt. mína á þskj. 721 og látið orð falla um það, að það væri óeðlilegt, að greiða þyrfti landeigendum gjald fyrir að veiða fugla í vísindalegum tilgangi. Ég bið afsökunar, ef þetta er misskilningur hjá mér, að hann hafi sagt þetta. En mér skildist, að hann hefði látið einhver orð falla í þessa átt, og skildi ég það á þá leið, að hann liti svo á, að þetta fælist í brtt. minni. Ég vildi aðeins leiðrétta það, ef hann hefur skilið það á þennan veg, og e.t.v. fleiri, að þetta væri í brtt. minni, því að þrátt fyrir það að brtt. mín á þskj. 721 væri samþ., þá stendur það þó óbreytt í 6. gr. frv., að þessi fuglaveiði sé heimil án þess, að endurgjald komi fyrir. Því er ekki breytt í minni brtt. Ég vildi aðeins leiðrétta þennan misskilning, ef um hann hefur verið að ræða.

Ég vil svo aðeins taka undir það, sem hv. þm. Borgf. sagði, að ákvæðið um það, að ekki megi hirða dauðan fugl úr netjum, er búið að vera mjög lengi í lögum og það er sett í lög fyrst og fremst vegna æðarfuglsins. Ef hv. þm. A-Húnv. væri kunnugur æðarvörpum, sem hann ef til vill er nú ekki, því að það mun vera frekar litið um æðarvörp í Húnavatnssýslu, þá mundi hann gera sér það ljóst, að það getur verið þörf á slíku ákvæði í sambandi við æðarvarp. Löggjafinn hefur lengi talið þörf á því að vernda æðarvörpin, enda verður nú að segja, að það er ólíkt viðkunnanlegra að hafa not af æðarfuglinum á þann hátt að nytja þær afurðir, sem hann gefur af sér árlega, heldur en að leggjast á stofninn. Ég held, að þetta ákvæði, sem hefur verið tekið í lög hér á landi, sé á nokkuð miklum rökum byggt og reynslu, þó að segja megi, að það sé skrýtið. Hv. þm. A-Húnv. er ekki sá eini, sem hnotið hefur um þetta ákvæði. En það er nú samt ekki að ástæðulausu komið inn í löggjöfina. Ég get þess vegna ekki greitt atkv. með brtt. hv. þm. A-Húnv.

Hv. þm. A-Sk. hefur af hálfu n. borið fram nokkrar brtt. við 8. gr. um friðunartíma nokkurra fuglategunda. Ég tel þær ekki til bóta, en mun að öðru leyti ekki ræða þær.