25.03.1954
Neðri deild: 68. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (890)
179. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Eftir þeim loforðum, sem hæstv. ríkisstj. gaf um stórfelldar skattalækkanir, sköpuðust miklar vonir hjá mörgum um það, að nú mundi létta á pyngjunni hjá öllum almenningi í landinu, þegar hið marglofaða skattafrv. kæmi. Ég skal játa það fyrir mitt leyti, að þegar ég sá þetta skattafrv., þá gat ég ekki komizt hjá því að minnast sögunnar um það, þegar fjöllin tóku léttasótt. Þá bjuggust allir við, að það mundi fæðast eitthvert stóreflis fjall, en það var mús sem fæddist, það fæddist mús. Og nú hafa fjöllin tekið léttasótt, þ.e.a.s. ríkisstj. hefur nú getað ungað út skattafrv., og það er einmitt mús, sem hefur fæðzt -enginn stórgripur. Eitt af því, sem glæddi mjög vonirnar um það, að niðurskurðarhnífnum á skattana yrði beitt af mikilli fimi og snilli og krafti, var það, að Sjálfstfl. setti einn af sínum sterkustu mönnum í milliþn. í skattamálum, hv. þm. Barð., en hann hafði margsinnis hér á Alþ. áður flutt frv. um það, að það ætti ekkert annað að gera við tekju- og eignarskattinn heldur en að leggja hann algerlega l00% niður, það ætti að hætta að innheimta hann. Menn vonuðust eftir því, að þessi hv. þm. Sjálfstfl., sem er mjög í áliti í sínum flokki og er nú forseti hv. Ed., mundi standa við þessa margyfirlýstu stefnu sína, sem hann hefur „presenterað“ hér í frv., og mun3i annaðhvort koma þessu í gegn, að tekjuskatturinn yrði skorinn niður við trog og ekkert af honum innheimt, ellegar þá að hann mundi kljúfa n. og standa þannig við sín stóru orð, en hvorugt hefur gerzt.
En þegar skattafrv. nú var komið, þá létu hv. stjórnarflokkar svo sem þeir væru geysilega hrifnir af afkvæminu. Það voru viðhafðar í Morgunblaðinu miklu stærri fyrirsagnir yfir þvera forsíðu blaðsins heldur en þegar vetnissprengjan sprakk núna þann 1. marz, og var það þó heimsviðburður, sem allur heimurinn veitti athygli. Nú var skattalækkunarfrv. stj. komið, og þá var stærsta fyrirsagnaletrið tekið fram hjá Morgunblaðinu. Og hvað hafði gerzt? Jú, frv. þessi, sem nú eru fram komin, eru árangur langrar og sleitulausrar baráttu Sjálfstfl. Ávöxturinn af margra ára stríði og striti og baráttu Sjálfstfl. var kominn þarna í þessu „mikla“ frv. Nú hefur hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) haldið þessu sama hér fram í þingsalnum. Þá hefur hæstv. fjmrh., sem hér gengur nú fram hjá, sagt: Þetta er ekkert nema mont. Þetta er ekkert ykkur að þakka, þessi stóru og miklu og efnisríku skattalækkunarfrv. Þau eru alls ekkert að þakka hv. 5. þm. Reykv. og Sjálfstfl. að mjög litlu leyti. — En þá kemur annað sannleiksvitni og hefur líka ráð yfir enn þá stærra fyrirsagnaletri, og það er málgagn fjmrh. sjálfs, það er Tíminn, og hann hefur að miklu leyti sömu söguna að segja, að hér hafi gerzt mikið undur, það hafi orðið geysilega stór viðburður í íslenzku stjórnmálalífi, skattalækkanirnar nemi, að því er gildi persónuskattana, hvorki meira né minna en 29%, allt að þriðjungi, og skattgreiðslur fiskimanna lækki stórkostlega og fiskimenn fái frádrátt vegna hlífðarfata, sparifé sé undanþegið skatti og útsvari og félagaskattur lækki um 20%. Svo finnst hæstv. fjmrh. eða málgagni hans ástæða til að spyrja: Hvernig var hægt að gera þetta allt saman? Hvernig gátu þessi ósköp skeð? Svarið er á reiðum höndum, bæði í fyrirsögn og í meginmáli. Þessi skattalækkun er möguleg aðeins vegna góðrar fjármálastj. síðustu ár. En það var ekki nógu skýrt, það komst ekki fyrir í fyrirsögninni, og þess vegna er þessi opinberun á, hvernig þetta var mögulegt, sögð skýrar í meginmálsletrinu. Og þar stendur: „Sú skattalækkun, sem nú er gert ráð fyrir, er að sjálfsögðu aðeins möguleg vegna góðrar fjármálastj. ríkisins síðustu árin af hendi Eysteins Jónssonar fjmrh.“ Þá erum við búnir að fá að vita það, hvernig undrið hafði gerzt. Ég tek auðvitað ekkert mark á því, þó að hv. 5. þm. Reykv. hafi verið að malda í móinn við þessu og segja, að þetta væri alls ekki Eysteini Jónssyni að þakka, heldur væri það sér að þakka. Ég trúi málgagni fjármálaráðherrans í þessu, að þessi undur séu fjmrh. að þakka að öllu leyti og hans góðu fjármálastjórn.
En þá er komið að hinu: Er það, sem þetta skattalækkunarfrv. flytur okkur, flytur þjóðinni, eins stórkostlegt og ætla mætti, þegar okkur er sagt frá, að þetta sé ávöxtur og árangur af langri og sleitulausri margra ára baráttu stærsta stjórnmálaflokksins í landinu og að það sé líka árangur af snilli í fjármálastjórn Eysteins Jónssonar? Því miður held ég, að það sé nú það rétta, sem komið hefur hér fram í umr. í dag, að það eru engin stórundur, sem hafa gerzt. Það eru engar stórbreytingar á grundvelli skattakerfisins á Íslandi, sem nú blasa við, og frv. hv. þm. Barð. um að leggja tekjuskattinn niður hafa ekki orðið að veruleika. Það hefur ekki verið staðið við þau orð. Sú barátta hefur ekki borið sýnilegan árangur í þessu frv. Sannleikurinn er sá, að í staðinn fyrir að lofað var heildarendurskoðun á öllu skattakerfi ríkisins, bæði að því er snertir persónuskatta og félagaskatta og skatta til ríkissjóðs og til sveitarfélaga, hefur ekki verið staðið við neitt af þessum loforðum nema það að „krukka“ svolitið í persónuskattana. Það er búið að gera.
Þegar Hæstv. fjmrh. lagði frv. fyrir og hélt sína framsöguræðu, þá tóku menn eftir því, að hann nefndi ekki nein ákveðin dæmi um það, hvernig útsvör manna lækkuðu um stórar upphæðir, en það er ég alveg viss um að hæstv. ráðh. hefði gert, ef hann hefði getað fundið það sjálfur út úr frv., að við skulum segja hærri meðaltekjur almennings í landinu yrðu nú losaðar undan stórum skattgreiðslum. Nei, hann tók dæmi um, að skattar lækkuðu um 29 og upp í 40%. En hvaða upphæðir var hann þá að fjalla um? Hann var að tala um það, að 39 kr. skattaupphæð, sem var samkv. gömlu skattalöggjöfinni, hefði lækkað um ein 40 eða 50%, hún hefði lækkað allt að því um helming. Ég hygg það hafi verið séra Guðmundur Guðmundsson frá Gufudal, sem sagði, að það væri fyrir þá menn, sem kynnu að fara með tölur, allra auðveldast að ljúga með tölum. Og það hefur hæstv. fjmrh. sýnt að hann kann, einmitt með því að reyna að skýra fyrir áheyrendum sínum þessar gífurlegu skattalækkanir eingöngu með prósenttölum, háum prósenttölum af þýðingarlausum lágum raunverulegum skattaupphæðum. (Fjmrh.: Hafa þá skattarnir verið lágir eftir allt saman?) Það hafa vissulega verið til lágar skattaupphæðir af lágtekjum manna, — að krónutölu hafa verið lágar skattaupphæðir til, og það voru einmitt þessar lægstu skattaupphæðir að krónutölu, sem hæstv. ráðh. var að tala um í háum prósenttölum. Þegar það var 0.1 % lagt á upphæð innan við 4 þús. kr., þá varð náttúrlega skattaupphæðin lág að krónutölu. En það var hægt að finna háa prósenttölu af þeirri tölu, og það var sannleikurinn, sem við fengum að vita í ræðu hæstv. ráðh.
Það hefur ekki verið dregin dul á það af þeim, sem hér hafa talað af hendi stjórnarandstöðunnar, að það er ýmislegt smávegis til bóta með þessa frv. Það er t.d. til bóta, að einn skattur kemur í staðinn fyrir tekjuskatt, tekjuskattsviðauka og stríðsgróðaskatt. Það er hreinlegra. Persónufrádrátturinn hækkar úr 4 þús. kr. rúmum í 6500 kr. Það er smálagfæring. En það er vitanlega neðan við allt opinbert siðgæði í skattamálum að ætla sér að fara að taka í ríkissjóð skatthluta af 6500 kr. tekjum. Þegar við vorum að reyna að leysa verkfallið mikla í desember í fyrrahaust, mættum við þó í samninganefndinni þeirri sanngirni, að sáttanefnd ríkisins, skipuð hinum mætustu mönnum, og sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjartarson, niðurjöfnunarnefndin í Reykjavík, bæjarstjórn Reykjavíkur og hæstv. ríkisstj. Íslands þáverandi féllust á, að það væri ekki forsvaranlegt að innheimta útsvar af lægri tekjum hjá einstaklingi heldur en 15 þús. kr. Og nú segi ég: Ef þessir mætu menn hafa haft rétt fyrir sér, að 15 þús. kr. tekjur núna megi ekki við því að skerðast af skattgreiðslu til sveitarfélagsins, sem maðurinn býr í, er það þá frekar forsvaranlegt að skerða slíka upphæð, 15 þús. kr., með skattgreiðslu til ríkissjóðs? Ég held, að þar sem það er viðurkennt af hinum ábyrgustu aðilum, að 15 þús. kr. tekjuupphæð megi ekki skerða með útsvarsálagningu í bæjarsjóð Reykjavíkur eða í sjóð sveitarfélags, þá sé það jafnfjarstætt að skerða slíka upphæð með skattgreiðslum í ríkissjóðinn. Ríkissjóðurinn er ekki meira þurfandi en sveitarsjóðirnir, og engum skattþegni stendur nær að sinna skattgreiðslu til annarra en síns eigin sveitarfélags. rg mundi því vilja slá því föstu, að það hefði verið viðurkennd stefna hæstv. ríkisstj., að 15 þús. kr. lágmarkstekjur einstaklings skyldu ekki skerðast af neinni skattgreiðslu, hvorki til sveitarsjóðs né til ríkissjóðs, og hefði vænzt þess, að persónufrádrátturinn hefði verið miðaður við 15 þús. kr. tekjuupphæð á einstakling, en það er 6500 kr. í þessu dæmalausa frv., sem hefur verið gumað svo mjög af af stjórnarflokkunum og báðir þykjast nú vilja endilega eiga.
Á sama hátt tel ég, að í samræmi við niðurstöðuna í fyrrahaust hefði ekki átt að koma til mála að hugsa sér að leggja tekjuskatt á lægri upphæð hjá 5 manna fjölskyldu heldur en a.m.k. 35 þús. kr. tekjur. Það er alveg vitað öllum mönnum, að það er ekki hægt fyrir 5 manna fjölskyldu að lifa fyrir lægri upphæð en 35 þús. kr., en það eru tekjur verkamanns nú. Og það nær ekki nokkurri átt að ætla sér að skerða það með beinum skattgreiðslum til ríkissjóðs og sveitarsjóðs. Það er nóg að vera búinn að skattleggja slíkar upphæðir með allri tollaálagningu á allar nauðsynjar þessa fólks, og þar með greiðir þetta fólk sannarlega skattgjald af ekki hærri tekjum í ríkissjóð.
Ég skal ekki heldur draga dul á það, að þeir frádráttarliðir, sem eru í frv., t.d. um, að það megi draga frá lífeyristryggingu og lífsábyrgðartryggingu, eru til bóta. En hversu mörgum kemur þetta til góða? Nokkrum tugum manna í þjóðfélaginu og öðrum ekki. Það er sagt, að undir þetta komi nokkrir hátekjumenn, þ.e.a.s. togaraskipstjórar og flugmenn. Það má vel vera, að þetta sé þeim til mikils hagræðis og að það sé sanngjarnt að koma til móts við þá vegna þess, hvernig störfum þeirra er háttað og að þeir geta sjaldan verið fram á efri ár í þessum störfum. Ég skal ekki deila á þetta, en þetta kemur sárafáum til góða, aðeins nokkrum tugum í þjóðfélaginu.
Þá er það nokkuð, sem er nú í skattafrv., að togarasjómenn megi draga frá fæði. En það eru fleiri, sem hefðu þurft að fá fæði dregið frá skatti, t.d. þeir verkamenn, sem verða að flýja sitt byggðarlag og sinn landshluta ár eftir ár til þess að sækja atvinnu með ærnum tilkostnaði í aðra landshluta eða byggðarlög og þurfa þar að lúta oft mjög óhagstæðum kjörum við fæðiskaup og húsnæðiskaup í sambandi við öflun vinnuteknanna. Ég hefði haldið, að það hefðu ekki dottið neinir gullhringar af hv. stjórnarflokkum, þó að þeir hefðu haft opin augu fyrir því, að þessi frádráttarheimild hefði þurft að vera víðtækari en hún er, en til bóta er hún, það skal játað.
Ef það hefði verið ætlunin að leysa í sambandi við skattafrv. það mikla vandamál, að sjómenn fást ekki á togaraflotann, þá hefði áreiðanlega þurft að gera þar annað en ákveða 300 kr. á mánuði til frádráttar fyrir háseta á togurum og 200 kr. á mánuði fyrir háseta á öðrum fiskiskipum, því að það er áreiðanlegt, að þetta, hvernig sem það hefur verið meint, leysir ekki þennan vanda. Ég tók eftir því, að hæstv. fjmrh. sagði í dag, að það væri mesti barnaskapur að halda, að það væri hægt að leysa þetta þjóðfélagsvandamál með breyt. á skattalögunum, og það má vel vera, að hann hafi rétt fyrir sér í því. En þessu hefur verið hampað. Og það er alveg áreiðanlegt, að sjómennirnir og útgerðarmennirnir, sem hafa verið að gera kröfur fyrir þeirra hönd til þess að reyna að tryggja togaraútgerðina að því er snertir að fá vinnukraft, hafa gert sér mjög miklar vonir um, að stjórnarflokkarnir kynnu að leysa þetta mál á einhvern sómasamlegan hátt, en hafa áreiðanlega orðið fyrir vonbrigðum.
Það hafa allir stjórnarandstæðingar, sem hafa talað hér í dag, viðurkennt, að skattfrelsi sparifjár sé ágætt, ef það leiði til aukins sparnaðar. Samkvæmt þessu frv. á að undanþiggja framtalsskyldu og eignarskatti innstæður í bönkum og sparisjóðum og löglegum innlánsdeildum félaga eftir vissum reglum. Það má vel vera, að þetta glæði eitthvað sparifjársöfnun, en þó er nú eignarskattur af sparifé ekki hár, og það munu ekki vera stórfúlgur hjá almenningi, sem sleppa við skattlagningu, þá að vaxtatekjurnar af sparifé verði líka skattfrjálsar, ekki skattlagðar sem tekjur. En víst er þetta til bóta, og sérstaklega skal játað, að þetta tekur sig vel út með stóru letri á hvitum pappír, það er kannske höfuðkosturinn við það, og það hefur líka sézt á báðum forsíðum stjórnarblaðanna.
Hér hefur verið játað allt, sem hægt er að viðurkenna til kosta við þetta frv. En það er allt smælki, það er ekkert stórkostlegt, engar stórar skattalækkanir, sem þetta frv. færir öllum meginþorra íslenzku þjóðarinnar. Líklegast eru það stærstu skattalækkanirnar, sem er fyrirheitið til handa félögum, hlutafélögum og öðrum félögum, að það skuli verða reiknaður út á þau skatturinn eftir sömu reglum og gilda í núverandi skattalöggjöf, en með 20% afslætti.
Það er líka komið svo, að það hafa ekki eingöngu verið stjórnarandstæðingar, sem hafa látið í ljós, að þetta skattalækkunarfrv. væri ekki nein endanleg og viðunandi lausn á málinn. Ég man ekki betur en að hv. 3. þm. Reykv. (BÓ) stæði hér í dag og segði, að þetta væri gersamlega óviðunandi og ófullnægjandi, ef ekki kæmu frekari aðgerðir síðar. Stjórnarflokkarnir virðast nú ekki vera allir jafnhrifnir niður í tær yfir þeim ósköpum, sem hér hafi gerzt, og það er alveg áreiðanlegt, að um það leyti, sem menn verða búnir að fá skattseðilinn sinn í ár og búnir að greiða skattinn í fyrsta sinn eftir hinni nýju löggjöf, þá verða stóru risafyrirsagnirnar í Tímanum og Morgunblaðinu búnar að verða sér nokkuð rækilega til skammar og menn búnir að horfast í augu við sín eigin vonbrigði. Loforðin, sem hafa verið gefin, verða þá búin að standa fyrir dómi raunveruleikans, og menn búnir að sjá, að það hefur ekki verið létt af þeim neinu stórkostlega skattafargi með þessari nýju löggjöf.
Hæstv. fjmrh. og hv. 1. landsk. þm. ræddust við í dag um það, hvort nú væri gengið nær tekjum verkamanna með skattaálagningu en gert hefði verið fyrir 20 árum. Þá var upplýst, að tekjur verkamanna hefðu verið 3500 kr., nú væru tekjur Dagsbrúnarverkamanns 34 þús. kr., tæplega tifaldar. Hæstv. ráðh. vildi halda, að það væri farið betur með verkamennina núna en þá, en þessu er ekki þannig farið. Það sannaðist með tölum, að það væri gengið nú allt að því fimmfalt nær verkamanninum í skattlagningu heldur en fyrir 20 árum, eftir að búið er að taka tillit til þeirra breyt., sem hér liggja fyrir. En hæstv. ráðh. sagði, að það væri ólíkt, hvað lífskjör verkamanna væru nú betri en þau voru þá, og því skal ég ekki neita, þau eru betri. En það eru betri lífskjör hjá allri íslenzku þjóðinni nú en var fyrir 20 árum. Það verður hins vegar að segjast, að það er mjög vafasamt, að hlutfallið hafi neitt batnað verkamannastéttinni í vil. Fyrir því hafa þeir séð, sem hafa staðið í baráttunni sýknt og heilagt á móti verkalýðssamtökunum í landinu.
Það er talið, að þær skattalækkanir, sem hið nýja skattalækkunarfrv. feli í sér, geti ekki numið meiri lækkun en 12–15 millj. kr., og ég hygg, að það sé hátt reiknað, ég efa, að raunveruleikinn staðfesti það, að lækkunin í heild nái 12–15 millj. kr. Nú held ég, að það hefði verið miklu fróðlegra fyrir þm. að fá að heyra það af vörum hæstv. fjmrh., hversu margar millj. kr. komi sem lækkun á persónusköttum, t.d. á persónusköttum almennings með lægri tekjur en 40 þús. kr. Ég efa það ekki, að hv. mþn.-menn í skattamálum hafa flokkað þetta niður, þeir hafa áreiðanlega yfirlit yfir þetta, og ég er nokkuð vas um, að það verða ekki margar millj., sem þeir geta tíundað sem skattalækkun af persónusköttum almennings með lægri tekjur en 40 þús. kr. Skyldi það verða meira en 2–3 millj.? Það væri fróðlegt að heyra þetta í staðinn fyrir háu prósenttölurnar af lágu upphæðunum, því að þær gerðu ekkert annað en að blekkja og siður en svo að upplýsa neitt. Svo hefði ég viljað fá að vita frá hæstv. ráðh. líka, hve margar millj. kæmu í lækkun á hlutafélögin í landinu og önnur auðug fyrirtæki, og ég er viss um, að meginhluti lækkunarinnar kemur á þau og þar með á þá aðilana, sem sízt skyldi. Þetta hefði ég viljað fá í staðinn fyrir háu prósenttölurnar af lágu skattalækkununum. Ég þykist nú vita, að hæstv. ráðh. eigi eftir að tala í þessu máli, og ég legg áherzlu á það, að hann gangi ekki fram hjá þessu atriði, ef hann vill láta okkur að lokinni þessari umr. vita sem gerst um það, hverjir eigi að njóta hinna miklu ávaxta af þessu hálofaða skattalækkunarfrv., sem hér er nú til umr.