31.03.1954
Neðri deild: 74. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

179. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera örfáar athugasemdir við ræðu hv. þm. V-Húnv. (SkG), að svo miklu leyti sem í henni fólst svar við ræðu minni í dag.

Hv. þm. sagði, að það væri nokkurt ósamræmi hjá mér í því að telja beinn skattana of lítinn hluta ríkisteknanna, en vilja samt lækka þessa beinu skatta enn frekar en hæstv. ríkisstj. hefði gert till. um í sínu frv.

Sannleikurinn er sá, að ég hef fyrst og fremst fundið að því, að beinu skattarnir skuli vera jafnlítill hluti ríkisteknanna og þeir eru í raun og veru þrátt fyrir það, hvað skattstigarnir eru háir og beinu skattarnir þá um leið hvíla þungt á vissum stéttum, sérstaklega launastéttunum í hinum stærri kaupstöðum. Þetta er fyrst og fremst afleiðing af því, að skattakerfið sjálft er óheilbrigt, og þess vegna hef ég lagt megináherzlu á, að ráðstafanir í skattamálum ættu að beinast í þá átt að lækna þetta óheilbrigði skattakerfisins. Það, sem gera þarf, er fyrst og fremst að flytja skattbyrði beinu skattanna, eins og þeir eru núna, af herðum launþeganna í allríkum mæli og yfir á herðar atvinnurekstrar og gróðamanna. Ég tel þess vegna ekkert ósamræmi í því að gera till. um lækkun á þeim beinu sköttum, sem hvíla á herðum launamanna, því að ég tel hægt að ná þeirri lækkun aftur inn af tekjum atvinnurekstrar og ýmiss konar gróðastarfsemi, sem skattabyrðin hvílir nú of létt á. Hitt er svo annað mál, hversu háir beinu skattarnir yfirleitt eiga að vera í hlutfalli við heildarríkistekjurnar. Ég er á þeirri skoðun, að ef miðað er við heilbrigt tekjuskattskerfi, þá ætti hlutdeild beinu skattanna í ríkistekjunum að verða miklu hærri en hún er núna. En svo óheilbrigt, svo sjúkt getur tekjuskattskerfið verið, að beinu skattarnir séu ranglátari gagnvart lágtekjum og miðlungstekjum og launamönnum yfirleitt heldur en vissar tegundir óbeinna skatta. Skattakerfi okkar þjáist einmitt af slíkum sjúkdómi, og það er þess vegna, sem ekki er hægt að komast hjá því að bera fram till., sem verða til þess að lækka beinu skattana enn, vegna þess að þeir hvíla of þungt á launastéttunum.

Hins vegar er nokkurt ósamræmi hjá hv. þm. og fleiri forsvarsmönnum hæstv. ríkisstj. að býsnast sérstaklega yfir till. um lækkun á beinum sköttum einstaklinga, þegar þagað er algerlega um þau gífurlegu skattfríðindi, sem ýmiss konar atvinnurekstur, mikill gróðarekstur, nú nýtur, því að þau skattfríðindi eru sannarlega ekki lítil, sem atvinnurekstur nýtur vegna skattfrelsis varasjóðstillaga, fyrningarafskrifta og heimilda til skattfrjáls viðhalds á mörgum eignum, enda mun það vera svo um ýmsar atvinnugreinar, svo sem ég lét getið lítillega við 1. umr., að reglur gildandi skattalaga um þær greinar eru þannig, að það er varla hugsanlegt, að fyrirtæki í þeim græði svo stórkostlega, að þau geti lent í tekjuskatti að nokkru ráði. Meðan tekjuskattslöggjöfin er þannig að því er snertir ýmsan atvinnurekstur, ýmsan gróðarekstur, þá tel ég sjálfsagt að haga skattlagningu á launþega ekki þannig, að hún sé þeim til verulegrar byrði.

Ég tel ekki heldur hægt að býsnast sérlega yfir till. til lækkunar á tekjuskattgjaldi einstaklinga, þegar af hálfu hæstv. ríkisstj. eru lagðar fram nokkrar till., sem verða mundu til þess að ýta undir ýmiss konar brask, t.d. með fasteignir, sem meiningin er að geti orðið skattfrjálst, ef frv. nær fram að ganga algerlega óbreytt, og á ég þar við ákvæði í 5. gr. frv., svo sem ég vék lítillega að í dag.

Hv. þm. taldi, að ég hefði kveðið of fast að orði, þegar ég sagði, að undanþága frv. undan framtalsskyldu á sparifé mundi verða til þess að torvelda skatteftirlit verulega, því að skatteftirliti hefði ekki verið beitt þannig að nota breytingar á sparifé frá ári til árs sem mælikvarða á það, hvort framtölin væru rétt eða ekki. Það kann að vera, að hingað til hafi sparifé ekki mikið verið notað sem mælikvarði á slíkt, en ef það verður ekki lengur framtalsskylt, þá er hætt við því, að breytingar á sparifé verði notaðar sem afsökun eða sem skýring á ýmsum óeðlilegum breytingum, sem verða á framtöldum tekjum skattgreiðenda frá ári til árs og að skattanefndir muni þá oft og einatt ekki geta fundið þær skýringar, sem hnekkt geti staðhæfingu skattgreiðenda um það efni, að hin óeðlilegu framtöl eigi rót sína að rekja til breytinga á óframtalsskyldu sparifé. Ég vil geta þess, að ýmsir sérfróðir menn um skattheimtu, bæði hér í Reykjavík og annars staðar, hafa sagt við mig, að þeir teldu þetta ákvæði vera stórt spor aftur á bak og mundi torvelda skatteftirlit talsvert frá því, sem nú er.

Hv. þm. taldi, að ég hefði sagt í ummælum mínum um útsvarsfrv., að með því væri afnuminn réttur skattanefnda til þess að leggja á eftir efnum og ástæðum. Þetta vildi ég a.m.k. ekki sagt hafa, heldur það eitt, að með þessum ákvæðum væri lagaréttur þeirra skertur til þess að leggja á eftir efnum og ástæðum. Það liggur alveg í augum uppi, að ef leggja á á eftir auglýstum skattstiga og gera hverjum einstökum skattgreiðanda grein fyrir því, hvernig útsvar hans hefur verið á lagt, þá er svigrúmið til þess að leggja á eftir efnum og ástæðum miklu minna en áður var. Sérfróður maður um útsvarsálagningu ræddi þessi mál einmitt við mig nú í matartímanum áðan og sagði mér ýmis dæmi um það, hversu framtölum manna væri ábótavant og jafnframt hversu torvelt gæti oft og einatt verið að staðhæfa, hvað þá sanna, að um galla á framtalinu væri að ræða. Ef niðurjöfnunarnefndarmenn væru nokkurn veginn á einu máli um það, að framtal væri augljóslega gallað, þótt sönnunum yrði ekki við komið, þá væri lagt á samkvæmt efnum og ástæðum, að því er þeir teldu, og í mörgum tilfellum gæti það leitt til þess, að útsvar yrði margfalt réttlátara en það yrði, ef þeir væru nauðbeygðir til þess að taka hið augljóslega ranga skattaframtal til greina, án þess að geta gert ráðstafanir í því sambandi. Hann vildi fullyrða, að ef þetta frv. næði fram að ganga, þá mundi það hafa í för með sér, að álagt útsvar hér í Reykjavík mundi minnka um milljónir. En nú er útsvarsupphæðin hér fastákveðin, verkefni niðurjöfnunarnefndar er það að jafna niður ákveðinni upphæð. Ef þessi skerðing á beitingu reglunnar um að leggja á eftir efnum og ástæðum hefur í för með sér lækkun á árlegum útsvörum á vissa gjaldendur um milljónir, þá er enginn annar úrkostur en að hækka útsvör á öðrum gjaldendum, þ.e. þeim, sem telja samvizkusamlega fram. um sömu tölu. Ég fékk það alveg staðfest, sem ég sagði í dag, að svo gæti farið, að sú allt að 10 millj. kr. lækkun á landinu öllu á tekjuskattgreiðslum til ríkisins, sem þetta frv. ríkisstj. gerir ráð fyrir, mundi hverfa aftur bjá launþegum, vegna þess að ýmsir aðilar fengju aukið tækifæri til þess að skjóta tekjum undan skatti vegna þess arna. Ég hef styrkzt í trú minni á það, að ákvæði þessa útsvarsfrv. séu mjög vafasöm. Ég viðurkenni það hins vegar fúslega, að sú regla að heimila 5 manna niðurjöfnunarnefnd hvar sem er að leggja á algerlega frjálst sé vissulega vafasöm. Ef við byggjum við eðlilegt ástand í þessum efnum, þá væri það vissulega langæskilegast og langsómasamlegast, að um útsvarsálagningu giltu algerlega fastir skattstigar, eins og um ríkisskattlagninguna. En við verðum að hafa í huga, að í þessum efnum er hér alla ekki eðlilegt ástand. Skattaframtölum er hér áreiðanlega meira ábótavant en í nágrannalöndunum. Hv. þm. V-Húnv. sagði, að heimild til að leggja á eftir efnum og ástæðum þekktist hvergi á byggðu bóli nema hér á Íslandi. Ég vil þessu til svars segja, að ég efast um, að önnur eins skattaframtöl og niðurjöfnunarnefndum hér er boðið upp á þekkist annars staðar á byggðu bóli. Í öðrum löndum mundu ýmsir braskarar og skattsvikarar vera undir lás og slá, sem hér leika lausum hala og eru jafnvel taldir merkismenn. Það er þetta óeðlilega ástand í skattamálum okkar, sem gerir það að verkum, að nauðsynlegt er að halda að vissu leyti óeðlilegri reglu. Gangur málsins á að vera sá, að fyrst sé skapað heilbrigt siðferði í skattamálum að því er varðar framtöl manna og stórhert eftirlitið með skattaframtölunum. Þegar þessi tvöfalda viðleitni hefur borið réttan árangur, þá er kominn tími til þess að gera ráðstafanir eins og þær að binda útsvarsálagningu við fasta skattstiga eins og álagningu tekjuskatts.

Þá ræddi hv. þm. nokkuð um sérsköttunarregluna, sem ég legg til að verði tekin upp hér. Ef ég man rétt, þá beindist gagnrýni hv. þm. á frv. mitt um þetta efni á síðasta þingi fyrst og fremst að því, að sérsköttunarreglan, eins og ég lagði þá til að hún yrði framkvæmd, mundi valda tiltölulega miklu meiri lækkun á skattgreiðslu hjóna með háar tekjur heldur en hjóna með lágar tekjur. Nú hef ég í till. mínum ráðið bót á þessum vankanti till. frá því í fyrra með því að umreikna skattstigann, sem greiða ætti skattinn eftir, þannig að 20 þús. kr. tekjuhluti konunnar veldur ekki mismunandi skattalækkun hjá hjónunum eftir tekjuhæðinni. Þessi gagnrýni á því ekki lengur rétt á sér. Hv. þm. sagði, að af þessu mundi leiða mikla fjölgun á framteljendum. Það er rétt. Það mundi verða mikil fjölgun á þeim, sem skattur er á lagður, en hins vegar ekki á skattgreiðendum, eins og ég hef nú lagt til að þessu verði hagað, því að það er skýrt tekið fram í till., að einungis skuli reikna skattinn á hvort hjóna um sig, en hins vegar skuli hann skráður á sama skattseðilinn og innheimtur hjá því hjónanna, sem hefur hærri tekjur, þannig að skattgreiðendunum mundi ekki fjölga, en að því fyrst og fremst mundi verða aukinn kostnaður. Hitt er smávægilegt, hvernig skatturinn er reiknaður út. Með þeim vélakosti, sem skattanefndir og niðurjöfnunarnefndir nú hafa yfir að ráða, er það ekki nema andartaksverk að reikna út skattinn á hvorn aðilann um sig.

Hv. þm. gat þess, að í Svíþjóð hefði starfað skattamálanefnd, sem hefði athugað samsköttunarregluna gaumgæfilega og komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki bæri að taka hana upp þar í landi. Þetta var mér kunnugt um og þekki álit þeirrar nefndar um þetta efni og þau rök, sem þar eru tilgreind bæði með og móti þessari reglu. En dæmið, sem hann nefndi, var nákvæmlega sama dæmið sem ég tók í dag einmitt til sönnunar því, að samsköttunarreglan væri eðlileg. Dæmið var um mann, sem hefði ákveðnar tekjur og aflaði sér síðan viðbótartekna með viðbótarvinnu og lenti þar af leiðandi í stighækkun skattstigans. Þess vegna taldi hann rétt að láta heimilið lenda í alveg sams konar stighækkun, þótt konan aflaði sér umframteknanna. Hér er um það að ræða að líta á bæði hjónin sem félagsbú og láta það einu gilda, hvort af]ar teknanna. Í báðum tilfellunum eigi stighækkun skattsins að vera sú sama. Þetta eru rökin, sem venjulega eru fram færð gegn því, að samsköttunarreglan sé eðlileg, og um þessi rök gat ég í ræðu minni í dag. En mín gagnrök í málinu eru þessi í sem allra fæstum orðum sagt: Ég tel heimili eða hjón ekki eiga að lenda í stighækkun skattstigans vegna þess í fyrsta lagi, að þau gætu komizt hjá því að lenda í henni með því að breyta þjóðfélagslegri aðstöðu, þ.e. með því að vera ekki gift. Og svo í öðru lagi, að ef þau lenda í stighækkun skattstigans vegna viðbótartekna konunnar, þá greiðir hún hærri skatt en annar einstaklingur með nákvæmlega sömu tekjur, en slíkt er aldrei hægt að segja um eiginmanninn, þótt hann lendi í hækkun skattstigans vegna viðbótarvinnu sinnar. Það er enginn einstaklingur til í þjóðfélaginu, sem greiðir annan skatt af tekjum hans heldur en hann sjálfur. Þótt að vissu leyti megi til sanns vegar færa, að fyrir bæði hjónin skipti ekki máli, frá hvoru þeirra tekjuaukinn kemur, þá er ekki hægt að ganga fram hjá hinu, að sé tekjum konunnar bætt við tekjur mannsins, þá skapast misrétti milli tveggja skattborgara — milli tveggja þjóðfélagsþegna, sem aldrei er um að ræða, ef maðurinn vinnur sér inn viðbótartekjurnar, og þetta er mergurinn málsins frá mínu sjónarmiði. Spurningin er hér blátt áfram um það, á hvort atriðið menn vilji leggja meiri áherzlu, það, að af hjónabandinu leiði félagsbú í þessum skilningi, eða hitt, að láta löggjöfina tryggja, að aldrei sé greiddur misjafn skattur af sömu tekjum hjá tveimur þjóðfélagsþegnum — hjá tveim skattborgurum. Hér verða menn að velja á milli, hvort sjónarmiðið menn telja þyngra á metaskálunum. Ég hef fyrir löngu gert það upp við mig, að ég tel síðara sjónarmiðið þyngra á metaskálunum, að tryggja það, að aldrei sé greiddur ólíkur skattur af sömu tekjum fyrir sömu vinnu. Ég skil vel þá röksemdafærslu, sem liggur hinni afstöðunni til grundvallar, þótt ég treysti mér ekki til þess að taka undir hana. Ég legg minna upp úr henni en þeim staðreyndum, sem ég var að lýsa áðan. Lengra mál og rækilegri rökstuðning mætti fyrir þessu flytja, þótt ég muni ekki gera það að þessu sinni — ekki í þessum umr.

Hv. þm. viðurkenndi, að það hefði verið rétt, sem ég fór með í dag varðandi áhrif persónufrádráttarins, en sagði, að tillit til áhrifa persónufrádráttarins sé tekið við samningu skattstigans. Það er varla hægt að taka fullkomlega tillit til áhrifa persónufrádráttar í því formi, sem hann er í gildandi lögum, við samningu skattstigans. Það er alls ekki hægt, ef einn skattstigi gildir fyrir einstaklinga, hjón og atvinnurekstur. Það er hægt að taka nokkurt tillit til þessa, ef tveir skattstígar eru látnir gilda, eins og í frv. hæstv. ríkisstj., skattstigi fyrir einstaklinga og hjón, en það er ekki hægt að taka fullt tillit til hans í stighækkuninni, ef sami skattstigi er látinn gilda fyrir ómagalaus hjón og fyrir hjón með börn. Strangt tekið ætti þá að vera sérstakur skattstigi fyrir einstakling, ómagalaus hjón, hjón með eitt barn, hjón með tvö börn og áfram, ef fullkomið tillit ætti að vera hægt að taka til fasts barnafrádráttar í stighækkun skattstigans, og svo auðvitað enn sérstakur stigi fyrir atvinnurekstur. En það er engin skynsemi í því að fjölga skattstigum upp á þennan máta, og þess vegna tel ég skynsamlegra að hafa þann hátt á, sem ég hef lagt til í till. mínum, að persónufrádráttur á einstaklinga sé beinlínis hafður þannig, að skattstiginn sé byrjaður á hærra bili en venjan er að gera.

Hv. þm. sagði, að ýmsir vankantar kynnu að vera á till. um skattfrjáls framlög í byggingarsjóði einstaklinga. Hann nefndi sem dæmi, að ákvæði vantaði um eignahámark, til þess að þessara skattfríðinda væri hægt að njóta. Þetta var atriði, sem ég gleymdi ekki, heldur fannst að athuguðu máli að óþarfi mundi vera að hafa í frv., þar eð gera mætti ráð fyrir því, að þeir menn, sem hefðu háar tekjur eða ættu miklar eignir, ættu þegar íbúð, a.m.k. stærri íbúð en það lágmark, sem hér er um að ræða. 90 m2 íbúðarstærð er það lítil, að til fullkominna undantekninga mundi heyra, ef efnamaður eða mjög tekjuhár maður byggi í slíkri íbúð. Hitt er annað mál, að ég hef ekkert á móti því að setja slíkt varúðarákvæði inn í frv., ef það gæti orðið til þess að vinna fylgi jafnáhrifamikils manns í skattamálum og hv. þm. V-Húnv. er. Hitt var rétt hjá hv. þm. V-Húnv., að í till. vantar í raun og veru ákvæði til þess að tryggja, að menn geti ekki selt íbúðir sínar og orðið þannig ekki íbúðareigendur til þess eins að njóta þessara skatthlunninda. Ég hugsaði till. þannig, að þetta gilti um þá fjölskyldumenn, sem ekki ættu íbúð eða ekki stærri íbúð en 90 m2, þegar ákvæðin tækju gildi. En það er rétt hjá hv. þm., að um þetta er ástæða til að setja nokkru gleggri ákvæði, og það er ákaflega vandalítið. Þetta má lagfæra með einni setningu. Það mundi vera til bóta.

Þá ræddi hv. þm. að síðustu nokkuð um innheimtu tekjuskattsins og taldi, að það mundi henta okkur illa að taka upp það kerfi, sem ég og hv. 8. landsk. þm. höfum lagt til að tekið yrði hér upp, þ.e., að skattur yrði greiddur jafnóðum og teknanna yrði aflað, og vísaði í því sambandi til reynslunnar í Svíþjóð. Um reynsluna í Svíþjóð er það að segja, að það er rétt, að fyrst eftir að hið nýja skattheimtukerfi var tekið upp þar, þá gaf það ekki góða raun. Það reyndust nokkrir erfiðleikar á að framkvæma hugmyndina eins og Svíar höfðu hugsað sér að hún yrði framkvæmd. En þeirra ákvæði um þetta voru mjög viðtæk og talsvert viðtækari en mundi verða afleiðing af samþykkt t.d. minnar till. um þetta efni. En hins vegar herma nýjustu fregnir af þessu máli í Svíþjóð, að Svíum hafi tekizt með því að breyta framkvæmdinni að ráða bót á mjög mörgum ef ekki flestum þeirra agnúa, sem fyrst komu í ljós, og ætti það einmitt að vera okkur Íslendingum og öðrum, sem þetta kerfi kynnu að vilja taka upp, til mikilla hagsbóta, að ein nágrannaþjóð okkar hefur öðlazt mikla reynslu á þessu sviði og tekizt að yfirvinna ýmsa framkvæmdarörðugleika, sem óneitanlega komu í ljós í fyrstu, svo að það ætti að vera auðveldara fyrir okkur nú að taka upp slíkt kerfi heldur en hefði verið fyrir tveimur eða þremur árum, einmitt vegna þess, að við ættum að geta hagnýtt okkur reynslu Svía í þessum efnum. Víst er um það, að Svíar hafa ekki látið byrjunarerfiðleika í þessu efni fæla sig frá því að halda fast við kerfið. Þeir munu vera staðráðnir í að halda kerfinu áfram, og að því er mér hefur skilizt í grein, sem ég las fyrir ekki alllöngu um þetta, telja þeir þá byrjunarerfiðleika, sem fram komu, hafa verið yfirstigna að mestu.