31.03.1954
Neðri deild: 74. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (903)

179. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm. ræddi enn um ákvæði frv. um sparifé og undanþágu frá framtalsskyldu að því er það snertir og var enn að tala um það, að þetta mundi torvelda ákaflega allt eftirlit með skattaframtölum. Ég tel enn sem fyrr, að hann geri allt of mikið úr þessu atriði. Ég vil benda á það, að þetta snertir ekki félög, ekki eitt einasta félag; þetta snertir ekki heldur neinn einstakling, sem hefur nokkurn meiri háttar atvinnurekstur, vegna þess að öll félög og allir einstaklingar, sem hafa nokkurn atvinnurekstur, sem nokkuð kveður að, eru bókhaldsskyldir, og samkvæmt frv. ber öllum bókhaldsskyldum aðilum að færa innstæður sínar í bönkum og sparisjóðum eftir sem áður á sína ársreikninga og í sínar bækur, og þess vegna opnast engir nýir möguleikar fyrir þau fyrirtæki, sem bókhaldsskyld eru, til þess að koma tekjum undan sköttum, þó að þetta ákvæði verði í lög leitt. Þá verða aðeins eftir launamenn og smærri atvinnurekendur. Um launafólkið er það að segja, að það er athugað eftir allt öðrum leiðum en með því að rýna í sparisjóðsbækur, hvað tekjur þess eru miklar yfir árið. Um það fást nokkurn veginn fullkomnar upplýsingar, og mun verða svo einnig eftirleiðis. Þá eru aðeins hinir smærri atvinnurekendur, sem ekki eru bókhaldsskyldir, og ég hygg, að það séu möguleikar til yfirleitt að komast að hinu sanna nokkurn veginn um tekjur þeirra, ef vel er eftir gengið, þrátt fyrir það að þessi ákvæði verði gerð að lögum, og ekki verði yfirleitt farið að leita að tekjum þeirra ár hvert í sparisjóðsbók. Ég hef líka áður bent á þá heimild, sem er til að afla upplýsinga um innstæður, ef ósamræmi þykir vera í framtölum manna.

Þá er það um till. hv. 1. landsk. um byggingarsjóði. Hann viðurkenndi, að eins og þetta er orðað nú, þá gætu menn haft hagnað af því að selja íbúð, sem þeir ættu, og öðlast með því réttindi til þess að stofna byggingarsjóð með þessum hætti, með því að draga frá fjórða hluta af sínum tekjum, allt að 20 þús. kr. á ári, en sagðist nú hafa hugsað sér, að þetta ætti aðeins að gilda um þá, sem ættu ekki stærri íbúð, þegar lögin gengu í gildi. Þetta kom nú ekki fram í hans till., eins og hún er orðuð.

Þá er það hv. 8. landsk. þm. Hann sagði, að ég hefði haldið því fram, að ríkissjóður hefði verulegar skattatekjur af tekjum, sem væru undir því marki, sem þeir vilja gera skattfrjálsar. Þetta er alveg rétt, vegna þess að þeir skattgreiðendur eru svo margir. Hitt er annað mál, að það er svo lítill skattur á hverjum einum af þessum lágu tekjum, að hann munar ákaflega lítið um það, — en safnast, þegar saman kemur, og þetta gerir verulega upphæð að sjálfsögðu, þegar það kemur allt saman. Ég held, að ég muni það rétt t.d., að samkv. frv., sem hér liggur fyrir, þá borgar einhleypur maður, sem hefur 15 þús. kr. í tekjur, ekki nema eitthvað á annað hundrað krónur eða um það bil 1% af tekjunum, sem er náttúrlega hverfandi lítið, og hann munar lítið um það, þó að þetta geri nokkuð, þegar margir eru, sem borga þessa fjárhæð hver um sig.

Hv. þm. sagði, að ég hefði snúið út úr orðum hans, en þetta er alls ekki rétt. Hann sagði í sinni fyrri ræðu, að þessi hækkun á skattstiganum, eftir að kemur yfir 130 þús. kr., um aðeins einn af hundraði, mundi nægja til að vega á móti þeirri lækkun, sem stafar af niðurfellingu neðan af skattstiganum. Þessu hélt hann fram í sinni fyrri ræðu, en ég sýndi fram á, að þetta er fjarri öllum sanni.

Þá ræddi hv. þm. nokkuð um till. þeirra félaga um það, að skattur félaga, reiknaður samkvæmt núgildandi ákvæðum laga, skuli aðeins lækka um 10% í ár, en ekki 20%, og um þetta hefur hv. 1. landsk. þm. einnig nokkuð talað í sínum ræðum. Ég vil í þessu sambandi benda á það, að félög borga nú skatt og hafa gert eftir skattstiga, sem var lögleiddur árið 1941 eða 1942 og átti þá að gilda fyrir alla, bæði persónulega gjaldendur og einnig fyrir félög. En sá munur var á gerður, að þá um leið var leidd í lög svo kölluð umreikningsregla, en hún náði aðeins til einstaklinga, en ekki til félaga, og sú verðgildisröskun, sem orðið hefur á þessum árum, sem síðan eru liðin. veldur því, að skattar félaga eru orðnir og hafa verið um nokkur ár alveg óeðlilega háir, miklu hærri en sanngjarnt er, borið saman við einstaklinga, sem hafa borgað eftir sama skattstiga, en fengið tekjurnar lækkaðar, áður en skattur var á lagður samkvæmt umreikningsreglunni. Það er því áreiðanlegt, að það er ósanngjarnt að lækka þennan afslátt á skatti félaganna nú í bili, meðan ekki er búið að setja nýjar reglur um skattgreiðslur þeirra framvegis. Það er vissa fyrir því, að það er ósanngjarnt að minnka þennan afslátt frá því, sem lagt er til í frv., samanborið við það, sem gert er til lækkunar á sköttum persónulegra gjaldenda.

Um það atriði að skattleggja tekjurnar, um leið og þær verða til, hef ég áður rætt. Ég tel, eins og ég sagði þá, að það eigi ekki við hér hjá okkur, það gæti aldrei gilt nema um takmarkaðan hóp gjaldenda, skatta hjá hinum yrði að leggja á eftir árið eftir sömu reglum og áður og við værum þannig með tvöfalt skattakerfi, sem mundi gera framkvæmdina miklu fyrirhafnarsamari, flóknari og dýrari en með því að láta sömu reglu gilda fyrir alla eins og nú er. En ég hef áður bent á, að það væri ef til vill skynsamlegt að nota heimild laganna til þess að innheimta skatta, við skulum segja mánaðarlega, af kaupi þeirra gjaldenda, sem vinna fyrir föstum launum, sem ekki breytast neitt verulega frá ári til árs. Þá væri þar með tekin upp regla, sem gerði það að verkum, að þeir menn, sem hafa stöðugar tekjur, borguðu skatta af tekjunum nokkuð jafnóðum og þær falla til, en síðan mætti jafna eftir árið, ef um einhvern lítilfjörlegan mismun væri að ræða, þegar búið væri að reikna út þeirra heildarskatt.

Fleira held ég að sé ekki ástæða til fyrir mig að taka fram út af síðustu ræðum, sem hér hafa verið fluttar.