05.04.1954
Efri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (922)
179. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það eru fáein orð út af því, sem hv. Frsm. stjórnarandstöðuflokkanna hafa sagt um málið.
Þetta frv. gerir ráð fyrir, að skattar á persónulegum tekjum lækki um 29%. Frsm. stjórnarflokkanna koma hér samt og segja, að þetta sé ákaflega lítilfjörlegt mál, skattalækkunin sé allt of lítil og fólk muni ekkert um þetta. Talsmenn þessara flokka hafa þó á undanförnum árum haldið því fram, að tekjuskatturinn væri orðinn svo hár á launafólki, að hann væri alveg óbærilegur. Flokkar þessir hafa haft uppi þindarlausan áróður um þetta á undanförnum árum. Þeir hafa sagt, að tekjuskatturinn væri fyrst og fremst skattur á launafólk og hann væri orðinn óbærilega óréttlátur. Nú heyrum við það allt í einu á hinn bóginn, þegar á að lækka þessa skatta um nærfellt þriðjung, að fólk hafi ekkert munað nm þetta, það muni ekkert um lækkunina og þá auðvitað ekki heldur um skattinn sjálfan eins og hann var eða verður. Hvernig á að koma þessu heim og saman?
Satt að segja er ekki ástæða til að halda langar ræður út af svona málflutningi. En ég vil þó út af þessu nefna nokkur dæmi. Tekjuskattur er ekki hár á öllum tekjum. Á lægstu tekjum hefur hann verið lækkaður með sérstökum lögum, en nú er gengið lengra. Við skulum taka hjón með tvö börn á framfæri og 35 þús. kr. tekjur. Skattur þeirra lækkar úr 550 kr. niður í 320 kr., um 42%. Ef þau munar ekki nokkurn skapaðan hlut um þessar á þriðja hundrað kr., sem skatturinn lækkar, þá eru væntanlega ekki þessar 320 kr., sem eftir eru, skelfileg byrði. Það er a.m.k. ekki hægt að koma slíku heim og saman. Ef við tökum hjón t.d. með 45 þús. kr. tekjur og tvö börn, þá er lækkunin úr 1156 kr. og í 760 kr., eða 34%. Þó er lækkunin í frv. miklu meiri en þessar tölur sýna, því að þetta er aðeins sú lækkun, sem kemur af skattstiganum einum og persónufrádrætti. Ef víð tækjum t.d. dæmið þannig, að hér væri um að ræða fiskimann og hans konu, sem væru leigjendur, þá mundi skattalækkun eftir frv. vera miklu meiri en þessi, sem ég nefndi. Skatturinn mundi þá nær hverfa.
Á þessu sjáum við, hvað þessi málflutningur allur er mikil reginfjarstæða. Svo er sagt í sambandi við skattabreytingar á tekjum fiskimanna: Þetta hefur engin áhrif og getur ekki orðið til þess, að menn fáist frekar á togarana en áður. — En hver hefur sagt, að hægt væri að fá menn unnvörpum á togarana með því að breyta skattalögum? Ekki þeir, sem hafa kynnt sér málið. Tekjuskatturinn er ekki það hár á tekjum togaramanna, að það megi búast við því, að ein eða önnur breyting á honum hafi úrslítaþýðingu um það, hvort menn fara á togara eða ekki. Það mundi Ekki hafa neina úrslitaþýðingu í þessu sambandi, þótt skatturinn væri alveg felldur niður. Það er alveg óhætt að halda því atriði utan við þetta mál. Hitt er svo allt annað, að fiskimannafjölskyldu munar um þá skattalækkun, sem gert er ráð fyrir í frv., sumpart af almennum ákvæðum frv. og sumpart vegna þess, að fiskimenn fá sérstaka frádráttarliði, sem eru alls ekki hégómi, eins og hv. 4. þm. Reykv. vildi vera láta, heldur hafa verulega þýðingu. Ef við tökum dæmi af fiskimanni og þeim breytingum, sem hann á í vændum eftir frv., tökum t.d. 45 þús. kr. tekjur, sem mér er sagt að sé nærri meðaltekjum togaramanna, og tökum dæmi 1f kvæntum manni, sem hefur tvö börn á framfæri, þá lækkar skattur hans samkvæmt skattstiganum og vegna þessa fiskimannafrádráttar, sem er sérstakur, um 49% eða nálega 50%, eða nánar tiltekið um rúmar 500 kr. En ef þessi maður er þar að auki leigjandi og kemur til greina hjá honum fleira til frádráttar af hinum nýju hlunnindum í frv., þá lækkar skattur hans um meira en þetta. Hann verður nær skattlaus. Ef hann hefði þrjú börn á framfæri, þá mundi lækkunin verða enn meiri en að ofan greinir, því að lækkunin er þeim mun meiri tiltölulega sem fjölskyldan er stærri.
Það er því örugglega vist, að þetta frv, gerir ráð fyrir stórfelldri lækkun á sköttum fjölskyldumanna frá því, sem verið hefur. Hitt er svo annað mál, hvort mönnum finnst nú allt í einu, að þessir skattar hafi eftir allt saman verið svo lágir, að það muni ekkert um þetta. Það geta þó a.m.k. ekki þeir sagt, sem á undanförnum árum hafa aldrei átt nægilega sterk orð til að lýsa því, hvað skattarnir væru þungbærir, en þó óbærilegastir fyrir launafólkið, og launamenn yrðu að knýja fram endurskoðun skattalaganna. Slagorðið hefur verið, að tekjuskatturinn væri að mestu leyti skattur á launatekjur einar.
Finnist mönnum skattur hvers einstaks lækka litið í krónutölu, þá er það bara fyrir það, að tekjuskatturinn hefur ekki verið jafnhár fyrir og menn vildu vera láta. Í öðrum löndum þykja það tíðindi, þegar beinir skattar eru lækkaðir um 10–11%, hvað þá um 20–30%, eins og hér er gert ráð fyrir.
Stjórnarandstæðingar geta hins vegar huggað sig við það, að ef farið hefði verið ettir þeirra till., þá hefði aldrei nein skattalækkun getað komið til mála. Ef þeir eru eitthvað sérstaklega hnuggnir út af því, að hér sé ekki nógu langt gengið, þá geta þeir huggað sig við, að þeir og aðrir eru nú komnir í hreina skattaparadís hjá því, sem vera hlyti, ef eftir þeirra ráðum væri farið. Ég held, að það hefði kveðið við annan tón hjá hv. talsmönnum stjórnarandstæðinga, ef þeirra flokkar hefðu staðið að breytingu á skattalögum eins og þessari, sem hér er á ferð; og það má svo sem nærri geta, við hvern tón þá hefði kveðið, enda er það nú ekki nema mannlegt, að svo sé.