06.04.1954
Efri deild: 78. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (936)
179. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég þakka frsm. n. fyrir það. að hann ætlar að taka minar till. til athugunar, og tek þær að sjálfsögðu aftur til 3. umr.
Af því, sem hann sagði, er einungis eitt atriði, sem ég finn ástæðu til þess að dvelja við. Það var það, þegar ég var að segja. að menn þyrftu að finna það, sem ég kallaði réttlæti, sem er náttúrlega orð, sem er teygt á milli manna, einn skilur þetta við bað, og annar hitt. Það. sem é„ þar átti við og vildi láta koma fram, var. að menn fyndu, að jafnt gengi yfir. Nú hefur alltaf verið í skattalögum frádráttur til öflunar tekna. Það hefur alltaf verið í skattalögum frádráttur til manna, sem ha~a farið það sem hann kallar langleiðir, t.d. til vermanna, ævinlega, og manna, sem siglt hafa í verzlunarerindum o.s.frv., alla tíð. En nú var þetta sett inn; greinilegar en áður var og tekið fram „langleiðir“. Og þá segi ég þetta: Verkamaðurinn, sem fer austan af Seyðisfirði og til Vestmannaeyja og kostar 600 kr. í ferðina, fær það til frádráttar; það eru langleiðir. En kennarinn, sem býr 15 km frá barnaskólanum og keyrir í barnaskólann á hverjum degi. fær það ekki, þó að það kosti hann tíu sinnum meira að keyra það yfir árið heldur en hinn, og vegalengdin, sem hann fer árlega, er miklu lengri. Þetta kalla menn ekki réttlæti. Menn segja, að þetta sé óréttlæti, og sætta sig ekki við það, og þess vegna benti ég á þetta, að það er einmitt þarna búið til og alveg greinilega með útskýringum hv. frsm., þm. Barð., óréttlæti á milli þegnanna. Einn fær að draga frá sínum tekjum kostnað við að leita sér atvinnu, sem er miklu lægri upphæð en annar þarf að eyða, þó að hann hafi skemmri vegalengd að fara daglega, og fær ekki að draga frá. Það var þetta, sem ég átti við með réttlætinu, sem ég var að tala um. Hins vegar veit ég það og viðurkenni, að þetta hefur verið framkvæmt dálítið svipað og þm. útskýrir það. Þessi kennari t.d., sem ég var að úrskurða skatt núna á laugardaginn var, fékk ekki bilkostnaðinn frá dreginn hjá okkur, og ég heyri, að hv. þm. Barð. ætlast til, að það sé eins. En honum finnst það áreiðanlega ranglátt gagnvart ýmsum öðrum, sem fara lengra og kosta miklu minna til.