05.04.1954
Neðri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

168. mál, fyrningarafskriftir

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þessi brtt. fjallar um það, að hið sama gildi um flugvélar og skip. Það sýnist vera mikil ástæða til þess að greiða fyrir því, að Íslendingar eignist flugvélar, bæði til fólks- og vöruflutninga, og eitt af því, sem gæti ef til vili greitt fyrir í þessu efni, væri það, ef leyft væri að afskrifa flugvélarnar eftir svipuðum reglum og nú er leyfilegt að afskrifa skip. Ef svo kynni að fara, að flugfélögin hefðu tekjur til þess að standa undir slíkum afskriftum, þá sýnist þetta vera mjög eðlilegt og engin ástæða til þess að gera flugvélum lægra undir höfði en skipum. Ég vil vonast eftir því, að hv. þdm. fallist á þessa till.