22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)

3. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Það er í alla staði eðlileg fyrirspurnin, sem hv. þm. V-Húnv. bar fram. Ég ætla, að ég hafi sagt í byrjun míns máls í dag, að það fólk, sem farið er fram á að verði veittur íslenzkur ríkisborgararéttur í brtt. á þskj. 495, 509, 602 og 603, uppfylli ekki þau skilyrði, sem n. hefur lagt til grundvallar í sínu starfi. Það hefur m.a. búið hér skemmri tíma en við höfum fylgt í þessu efni, miðað við þjóðerni. En svo eru þrjú ný þskj., sem komu í dag, og ég hef ekki haft neitt tækifæri til að athuga, hvort það eru nýjar umsóknir, ég þori ekki að staðhæfa og treysta minni mínu, hvort ég hef aðgætt þessi nöfn. Það eru till. á þskj. 603, 619 og 621, ef hv. þm. vilja skrifa það hjá sér. Hafi umsóknirnar legið fyrir n. og við gengið fram hjá þeim, þá uppfyllir þetta fólk ekki skilyrðin, en sé hér um nýjar umsóknir að ræða að einhverju leyti, eina eða fleiri, þá get ég ekki staðhæft neitt um það. Mér dettur í hug í tilefni af þessu, hvort hv. þingmenn geti ekki á það fallizt, ef hæstv. forseti vildi nú ljúka umr., sem ég get mjög vel skilið að hann óski eftir, að við létum honum í té upplýsingar um þessi atriði, áður en til atkv. verður gengið, hvort mennirnir, sem eru á þessum þremur þskj., uppfylla þau skilyrði, sem n. hefur lagt til grundvallar í sínu starfi. Geri þau það ekki, þá vona ég, að hv. dm. verði á verði með n. um það, að slíkt verði ekki samþykkt. Uppfylli þeir hins vegar þau skilyrði, sem við höfum sett, þá er ekki nema sjálfsagt að verða við þeim óskum, því að það efast ég ekkert um, eins og komið hefur fram t.d. hjá hv. 2. þm. Skagf., að það, að hv. þingmenn flytja þessar till., er trygging fyrir því, eftir því sem þeir vita bezt, að um gott fólk er að ræða. Það efast ég ekkert um. Frekar get ég ekki svarað þessu atriði, af því að við höfum ekki getað athugað þessar brtt. á þremur þskj., sem ég taldi nú upp.