22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

3. mál, ríkisborgararéttur

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég þarf ekki að segja nema fáein orð og einkum til þess að svara fáeinum atriðum í ræðu hv. 1. þm. Árn. og hv. 3. þm. Reykv.

Hv. 3. þm. Reykv. gat þess í sinni ræðu alveg réttilega, að íslenzku nafnalögin væru brotin. Það er hverju orði sannara. Það hefur allt of lítið verið að því gert að halda fast í þær reglur, sem þar eru settar um nafngiftir íslenzkra manna. Hann taldi, að þess mundu varla finnast dæmi, að börn manna, sem hafa ættarnöfn, sem skráð eru löglega á tímabilinu 1913–1925, noti ekki þessi ættarnöfn. Ég get skýrt frá því, að ég þekki þess dæmi, að þessum ákvæðum er hlýtt út í æsar, svo að ekki er það alveg dæmalaust, að þessum ákvæðum sé fylgt.

Hv. 1. þm. Árn. sagði í ræðu sinni, að Stephan G. Stephansson hafi orðið að breyta rithætti nafns sins. Þetta er misskilningur hjá hv. þm. Það gerði Stephan G. Stephansson af frjálsum vilja, og skulum við hafa það hugfast, með hverjum hætti hann gerði þessa breytingu. Hann samræmdi aðeins rithátt nafns síns rithætti tungu þeirrar þjóðar, sem hann bjó með, vitandi þó vel, að íslenzk tunga mundi eftir sem áður bera hans nafn fram með sama hætti og áður fyrr. Á þeim árum, sem hann gerði þetta, var og breytingin miklu minni en hún er í augum okkar Íslendinga í dag, þar sem það tíðkaðist mjög, bæði hér og um Íslendinga t.d. í Danmörku, að þeir vikju við rithætti á íslenzkum nöfnum til samræmis við erlenda málvenju. Mergurinn málsins er þó sá, að Stephan G. Stephansson var hvorki knúinn til þessarar lítilfjörlegu breytingar né heldur til þess að taka sér enskt nafn, en það er það, sem hv. þm. ætlar nú að gera gagnvart hinum væntanlegu íslenzku ríkisborgurum.

Ég fæ ekki skilið, hvernig hv. 1. þm. Árn. og aðrir forsvarsmenn allshn. í þessu máli geta talið íslenzkri tungu standa feiknavoða af því, að nokkrir erlendir menn fái til dauðadags að bera það nafn, sem þeir hafa borið, ef það er tryggt, að niðjarnir beri íslenzkt nafn samkvæmt íslenzkum nafnalögum. Þessi viðkvæmni er þeim mun undarlegri, þegar það er vitað, að þessi sömu nöfn eru nú borin af fjölmörgum Íslendingum án þess að amazt sé við því, að niðjar þeirra ætli að bera þau áfram. Hér eru t.d. tveir menn í tillögu hv. allshn., sem heita að eftirnafni Hansen. Hvernig getur nú nafnið Hansen á þessum tveimur mönnum, sem báðir eru miðaldra, verið líklegt til að spilla íslenzkri tungu, þegar hér eru tugir manna í landinu, sem heita Hansen og hv. þm. sér engan ótta stafa af því? Hvernig geta þessir menn verið með sínu Hansensnafni svona miklu stórkostlegri en allir hinir? Enn þá óskiljanlegra verður mér þetta málaþref allt saman, þegar hv. þm. og skoðanabræður hans í n. gera enga till. og hafa enga till. gert um það að koma í veg fyrir, að niðjar allra hinna hundrað Hansenanna kalli sig Hansen. Það gæti ég þó skilið. Þá gæti ég satt að segja tekið öll orðin, sem þeir segja um ást sína eða umhyggju fyrir málinu á þessu sviði, fullkomlega gild. En það setur að mér svolítinn efa, og hann situr í mér, meðan ég sé ekki till. frá þessum hv. þm. um að hreinsa öll útlend nöfn af Íslendingum. Hér eru t.d. tveir Jacobsenar; til eru margir íslenzkir ríkisborgarar, sem heita Jacobsen og fá að bera það nafn alveg óáreittir. Hér sé ég enn fremur tvo Jensena og einn Jörgensen, einn Nielsen, og hér eru tveir Petersenar. Ég les ekki lengra, en sjá menn í raun og veru ekki það hlægilega í því að skylda þetta fólk, sem heitir Hansen, Jacobsen, Nielsen, Petersen, til þess að skipta um nafn, af því að það sé stórhættulegt íslenzkri tungu, að hér heiti einhver maður Jensen eða Petersen í nokkra áratugi,þegar allir hinir hundrað fá að gera þetta alveg óátalið og niðjar þeirra? Ég segi nú í fyllstu alvöru: Sjá menn ekki, að hér er hálfgerður skrípaleikur á ferðinni? Menn verða þó að vera sjálfum sér samkvæmir að vissu marki í málflutningi.

Það er annars ekki aðeins þetta, sem er ábótavant um íslenzkar nafngiftir, eins og þær eru núna, og fær að vera óátalið af hálfu þessara ágætu manna. Annar ræðumannanna áðan, hv. 3. þm. Reykv., Björn Ólafsson, var menntmrh. í nokkur ár og hafði þá auðvitað sem sá aðili, sem á að sjá um framkvæmd nafnalaganna, ágæta aðstöðu til þess að hreinsa til á þessu sviði. Ef hann ber svo mikla umhyggju fyrir íslenzkri tungu sem hann segir og telur henni stafa svo gífurlega hættu af, að þetta fólk, sem hér er um að ræða og flest er komið yfir miðjan aldur, fái að halda til æviloka því nafni, sem það hefur borið frá skírn, hvers vegna var þá vitund hans um þetta ekki jafnvökul, meðan hann var menntmrh.? Hvers vegna gekkst hann þá ekki fyrir því, að þeim útlendu nöfnum, sem úir og grúir af á íslenzkum ríkisborgurum, verði breytt eða a.m.k. tryggt, að nafnalögunum verði hlýtt þannig, að menn bæru ekki ólögleg útlend nöfn? Hann gat þess áðan, að ýmsir niðjar þessa fólks með ættarnöfn bæru ættarnöfnin ólöglega. Mætti kannske segja, að undirskriftir þeirra með ólöglegum nöfnum væru hæpnar. Þarna hefði hann haft tilvalið tækifæri til þess að láta verulega að sér kveða sem menntmrh.

Ég skal segja það hiklaust, að ef till. kemur fram um að banna erlend nöfn á íslenzkum ríkisborgurum, banna þau hreinlega, þá skal ég ekki hafa neitt við það að athuga, að slíkt ákvæði sem þetta væri sett sem skilyrði gagnvart nýjum ríkisborgurum. Þá lúta þeir alveg sömu lögum og þeir, sem fyrir eru í landinu. En þetta er að gera upp á milli manna, þetta er að gera menn misjafna fyrir lögunum, að banna nýjum íslenzkum ríkisborgara að kalla sig áfram til dauðadags því nafni, sem öðrum íslenzkum ríkisborgara er leyft að kalla sig.

Ég hefði óskað þess, að hinn nýi prestvígði þingmaður, hv. 2. þm. Skagf. (GGísl), hefði borið gæfu til þess að flytja í jómfrúrræðu sinni betra mál en hann flutti í þeim fáu orðum, sem hann sagði um þessa brtt., sem umræðurnar snúast nú aðallega um. Ég óska honum sem ungum þingmanni alls góðs á þingmannsferli sínum og hefði einmitt þess vegna gjarnan viljað, að afstaða hans til þessa fyrsta máls, sem hann ræðir, hefði verið með öðrum hætti en hún í raun og veru varð. Þó að ég hafi enga sérstaka löngun til þess að hefja deilur við nýkjörinn þingmann, þá get ég þó að gefnu þessu tilefni ekki stillt mig um að benda á, að mér hefði fundizt hann gjarnan mega vera svolítið hófsamari í dómi sínum, þegar þess er gætt, að hann tilheyrir þeirri stétt landsins, sem ber fyrst og fremst ábyrgð á því, að nafnalögin eru brotin, því að það gera prestar íslenzku þjóðkirkjunnar. Höfuðástæða þess, hversu hörmulega illa íslenzku nafnalögin hafa verið haldin, er sú, að íslenzkir prestar hafa ekki reynzt þeim vanda vaxnir að framfylgja þessum lögum, þó að einföld séu. Það er hart að þurfa að segja þetta, en það er satt samt sem áður og verður því að segjast. Ég er í þessu sambandi ekki að staðhæfa neitt um það, að þessi ungi prestur muni á sínum fáu prestsskaparárum hafa átt þátt í því, að nafnalögin væru brotin, en þessi brot eru svo algeng, að það verður að tala um þetta sem alveg sérstaka sekt íslenzkrar prestastéttar. Það er ekki aðeins, að menn haldi áfram erlendum ættarnöfnum, erlendum nöfnum og erlendum og íslenzkum ónöfnum, orðskrípum, sem enn þá er skírt hér í stórum stíl, heldur er enn fremur margt fleira við framkvæmd nafnahátta okkar að athuga. Meðan t.d. kona má óáreitt vera Magnússon þrátt fyrir skýlaus ákvæði nafnalaganna um þetta og enginn segir neitt við þessu, þá finnst mér viðkvæmnin, sem hér gætir hjá ýmsum gagnvart útlendum nöfnum, undarleg, því að í sjálfu sér særir þetta máltilfinningu manna ekkert minna en það, að maður heiti Jensen.

Ég skal svo láta máli mínu um þetta efni lokið, skal raunar taka undir það, sem hv. þm. V-Húnv. sagði áðan í ræðu sinni, að ég er þess fullviss, að hv. þdm. eru málavextir orðnir svo ljósir, að engin líkindi eru til þess, að nokkur ný rök komi fram í málinu, sem líkleg mundu verða til þess að hafa áhrif á skoðanir nokkurs manns um málið, úr því sem komið er. Máli mínu vil ég þó ljúka með því að víkja aftur að því, sem hv. 1. þm. Árn. sagði um Stephan G. Stephansson. Í tilefni af því, að hv. þm. las kvæði eftir Stephan G. Stephansson, vildi ég aðeins honum og öðrum til hugleiðingar varpa fram spurningu um það, hvernig menn halda, að Stephan G. Stephansson hefði ort um þá kanadíska þingmenn, sem hefðu lagt fram frv. um, að hann skyldi taka upp enskt nafn og. t.d. nefna sig, eins og ég sagði í dag, Steve G. Stevenson. Að einu leyti má hv. þm. Árn. þakka fyrir það, að Stephan G. Stephansson skuli kominn undir græna torfu, því að annars væri hætt við, að hann mundi yrkja kvæði og það mergjað um þá íslenzka alþingismenn, sem vilja neita erlendum mönnum um þann rétt, sem Stephan G. Stephansson taldi sér heilagan.