22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)

3. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Þau fáu orð, sem ég sagði hér áðan viðvíkjandi fyrirspurninni frá hv. þm. V-Húnv. (SkG), vil ég mega ætla að hæstv. forseti telji sem stutta aths. aðeins og ég eigi því fullkominn ræðurétt; hann ætla ég að vísu ekki að nota mér, því að ég tel, að það sé búið að svara því, sem svara þarf hjá þeim hv. þm., sem vilja nú, að útlend ættarnöfn heimilist þessum nýju ríkisborgurum, sem kunna að verða samþykktir.

Ég gat ekki svarað fyrirspurn hv. þm. V-Húnv. áðan, af því að mér hafði ekki gefizt kostur á að athuga það nógu gaumgæfilega. Ég þorði ekki að treysta minninu. Mér fannst ég kannast við þessi nöfn öll, sem eru á brtt. 603, 619 og 621. Nú hef ég athugað þetta, og þá kemur í ljós, að þessir menn eru ekki búnir að eiga heima hér nógu lengi eftir þeirri reglu, sem nefndin hefur lagt til grundvallar fyrir tillögum sínum. Ég vil mjög eindregið beina því til hv. dm., að þeir standi með n.till. hennar og samþykki það eitt, sem n. leggur til að samþykkt verði, en láti ekki aðrar till. komast að. Við verðum, þar sem svo mikið er sótzt eftir þessum mikilsverða þegnrétti okkar, að taka upp einhverjar reglur og hafa hóf á því, hvað mörgum við veitum hann ár hvert. Það getur orðið innan skamms tíma allmargt samt, þó að hófs sé gætt í þessum efnum. Þær till., sem fyrir liggja, fullnægja ekki neinar nema till. n. einnar þeim grundvallarreglum, sem n. lagði, þegar hún gerði sínar till. Þetta vil ég vona að hv. þm. taki til góðviljaðrar athugunar, því að það getur verið, að ef við höfum ekki einhverja fasta reglu til þess að fara eftir og sköpum okkur þar, þá stefnum við þessum málum í hreint óefni. Veit ég, að hv. þm. vilja hafa á því góðar gætur, að fyllstu varfærni sé gætt.

Ég ætla nú ekki að fara að fjölyrða mikið um það, sem fram hefur komið síðan ég talaði áðan; þess gerist ekki þörf. Hv. 3. þm. Reykv. (BÓ) hefur svarað því, sem máli skiptir.

Ég er hv. 8. þm. Reykv. (GilsG) sammála um það, að við ættum að vinna að því, að farið væri að framkvæma betur nafnalögin, og gefa þessum málum einmitt góðar gætur, en það er ekki stefnt í rétta átt að innleiða fjölda erlendra ættarnafna og kemur hálfhlálega við. Annars byggjast röksemdir þessara tveggja hv. flm. till., sem talað hafa, aðallega á því, að þau skilyrði, sem sett hafa verið gagnvart útlendingunum, sem fengið hafa ríkisborgararétt, séu ekki nógu vel haldin, í málinu séu jafnvel á íslenzkum mönnum hálfgerð ónefni og það sé látið viðgangast, þess vegna sé ekki um svo mikla sök að ræða, þó að útlendingar, sem þegnrétt fá, fái að halda sínum erlendu ættarnöfnum. Maður skyldi nú ætla, að það lægi nær að rökstyðja sitt mál með því, að af því að áfátt er í þessum efnum, þurfi að koma í veg fyrir, að við bætist, og er þá nær að gripa til þess ráðs, sem hér líka hefur verið haft á orði, að hreinsa málið af þessu. Um þetta ætla ég svo ekki að fara frekari orðum.

Ég kunni ekki við það hjá hv. 1. landsk. þegar hann átetur hv. 2. þm. Skagf. (GGísl) fyrir afstöðu hans til þessa máls. Þetta er nýr þm., og sem betur fer kemur í ljós hjá honum einlægur vilji og skoðun um það, að við eigum að vera vel á verði um það, sem þessari þjóð er dýrmætast, og það er hennar tunga. Ég ætla, að þetta hljóti að vera af athugaleysi hv. 1. landsk. Hann átelur þetta hjá hv. 2. þm. Skagf. Ég tel það lofsvert, að hann tekur þessa afstöðu, og vil þakka honum fyrir það.

Hv. 8. þm. Reykv. sagði, að þingmenn, sem

hefðu verið hér undanfarið og hefðu staðið að meðferð mála hér áður, þjóðlegra mála og annars, m.a. er hervarnarsamningurinn hefði verið samþykktur, hefðu gjarnan mátt hafa í huga Stephan G. Stephansson. Ég skal aldrei mæla því í gegn, að menn hafi hann í huga. Hv. 8. þm. Reykv. var þá ekki kominn á þing til að taka afstöðu til þess máls, svo að maður getur lítið um það sagt, hvaða afstöðu hann hefði valið sér. Nú er hann kominn, og þetta er fyrsta prófmálið, sem reynir á hans þegnskan um það sem þjóðinni er dýrmætast af öllu, sem hún á, og það er hennar tunga. (BergS: En sjálfstæði hennar? Við öðluðumst sjálfstæði við það, að við vorum geymnir og okkar forfeður á tunguna. Þessi hv. þm. þarf ekki að vera að minna á þetta. Nú hefur hann gefið þessa raun, hv. 8. þm. Reykv. Um það, sem síðar kann að verða, vil ég gjarnan óska honum þess til handa, að hann velji sér betri málstað en í þetta sinn, og þá er vel.