22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
3. mál, ríkisborgararéttur
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Ég hef á þskj. 509 leyft mér að bera fram brtt. við það frv., sem hér er til meðferðar, og óskað eftir, að ein kona og tveir menn fengju íslenzkan ríkisborgararétt.
Hér er um að ræða frú Maríu Fich í Hrísdal í Miklaholtshreppi, sem hefur dvalizt hér í tæp sex ár. Hún er gift Kristjáni bónda í Hrísdal, og eru rúm tvö ár síðan þan gengu í hjónaband. Ef þær reglur, sem hv. allshn. setti sér á s.l. ári í sambandi við veitingu ríkisborgararéttar, hefðu gilt, eða verið þær sömu nú og á s.l. ári, hefði þessi kona skilyrðislaust átt að öðlast ríkisborgararétt að þessu sinni, því að eftir upplýsingum hv. n. á s.l. ári var talið rétt að mæla með því, að konur, sem hefðu gifzt íslenzkum ríkisborgurum fyrir tveim árum, fengju ríkisborgararétt, en nú mun þetta hafa verið fært upp í þrjú ár.
Viðvíkjandi tveimur karlmönnum, sem ég óskaði ríkisborgararéttar fyrir, vil ég segja þetta: Klaus Levermann er trésmiður í Reykjavík og er búinn að dveljast hér á landi í nær sex ár. Þetta er ungur maður og efnilegur og ætlar sér að dvelja áfram hér á landi.
Þá er í þriðja lagi Mikuleak, tékkneskur maður, sem er búinn að dveljast hér á landi í rúm 8 ár, er giftur íslenzkri konu, og vantar aðeins tæpa tvo mánuði í það, að þau hafi verið gift í þrjú ár.
Ég tel ákaflega eðlilegt og sjálfsagt, að hv. n. setji sér reglur til að fara eftir, og það hefur sannarlega komið hér fram í umræðunum, að hún leggur mjög hart að hv. þm. að hlýða því kalli, sem hún gefur, og þeim reglum, sem hún hefur sett. Þess vegna mun ég í þetta sinn, þar sem ég veit, að þetta góða fólk, sem ég hef óskað eftir að öðlaðist ríkisborgararétt, uppfyllir ekki þau skilyrði, sem n. hefur sett í sambandi við dvöl þess hér á landi, taka þessar brtt. mínar við frv. aftur. En annað vil ég minna hv. n. á með þær reglur, sem hún setur og krefst að aðrir hv. þm. fylgi, að hún reyni að gera sér far um að fylgja þeim settu reglum og sníði sínar brtt. í samræmi við þær. Á það hefur brostið í þetta sinn.