22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
3. mál, ríkisborgararéttur
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég vil ekki láta þessari umræðu ljúka án þess, að ég með örfáum orðum leiðrétti þann misskilning tveggja hv. þm., hv. 1. þm. Árn. og hv. 3. þm. Reykv., að ég hafi með orðum mínum áðan ætlað að ávíta með einhverjum hætti hv. 2. þm. Skagf., nýsetztan á þing. Það var mjög fjarri, að það væri tilætlun mín, að hann eða nokkur annar skildi orð mín þannig, enda tók ég það fram, að mér væri það í sjálfu sér ekkert ánægjuefni að þurfa að gagnrýna mál hans. Kom fram að öðru leyti, að ég ætlaðist til þess, að ekki yrði misskilið, þótt ég notaði tækifærið til að minna á, að sú stétt, sem hann tilheyrir, hefði ekki staðið svo vel á þjóðernisverðinum sem ástæða væri til. Mér fannst raunar, að hinir ræðumennirnir hefðu átt að benda á þetta, svo miklir áhugamenn sem þeir hafa sýnt sig um viðhald íslenzkrar nafngiftar.
Með þessum fáu orðum mínum vil ég aðeins undirstrika, að ég var ekki að gagnrýna það, að hv. 2. þm. Skagf. hefði sjálfstæða skoðun á þessu máli og lýsti henni vel og skörulega, heldur fannst mér ég ekki geta neitað mér um að benda á þátt prestanna í málinu. Ég vildi gjarnan mega vænta þess, að áhrifa hans á stéttarbræður sína mætti framvegis gæta vel og myndarlega og enn betur og enn myndarlegar, eftir að hann er kominn í hóp þingmanna, svo að nafnalögin verði framvegis betur í heiðri höfð en hingað til.